22.01.1948
Sameinað þing: 36. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í D-deild Alþingistíðinda. (3851)
907. mál, lánsfjáröflun til Ræktunarsjóðs Íslands
Jónas Jónsson:
Ég hef orðið þess var, að hjá hv. 2. þm. Reykv. og hv. þm. Barð. kennir nokkurs misskilnings á eðli þjóðbankans. Þegar l. um bankann voru undirbúin, var lögð á það megináherzla að tryggja það að bankinn væri óháður ríkisstj., og í því skyni voru sett ströng takmörk í löggjöfina. Eftir þeim mætti stjórnin fá aðeins tvær millj. kr., svo að miskunnsemi bankans hefur verið mikil. Bankinn hefur verið of miskunnsamur með lán til framkvæmdanna á Siglufirði og Skagaströnd og til margra annarra hluta. Þessi frávik hafa orðið fyrir áhrif frá Kommúnistafl., og er hann þar á réttri leið út frá sínum sjónarmiðum, því að hann vill niðurrif, en Landsbankann tókst ekki að drepa, og til hans er leitað nú bæði af ríki og bæjarfélögum, því að ástandið er nú þannig, að t. d. togari Reykjavíkurbæjar, Ingólfur Arnarson, er rekinn með tekjuhalla, þótt fiskverðið sé á hápunkti. Hv. 2. þm. Reykv. ætti að spara sér aðfinnslurnar, hann fær ekki háa einkunn samanborið við Jón Árnason, því að allt, sem þessi hv. þm. hefur komið nærri, hefur farið á hausinn, en allt blessazt, sem Jón Árnason hefur lagt hönd að.
Þá eru það þessar 10 millj. kr., sem ekki hefur tekizt að afla ræktunarsjóði. Ríkisvaldið hefur nú í sumar fengið 10 millj. kr. upp úr eignakönnuninni, þar af rúmar 9 millj. kr. í góðum verðbréfum. Ég álít, að stjórnin eigi að taka þetta fé og leysa þannig þennan vanda. Þetta er sennilega eina úrræðið, sem ríkisstj. hefur nú. Og það er ekkert út á það að setja. Og þegar maður lítur á, hversu mjög var misskipt hjá sósíalistum í stjórnartíð þeirra, þegar stórar fjárfúlgur voru settar út til atvinnuveganna og í einu lagi 100 millj. kr., þá var lítið hugsað um landbúnaðinn, og þá er þetta líklega það eina, sem Alþ. getur gert nú til þess að jafna metin. Það er ekki stórt lóð, sem hér er um að ræða, en kannske nóg til þess að uppfylla þessa lagaheimild. — [Fundarhlé.]