10.03.1948
Sameinað þing: 51. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 608 í D-deild Alþingistíðinda. (3928)

910. mál, Bessastaðastofa o.fl.

Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson) :

Herra forseti. Það er kunnugt, að einn þm. Reykv. flutti hér á Alþingi fsp. um það, hversu mikið viðgerðir hefðu kostað á Bessastaðakirkju. Í þeim umr. kom fram, að mörgum þótti mikið hafa verið lagt til Bessastaðakirkju. Það er nú búið að ræða þennan lið í kostnaðinum við endurreisn Bessastaða, en mér þótti rétt að spyrja um meira. Ég vildi fá að vita, hversu tilkostnaðurinn væri orðinn mikill vegna forsetasetursins alls. Það er ekki nema eðlilegt, að hlynnt sé að forsetabústaðnum, en ég sé ekki betur en sú mikla viðgerð, sem fram hefur farið á Bessastaðakirkju, hafi farið fram utan fjárl. Ég veit ekki annað en allur sá rausnarlegi tilkostnaður, sem orðinn er vegna þjóðhöfðingjans okkar á Bessastöðum, hafi ekki verið áætlaður á fjárl., en mér finnst, að rétt sé að fá það upplýst, hversu mikið fé hafi þegar farið til staðarins, og með fsp. þessari er bætt úr þessu, og í sambandi við þetta hef ég hugsað mér að hreyfa öðru máli, en það er, að þingmenn fari að hugsa fyrir byggingu nýs þinghúss og stjórnarráðs. Aðbúnaður forsetans þarf að vera góður, en engu síður aðbúnaður Alþingis og ríkisstjórnar. Í skýrslu þeirri, sem hæstv. ráðh. mun nú gefa, ætlast ég til þess að fá upplýst, hversu mikið fé Sigurði Jónassyni var greitt, er hann afsalaði landinu Bessastaði, og hversu mikið endurbætur á jörð og húsum hafa kostað. Á Bessastöðum er nú rekinn mjög óheppilegur búskapur, sem vart mun borga sig. Við hv. þm. Borgf. og ég lögðum til á sínum tíma, að á Bessastöðum yrði rekið fyrirmyndar hestabú, sem mikil þörf var fyrir og líkur bentu til, að mundi vera hægt að reka hallalaust. Ég skal svo ekki ræða málið frekar fyrr en hæstv. ráðh. hafa svarað fsp.