17.12.1947
Sameinað þing: 31. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 542 í D-deild Alþingistíðinda. (3808)
110. mál, gistihúsbygging í Reykjavík
Fyrirspyrjandi (Sigurður Bjarnason) :
Herra forseti. Á Alþingi, 16. apríl 1946, voru samþ. l. um gistihúsbyggingu í Reykjavík. Samkv. l. þessum er ríkissjóði heimilað að verja allt að fimm milljónum króna til byggingar gistihúss í Reykjavík, og jafnframt var ríkisstj. heimilað að reisa slíka byggingu í félagi við Reykjavíkurbæ, stofnanir og einstaklinga, sem kynnu að hafa áhuga fyrir málinu. Síðan mál þetta var afgreitt, hefur ekkert spurzt um afgreiðslu þess. Það er þó vitað, að hæstv. ríkisstj. hefur fengið erlenda sérfræðinga til að gera uppdrætti að þessari hótelbyggingu, en hvað langt þetta er komið, er ekki vitað. Vegna þessa hef ég leyft mér að gera hér fsp. til hæstv. ráðh., sem prentuð er á þskj. 171, hve langt sé komið öllum undirbúningi þessa máls og hversu mikið fé hafi verið greitt fyrir teikningu þessa húss. Um þetta óska ég að fá skýrslu.