17.03.1948
Sameinað þing: 55. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 625 í D-deild Alþingistíðinda. (3950)
911. mál, rekstur Reykjavíkurflugvallar
Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson) :
Herra forseti. Ég skal taka það strax fram, að ég álít, að ráðh. hafi svarað a- og b-liðunum nægilega með því, sem hann sagði um c-liðinn í fyrirspurninni, því að það, sem fyrir mér vakti, var það, að þm. og almenningi yrði kunnugt, hvílíkur rekstur var á hótelinu, að þrátt fyrir allan tilkostnaðinn er þetta í svo hörmulegu ástandi, m. a. fyrir það, að húsgögn og munir hafa horfið, eins og kom fram í ræðu hæstv. ráðh., að slíks munu engin dæmi, og ég þykist vita, að betur muni séð fyrir réttlæti í landinu, ef þetta er ekki svæft, heldur látin ganga í því rannsókn og dómur. Það að eyða ½ milljón á einu bretti er alveg einstakt þrekvirki.
Ég vil benda á það, að af þessari fyrirspurn kemur í ljós, að flugvöllurinn okkar hefur tapað nálega öllum útlendum viðskiptum, og eru ekki líkur til, að þau náist aftur. Flugvöllurinn er bara notaður af íslenzkum flugvélum, og við hann er mikill tilkostnaður, sem fer vaxandi, þegar kemur til með meira viðhald, og er þetta mikið umhugsunarefni. Ég býst við, að leggja megi við þennan tilkostnað nokkuð af kostnaði við yfirstjórn flugmálanna.
Þá er það annað, sem fyrirspurnin hefur einnig leitt í ljós, en það er það, að svo hörmulega sem mest má vera hefur verið gengið frá greiðslum út af þessu. Fyrrv. flugmálarh. sendi hverja n. á fætur annarri, sumar til Kanada og sumar til Dublin, — ég held að það hafi verið 7 menn í sumum n. Þarna eru milljónaskuldir. og ef stj. getur ekki fengið þær greiddar, verður að hætta þessari þjónustu. Þarna er glöggt dæmi um það, hvernig flugmálunum hefur verið stjórnað. Þetta er eðlilegt, þar sem þessir menn vildu umfram allt losna við að láta Bandaríkjamenn hafa þessa þjónustu og taka hana, án þess að hafa nokkur ráð til þess. Vel getur farið svo, að við verðum að henda þessu öllu í Bandaríkjamenn og segja, að við höfum ekki ráð á þessu.
Ég tel það heppilegt, að nú hefur ráðh. tvisvar gefið þinginu skýrslu um þessi mál, og nú fær þjóðin að vita, hvernig gengur til þarna suður frá, því að annars hefði þessu verið leynt af núv. stj., sem hefur gert það, sem unnt hefur verið, til þess að bæta úr því, sem fyrrv. stj. hafði gert.
Annars er það alveg einstakt, að það skuli liggja við, að loka verði gistihúsi í nánd við Rvík, gistihúsi með um 80 rúmum, þar sem vantar gistihús, og kemur það einnig Rvík og ríkinu við, því að gestakoma er þeirra mál beggja. Ég vona, að haldið verði áfram að reka þetta hótel og að þjófar verði ekki látnir ráða þar lögum og lofum, eins og átt hefur sér stað.