12.03.1948
Sameinað þing: 51. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 615 í D-deild Alþingistíðinda. (3932)

910. mál, Bessastaðastofa o.fl.

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég skal ekki ræða efni þessarar fsp. mikið. Hæstv. forseti hefur tekið hana á dagskrá vegna þingskapa. En mér þykir ástæða til þess að minna hæstv. forsrh. á það, að fjvn. hefur fengið ósk frá hæstv. ríkisstj. um það, að n. starfaði helzt nótt og dag, svo að lokið yrði þingstörfum fyrir páska. Síðan heldur hæstv. forsrh. langar ræður um það, hvað þessi nagli og þessi sementspoki kosti, þegar aðkallandi mál bíða. Og hæstv. atvmrh. talar um það, hve margar kýr séu í fjósi á Bessastöðum, hve margir graðhestar og naut séu þar. Jafnframt sendir hæstv. ríkisstj. þm. skilaboð um það að vinna eins og þrælar. Það er misskilningur, ef stj. heldur að þinginu verði með þessu háttarlagi lokið fyrir páska.