18.02.1948
Sameinað þing: 45. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 584 í D-deild Alþingistíðinda. (3889)

908. mál, áhættuiðgjöld til Tryggingastofnunar ríkisins 1947

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :

Herra forseti. Ég vildi fyrst og fremst geta þess út af ræðu hv. fyrirspyrjanda, að mér er skylt og ljúft að gefa, þegar tækifæri gefst, nákvæma skýrslu um afkomu þessara tryggingagreina á árinu 1947, og má vel vera, að svo geti farið, áður en þingi lýkur og sérstaklega, þegar forstjóri tryggingastofnunarinnar væri kominn heim, sem ég þyrfti að ræða nánar við um þessi atriði.

Út af því, sem hv. þm. V-Húnv. sagði um reynslu þessara 2 ára í sambandi við slysatryggingar, þar sem af þeim hefur orðið ágóði árið 1946, sem nam ca. 2 millj. kr., og að áætlað væri eftir þeim tölum, sem ég gaf upp, en tók jafnframt fram, að ekki væru nákvæmar, að afgangurinn af þessum sömu tryggingagreinum gæti orðið allt að 3 millj. kr. fyrir árið 1947, — kom hv. þm. inn á það með tilvísun til 113. gr. almannatryggingal., að rétt væri og skylt að bæta þeim, sem iðgjöld hafa greitt, upp það, sem afgangs hefði orðið í þessari tryggingagrein. Ég vil fyrst og fremst endurtaka það, sem ég sagði hér áður, að í öllum slíkum tryggingum er ekki unnt að miða afkomuna við reynslu eins eða tveggja ára, heldur verður reynslutíminn að vera miklu lengri, því að í þessu tilliti geta sum ár orðið góð og gefið afgang, en önnur slæm í tryggingalegu tilliti, þannig að iðgjöldin standa ekki undir bótagreiðslum, en þó mætti væntanlega sjá, áður en langt um liði, hvort ákvæðin um iðgjöldin hefðu verið sett svo há, að óhætt væri að fenginni reynslu að lækka þau. — Þá leið, sem hv. þm. talaði um, að endurgreiða iðgjaldagreiðendum eitthvað af áður greiddum iðgjöldum, tel ég ekki færa, því að iðgjöldin breytast nokkuð frá ári til árs og því erfitt við það að eiga. Hin leiðin er eðlileg og sjálfsögð, og kæmi það til álita að fenginni reynslu, hvort ekki væri unnt að lækka iðgjaldagreiðslurnar að einhverju leyti. Það er alls ekki meiningin, að ágóði eigi að verða af þessari tryggingagrein, heldur einungis að tryggja það, að iðgjaldatekjurnar standi undir bótagreiðslum, og á ekki að miða við eins eða tveggja ára tímabil, heldur lengri tíma. Ég álít, að fljótlega muni að því koma, að Tryggingastofnun ríkisins eigi að taka til endurskoðunar þá reglugerð, sem ákvarðar iðgjaldagreiðslurnar, ef unnt væri að gera þar breytingar til lækkunar að fenginni nægilegri reynslu. Um þetta atriði mun ég ræða við forstjóra tryggingastofnunarinnar, þegar þar að kemur, og hann og tryggingaráð munu að sjálfsögðu bera saman bækur sínar um það, hvað rétt sé að gera í þessum efnum. Mun ég svo — að gefnu þessu tilefni — halda málinu vakandi.