12.11.1947
Sameinað þing: 20. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 538 í D-deild Alþingistíðinda. (3792)
903. mál, innflutningur nýrra ávaxta
Samgmrh. (Emil Jónsson) :
Herra forseti. Hv. 11. landsk. sagði á þá leið, að sér þætti hart, að innflutningur ávaxta væri talinn til óþarfa. Ekkert í minni ræðu gaf tilefni til þess, því að ég sagði, að innflutningur ávaxta væri bæði æskilegur og nauðsynlegur. En hins vegar eru aðrir hlutir enn þá æskilegri og nauðsynlegri. Meðan ekki er séð, hvernig gengur að greiða matvöru, fóðurbæti, benzín og farmgjöld af þessum brýnustu nauðsynjum, er ekki hægt að flytja inn ávexti fyrir meira en á þriðju milljón króna. Hv. 2. landsk. taldi, að hér hefði mátt betur á málunum halda, og má vel vera, að betur hefði tekizt í hennar höndum, en fjárhagsástandið er þannig, að ríkisstj. hefur ekki talið forsvaranlegt að flytja inn meiri ávexti, á meðan óvíst er um, hvernig brýnustu þörfum verði fullnægt. Um framtíðarinnflutning ávaxta skal ég ekkert segja, en má vera, að eitthvað flytjist inn af þeim, en það fer eftir því, hvernig tekst að leysa þær kvaðir, sem hvíla á bönkunum og gjaldeyrisforðanum um vörur, sem nauðsynlegri eru. Ýmis lönd önnur hafa orðið að grípa til róttækra ráðstafana í þessu skyni. Ég sá í blaði í dag, að í einu nágrannalanda okkar t. d. er innflutningur ávaxta alveg bannaður. Er þar sem hér, að gera verður fleira en gott þykir.