12.11.1947
Sameinað þing: 20. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 536 í D-deild Alþingistíðinda. (3790)
903. mál, innflutningur nýrra ávaxta
Hermann Guðmundsson:
Herra forseti. Gjaldeyrisástandið ræður vitanlega mestu um innflutninginn á hverjum tíma, en ég er anzi hræddur um, að æði margt hafi verið flutt inn af óþarfa, ef gefa á í skyn, að nýir ávextir séu óþarfi. Og þó að við höfum hjarað fram að þessu, eins og hæstv. ráðh. komst að orði, án þess að flytja inn mikið af ávöxtum, þá er það vitað mál, að ávextir eru stór liður í mataræði þjóðarinnar og sérstaklega mikilsverðir fyrir börn og unglinga, sem vantar þau bætiefni, sem eru í ávöxtum. Það er líka vitað, að fleiri þjóðir en við eru í vandræðum með gjaldeyri, en kaupa þó hlutfallslega miklu meira magn af ávöxtum en við. Hæstv. ráðh. talaði um, að keyptir hefðu verið ávextir fyrir 4 milljónir á þessu ári. Það virðist í fljótu bragði nokkuð há upphæð, en menn hafa ekki orðið varir við mikið ávaxtamagn, það er alveg víst, og sérstaklega hefur vantað nýja ávexti. Hæstv. ráðh. gat þess, að litlar líkur væru til þess, að hægt væri að flytja inn nokkuð meira af ávöxtum í ár. Ég harma það mjög, ekki sízt á því, að nú fer í hönd sá tími ársins, sem ávaxta er mest þörf, og auk þess er jólafagnaðurinn. Ég vil því spyrja hæstv. ráðh., hvort ekki hafi verið reynt að tryggja eitthvert magn af ávöxtum í desember. Það er að sjálfsögðu rétt, að margt verður að kaupa á undan ávöxtum, en ávextir hafa of mjög verið í skugganum fram til þessa. Þeir eru alveg nauðsynlegir. Ég vænti þess svo, að ríkisstj. geri allt, sem í hennar valdi stendur, til að framkvæma yfirlýstan vilja Alþ. og þá jafnframt vilja meginþorra þjóðarinnar í þessu efni.