17.03.1948
Sameinað þing: 55. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 621 í D-deild Alþingistíðinda. (3945)

181. mál, njósnir Þjóðverja á Íslandi

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Herra forseti. Það er alveg sjálfsagt að verða við þessari ósk hv. þm. Str. Og það var í raun og veru samþ. af hæstv. fyrrv. ríkisstj., en ég veit ekki, hvernig á því stendur. að þessi bréf hafa ekki verið birt. Ég hef hér í höndunum afrit af bréfi hæstv. fyrrv. forsrh., þar sem hann svarar hv. þm. Str. og segir, að rétt sé að birta þessi bréf. En hvers vegna það var ekki gert, er mér ókunnugt um. Og mér finnst sjálfsagt, þar sem fyrir liggur samþykki fyrrv. ríkisstj., að þetta sé gert.