18.02.1948
Sameinað þing: 45. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 579 í D-deild Alþingistíðinda. (3879)

156. mál, þjóðleikhúsið

Fyrirspyrjandi (Brynjólfur Bjarnason) :

Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir þau svör, sem hann hefur gefið við þessum fsp. Það virðist sem hann hafi gert sér far um að svara eins greinilega og nákvæmlega og kostur var á. Ég gerði ráð fyrir, að það mundi taka nokkurn tíma fyrir hæstv. ráðh. að afla þeirra gagna. sem nauðsynleg væru til að gefa fullnægjandi svör, enda er ekki enn komið það, sem ég hafði mestan áhuga fyrir, en það var sundurliðuð skýrsla yfir þær greiðslur, sem fram hefðu farið úr þjóðleikhússjóði. Ég bjóst ekki heldur við því, að ráðh. mundi á svo stuttum tíma hafa tök á því að leggja þær fram. En hann hefur nú lofað því, að hann skuli afla þessara gagna og leggja þau fyrir þm., og fyrir það er ég honum þakklátur og vona, að það verði eins fljótt og kostur er. Fsp. fjallar ekki um neinar sérstakar greiðslur, heldur um eins sundurliðaða skýrslu og unnt væri úr þjóðleikhússjóði frá upphafi, til þess að þm. gætu gert sér um það eins ljósa hugmynd og unnt væri, hvernig því fé hefur verið varið.

Hvað snertir fyrri lið fsp., þá svaraði ráðh. því, að þjóðleikhúsnefnd gizkaði á, að húsið mundi verða tilbúið, þannig að hægt væri að taka það til notkunar fyrir þjóðleikhússtörf um næstu áramót. Þetta er vitanlega aðeins ágizkun, og hafa áður komið ágizkanir frá þessari nefnd, sem hafa ekki staðizt. T. d. hefur verið gizkað á, að húsið gæti verið tilbúið 1947. Það er nú von, að n. eigi erfitt með að gizka á þetta, þar sem hún á erfitt með að gizka á, hve mikinn gjaldeyri hún fær til efniskaupa, en hins vegar gæti ríkisstj. gefið um það upplýsingar, og óskaði ég þess, þegar ég lagði þetta fram, að það kæmi glögglega fram, hvort ríkisstj. sæi sér fært að láta n. fá það mikið fé í erlendum gjaldeyri, að lokið verði við húsið eins fljótt og hægt er.

Hvað hina fsp. snertir, hefur ráðh. gefið mjög fróðlegar upplýsingar. Það kom fram í því svari, að það fé, sem farið hefur til þjóðleikhússins fyrir stríð, eða fram að þeim tíma, sem herinn tók bygginguna, er aðeins rúmar 700 þús. kr. En það, sem varið hefur verið til hússins síðan, til áramóta 1947, er aftur á móti röskar 5 millj. kr. Þarna er ekki talin með innrétting, en áætlað er, að það, sem á vantar, muni vera um 4 millj. og 800 þús., þannig að alls mun þjóðleikhúsið kosta hátt á elleftu milljón. Og ef þessi áætlun stenzt, lítur dæmið þannig út, að það sem kostað hefur verið til að koma húsinu upp fyrir stríð, eru 700 þús., en það, sem eftir er, er um 10 millj. Þetta eru raunar ekki sambærilegar tölur, því að byggingarkostnaður fyrir stríð var allur annar en nú, en þó að gert sé fyrir því, þá er hér samt um furðulegan samanburð að ræða. Segjum, að byggingarkostnaður hafi fimmfaldazt. Þá er kostnaðurinn fyrir stríð um 3½ millj. á móti því, sem kostar að fullgera húsið, þ. e. um 10 millj., ef við tækjum sambærilegar tölur. — Þegar litið er á þessar tölur, sem eru ákaflega fróðlegar fyrir alþm., þá er áhugi minn og margra annarra enn meiri fyrir því að fá einmitt þessa sundurliðuðu skýrslu, sem ég var með fsp. minni að óska eftir.