10.12.1947
Neðri deild: 30. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 342 í B-deild Alþingistíðinda. (443)

23. mál, bændaskólar

Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):

Herra forseti. Eins og ég hef áður sagt, þá var ég ekki viðstaddur 1. umr. þessa máls og hef því ekki fylgzt með því, sem hv. 6. þm. Reykv. hefur áður en nú sagt um það. Mér er ókunnugt um, hvað mþn. sú, sem hv. 6. þm. Reykv. gat um, hefur gert í þessu máli, en mér þykir það næsta einkennilegar upplýsingar, ef réttar eru, að skólastjórar bændaskólanna hafi neitað að láta n. í té umbeðnar upplýsingar. (SigfS: Ekki neitað því, en látið það undir höfuð leggjast.) Ég skal ekki afsaka það.

Hv. 6. þm. Reykv. heldur því fram, að á bændaskólunum eigi að vera verklegt nám eingöngu. Ég er hér ekki á sama máli. Hann sagði, að sín skoðun væri sú, að að miðskólaprófi loknu tækju bændaskólar og aðrir hliðstæðir skólar við nemendunum. Nú er þess að gæta, að hin nýja fræðslulöggjöf er enn ekki komin í gildi og þar með engin miðskólapróf, og þess vegna er of snemmt að ganga út frá þeim. Hins vegar hefur það iðulega verið gert að taka héraðsskólanemendur í bændaskólana, en ég hygg, að hvorki þeir né þeir, sem miðskólaprófi hafa lokið, hafi fullnægjandi bóklega menntun sem bændaefni, því að bændaskólamenntun hlýtur alltaf, ef vel á að vera, að vera nokkuð sérfræðileg. Nægilega menntun hafa þessir nemendur e.t.v. í nokkrum greinum, svo sem stærðfræði og móðurmáli, en ég tel mikið á vanta í náttúrufræði, því að þörf er mikil á góðri kunnáttu í grasafræði, eðlis- og efnafræði. Ég verð að segja það, að þegar ég sem ungur piltur kom í Bændaskóla, þá opnuðust fyrir mér nýir heimar í þessum greinum. Ég hygg því, að það sé á miklum misskilningi byggt að vilja útrýma slíkri kennslu úr bændaskólunum, enda er það ekki í neinu nágrannalandi okkar svo, að bændaefnum sé ekki í té látið allmikið sérnám, sem atvinnugrein þeirra útheimtir. Þeir verða að fá skilning á ræktun og eldi húsdýra, en það hlýtur að byggjast á sérnámi. Ég hygg því, að það sé mikill undansláttur að hverfa frá þessu námi.

Um það, sem hv. 6. þm. Reykv. sagði um það, að þeir nemendur, sem lokið hafa miðskólaprófi, færu að því loknu í bændaskóla, þá er því til að svara, að þeir eru of ungir í flestum tilfellum. Bændaskólanemandi mætti helzt ekki vera yngri en 18 ára gamall, og lengi hefur það tíðkazt, að menn væru um tvítugt, þegar þeir fara á þessa skóla. Það er einnig algerlega óvíst, hvort unglingar um 16 ára aldur hafi náð þeim þroska, að þeir séu færir um að helga sig sveitastörfunum. Ég geri því varla ráð fyrir því, að hægt sé að tengja búnaðarnámið svo einfaldlega inn í hið nýja skólakerfi, enda þótt sjálfsagt sé að athuga þetta. Það á ég hægt með að viðurkenna, og ég tel eðlilegt að skipa bændakennslunni vissan stað, en þess er ekki brýn þörf sem stendur.

Ég get nú ekki hopað á hæl varðandi skoðun mína um verklegt nám við bændaskólana. Það er rétt hjá hv. þm., að slakað hefur verið til um verklega námið, þannig að verknámsskyldan hefur verið færð úr 6 mánuðum niður í 4 mánuði eða ákveðna klukkustundatölu. Reyndin hefur verið sú, að undanþága hefur verið veitt til að framkvæma þetta og undanþágur voru að verða aðalreglan, sem farið var eftir með verklega námið. Ég held það sé alveg rétt hjá skólastjóranum á Hvanneyri, að nú skuli ákveðnar breytingar á verknámi nemenda. Nú á tímum hinnar nýju tækni koma fleiri og fleiri piltar á búnaðarskólana, sem vanizt hafa nýmóðins vinnuverkfærum og vinnuaðferðum heima hjá sér, og er þeir finna, að þeir eru æfðir í flestum þeim verkum, þá er ekki að furða, að þeir kunni ekki við að þurfa að stunda verknám allt sumarið. Í öðru lagi er mannekla svo mikil í sveitunum, að bændasynir margir hverjir eru neyddir til að hætta við að sækja skóla, ef þeim er gert ómögulegt að fara heim til sín um hábjargræðistímann og hjálpa til við heyannirnar. Með þessum breytingum er því verið að laga sig eftir aðstæðum, og er ekki til neins að berja höfðinu við steininn varðandi þennan vanda. Nú sem stendur er frekar slæm aðsókn að bændasólunum, og er nú svo komið, að ekki er treystandi að eiga það yfir höfði, að bændasynir geti ekki sótt skóla fyrir það, að þeim sé synjað um frí frá námi um hábjargræðistímann. Er því rangt að hafa slíkt verknámsákvæði í l. sem nú.

Hv. 6. þm. Reykv. talaði af vinsemd um þetta mál, en virðist ekki vera nægilega inn í þeim ástæðum, sem fyrir eru. Það er verið að gera verknámið mun fjölbreyttara en áður þekktist. Nú útskrifast nemendur t.d. allir með bilstjórapróf og fá skírteini upp á kunnáttu að fara með dráttarvélar. Einnig vinna þeir tíma á vetrum að vélaviðgerðum, og færist þannig sá hluti verknámsins yfir á veturinn, auk þess sem nemendur læra þá skepnuhirðingu og mjaltir, en erfitt er að framkvæma þetta í stórum stíl með bóknáminu. Ég get því ekki viðurkennt, að hér er um stórkostlegt undanhald að ræða.

Ég skal svo ekki hafa fleiri orð um þetta nú, en ég taldi rétt að segja þetta hér um verknámið, og ég held, að það ætti ekki að tefja lagasetninguna, þótt þessi breyting yrði gerð á verknáminu. Með þessu frv. þótti rétt að sameina ákvæði úr þrennum l. eða fernum og koma þeim ákvæðum, sem í þeim felast, fyrir á einum stað, og var frv. því samið upp að öllu leyti, þótt breytingarnar séu ekki fleiri en hér er nefnt.