13.10.1947
Neðri deild: 5. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í B-deild Alþingistíðinda. (437)
23. mál, bændaskólar
Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson):
Ég er hræddur um, að það hafi villt suma þm., að stj. lét fella breyt., sem hér eru bornar fram, inn í l., en sannleikurinn er sá, að breyt. eru mjög smávægilegar. En af því að undirbúningsn. valdi þá leið að feila breyt. inn í l., virðist eins og hér sé verið að koma með nýjan lagabálk. Mér var kunnugt um endurskoðun skólalöggjafarinnar, og af þeim sökum taldi ég það ekki í mínum verkahring að gera till. um alhliða breyt. á l. um búnaðarskóla. Ég vildi aðeins fá smábreyt. Verklega kennslan hefur verið þannig framkvæmd, að það hafa verið vandræði, og vildi ég heldur hafa þetta innan löggjafarinnar en utan við hana. Í þessu átti engin endurskoðun að felast, því að hennar er von annars staðar frá.
Um það, sem sagt hefur verið um verklegu kennsluna í sambandi við þetta mál, get ég að sumu leyti verið þeim sammála, sem talað hafa, og að sumu leyti ekki. Sú breyt., sem gerð er á tímunum, kemur aðallega niður á sumartímanum, að starfstími manna verður minni þá, en öll verklega kennslan er frekar aukin en minnkuð. Ég er þeim sammála um það, að nauðsynlegt er að koma á fullkominni verklegri kennslu við bændaskólana, og er að því unnið að útvega til skólanna öll þau nýjustu verkfæri, sem tök eru á að fá við íslenzkan landbúnað, bæði vegna skólabúanna og til þess að kenna mönnum vinnubrögð með þau. Ég er sammála um það, að kennsla, sérstaklega í meðferð vinnuvéla, sé stórnauðsynleg námsgrein.
Um hitt skal ég ekki segja að svo stöddu, hvort það er til framfara að leggja að mestu niður þá bóklegu kennslu, sem er í búnaðarskólum okkar. Þeir hafa verið sniðnir eftir sams konar skólum á Norðurlöndum, og hefur verið tekin upp sú kennsla, sem þar tíðkast, og tel ég, að menn verði að hugsa sig vel um, áður en hinni bóklegu kennslu er kippt burt. Þó getur komið til mála, að almenn kennsla, sem frekar á heima í unglingaskólum, verði numin burt, þegar sú endurskoðun fer fram á skólalöggjöfinni á Alþingi, sem nú stendur til. Ég held ekki, að hægt sé að segja það, þó að húsmæðraskólarnir séu betur sóttir en bændaskólarnir, að það sé fyrir það, að bændaskólarnir séu skakkt uppsettir, og vil minna á það, að húsmæðrastéttin er að minnsta kosti tvöföld á við bændastéttina, svo að það er ekki undarlegt, þótt þátttakan sé meiri. Hitt er rétt, að aðsóknin að bændaskólunum hefur oft verið undarlega lítil, en mér er sagt, að það sé ekki minni tala hlutfallslega hér, sem sækir bændaskóla, en annars staðar á Norðurlöndum, og sé ég ekki, að hægt sé að kenna kennslufyrirkomulaginu um það, að þeir eru ekki meira sóttir.
Um verklega kennslu á bændaskólunum er það að segja, að verklegu kennsluna þarf að auka, en ég er ekki alveg viss um, að rétta leiðin sé að láta þessa kennslu alla fara fram í bændaskólunum. Ég hef heyrt það, að þar sem nemendur eru margir í verknámsdeildum bændaskólanna, þar falli svo lítið í hvers hlut, að þeir, sem þar stunda nám, verði verr að sér heldur en þeir, sem komast að verknámi hjá einstökum bændum. Ég get hugsað mér, að rétt sé að koma því svo fyrir, að sú verklega kennsla, sem þurfi að vera, geti farið fram víðar en á bændaskólunum, eins og er t.d. við sjómannaskólana. Kennslan í sambandi við þá fer fram viða. Þetta er allt til athugunar, þegar löggjöfin verður endurskoðuð.
Um Skálholtsskóla skal ég segja það, að eins og þm. er kunnugt, voru samþykkt l. um hann og samþykkt gerð um fjárframlag frá Alþingi til framkvæmdar þessum l. Nú hefur þessu máli litið þokað áfram, aðeins ofur lítið haldið áfram með vegagerð. Hins vegar, þegar fram á sumarið kom og gjaldeyrisskorturinn fór að koma í ljós, sneri ég mér til fjárhagsráðs og spurði, hvort það mundi heimila áframhaldandi fjárfestingu vegna þessa skóla. Fékk ég þau svör, að vegna þess, að stöðva þyrfti ýmsar byggingar, sem byrjað væri á, teldi ráðið ekki mögulegt að festa stórfé í byggingu eins og Skálholtsskóla, og m.a. af því og af því að mér fannst þeir hafa lög að mæla, hefur ekkert frekar verið gert í málinu. Þær milljónir, sem til þess áttu að fara, eru óeyddar og verða það, þangað til nýjar ákvarðanir verða teknar um þetta mál. Ég geri ekki ráð fyrir, að ég eða núverandi stj. leggi út í framkvæmdir, fyrr en málið hefur verið athugað á ný og fyrir liggja nýjar ákvarðanir. Hins vegar tel ég mér skylt að vaka yfir þessu máli eins og Alþingi hefur fengið mér það í hendur og koma því áleiðis svo sem hægt er.