12.11.1947
Sameinað þing: 20. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 534 í D-deild Alþingistíðinda. (3782)

71. mál, erfitlit með verksmiðjum og vélum

Fyrirspyrjandi (Hermann Guðmundsson) :

Herra forseti. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að gildandi lögum og reglugerðum um eftirlit með vélum og verksmiðjum er ábótavant að mörgu leyti, og hafa þessi lög einkum orðið úrelt vegna hinna öru framfara í véltækni. Með hliðsjón af þessu flutti ég þáltill. á síðasta þingi. Hún var samþ., að vísu nokkuð breytt, 16. maí í vor. Þar segir svo með leyfi hæstv. forseta:

„Alþ. ályktar að fela ríkisstj. að láta fram fara endurskoðun á gildandi lögum og reglugerðum um eftirlit með verksmiðjum og vélum. Endurskoðuninni skal hraða sem verða má og árangur hennar lagður fyrir næsta reglulegt Alþ.“

Eftir að þessi þál. var samþ. og þangað til liðið var nokkuð á þetta þing, var mér ekki kunnugt um, að þessi endurskoðun væri komin til framkvæmda. Ég talaði þá við hæstv. samgmrh., og tjáði hann mér, að ætlun ríkisstj. væri að framkvæma hana innan tíðar. Ég tók það gilt og gott, en mér fannst þó sjálfsagt að bera fram þessa. fsp. Síðan fsp. var send í prentun, er mér kunnugt um, að Alþýðusambandi Íslands hefur borizt bréf frá hæstv. samgmrh., þar sem óskað er eftir, að það tilnefni einn mann í nefnd til að framkvæma endurskoðunina, og sá maður hefur nú verið tilnefndur. Hæstv. ráðh. mun upplýsa hér á eftir, hverjir hafa verið skipaðir í þessa n. og fleira í því sambandi, en ég fullyrði, að mikla nauðsyn haft borið til að gera þetta. Ég veit ekki, hvenær álit þessarar n. er væntanlegt, en það ríður á því, að þessi breyting komi fram sem fyrst. Ég hef svo ekki annað í sambandi við þessa fsp. að segja á þessu stigi málsins.