21.01.1948
Sameinað þing: 35. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 552 í D-deild Alþingistíðinda. (3823)

905. mál, endurbygging sveitabýla

Fyrirspyrjandi (Páll Zóphóníasson) :

Herra forseti. Þegar l. um landnám, nýbyggðir og endurbyggingar í sveitum voru sett, breyttist verulega viðhorf þeirra bænda, sem þurftu að byggja og bæta jarðir sínar — breyttist á þann hátt, að þeim var með l. gefið fyrirheit um það að geta fengið verulega hærri lán en áður með lægri vöxtum. Til þess að þessi l. kæmu að gagni, var gert ráð fyrir, að sá sjóður, sem bændur gætu fengið lán úr, byggingarsjóður, yrði efldur verulega, og í 12. gr. l. er svo ákveðið, að það, sem vantar til, að stofnfé Búnaðarbankans eða deilda hans væri 10 millj. 1. júlí 1947, skuli ríkissjóður greiða eða útvega að láni vaxtalaust.

Þegar þessi l. voru gengin í gildi, þá byggðu bændur á þeim bjartar vonir um það, að þeir mundu fá nóg lán, og réðust í endurbyggingar á jörðum sínum, svo að það hefur líklega ekki á einu ári verið byggt öllu meira en á árinu 1947. En bændur hafa orðið fyrir sárum vonbrigðum, því að það hefur verið talið lýti á einstökum mönnum að standa ekki við loforð og hlýða ekki l., en það lítur út fyrir, að sjálf ríkisstj. Íslands láti sér sæma að hlýða ekki l., því að afleiðingin af því, að ekki hefur verið greitt það framlag, sem átti að greiða samkvæmt 12. gr. byggingarsjóðs laganna, hefur orðið sú, að það hefur orðið að neita bændum um lán eða skera niður lán úr 75% niður í helming eða ekki það, vegna þess að sjóðsstjórnin hefur verið að reyna að koma á móti mönnum og miðla því litla, sem hún hefur, milli fjöldans, svo að allir fengju eitthvað, og hefur þó ekki einu sinni getað það. Mér er kunnugt um það, að þótt nú sé komið árið 1948, þá er ekki enn búið að greiða stofnféð, er greiða átti 1. júní 1947, og nú spyr ég hæstv. ríkisstj.: Hvað lengi á þetta að ganga? Það er komið það ástand, að ekki er hægt að veita þessi lán. Býli, sem áttu að fá þau í haust, eru ekki farin að fá þau enn. Það er fjöldi manna búinn að taka byrjunina af sínu láni, en hafa ekki fengið neina viðbót, og mér finnst hart, að ríkisstj. skuli ganga á undan öðrum í landinu með það að hlýða ekki landslögum, því „hvað höfðingjarnir hafast að, hinir ætla sér leyfist það.“