22.01.1948
Sameinað þing: 36. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 563 í D-deild Alþingistíðinda. (3839)

905. mál, endurbygging sveitabýla

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Hv. þm. S-Þ. er einn af fulltrúum Landsbankans hér á Alþ., en átrúnaðargoð hans í öllu fjármálalífi er einn af bankastjórum Landsbankans. Sá maður er Jón Árnason, maðurinn, sem lýsti því yfir, er við sósíalistar börðust sem harðast fyrir því, að 30 nýir togarar yrðu keyptir til landsins, að það væri fásinna. Þetta er spekin, sem hv. þm. S-Þ. dásamar sem mest. Þetta er spekin, sem hann vill láta stjórna Íslandi eftir. Eina ráð Jóns Árnasonar var öngþveiti. En Alþ. tók sem betur fór, völdin af Jóni Árnasyni og öðrum mönnum með hans steinrunna hugsanagangi, og nú er svo komið, að helmingur nýsköpunartogaranna er þegar kominn til landsins, en hinn helmingurinn er væntanlegur á þessu ári.

Hv. þm. ásakar Áka Jakobsson fyrir það, að nokkur óhöpp hafa komið fyrir nýju mannvirkin á Siglufirði. Þótt Áki Jakobsson sé duglegur maður, hefur hann ekki komið því af að byggja nýju síldarverksmiðjurnar með eigin höndum. Ef verkfræðingar og verkstjórar, sem taka að sér verk, geta ekki byggt öruggar verksmiðjur, þá er ekki að saka Áka Jakobsson eða okkur sósíalista fyrir slíkt. Í sumar er leið var ég á ferð um Þingeyjarsýslu og spurði dreng nokkurn, hver gert hefði brúna við Ljósavatnsskarð. Drengurinn svaraði: „Jónas“. Ef brú þessi mundi nú einhvern tíma laskast eða detta niður, mundi það þá vera Jónasi að kenna? Nei, það mál, sem hér er verið að ræða um, ber að athuga alvarlega. Einn til tveir menn ráða mestu um fjármálalíf okkar Íslendinga, og ef þeir hugsa skakkt og hringlandi vitlaust, þá er það stórhættulegt fyrir þjóðina. Fjármálastjórnin er gæfumál þjóðarinnar. Alþ. á að sýna, að það sé ekki undirlægja embættismanna þeirra, sem fara með fjármál landsins. Hitt er svo vitleysa, sem hv. þm. sagði áðan, að ég hefði viljað verða bankastjóri Landsbankans. Ég hef aldrei haft neina löngun til þess, en ef svo hefði verið, væri ég líklega orðinn það. Nei, það er ekki hægt að afsaka bankapólitík þá, sem nú er rekin, og hún stafar eingöngu af því, að þar ráða menn eins og Jón Árnason og hans líkar.