10.03.1948
Sameinað þing: 51. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 615 í D-deild Alþingistíðinda. (3933)
910. mál, Bessastaðastofa o.fl.
Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :
Herra forseti. Ég er dálítið undrandi yfir ræðu hv. þm. Barð. Eins og það er skylda fjvn. að starfa vel, eins og hún hefur gert og gerir, eins er það líka skylda stj. að gefa þær upplýsingar er þm. krefjast. Ég vænti þess, að sú litla stund, sem þetta mál hefur tekið, hafi ekki þær afleiðingar, að þingstörfum verði ekki lokið á þeim tíma, sem ætlað er.