10.12.1947
Neðri deild: 30. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 344 í B-deild Alþingistíðinda. (444)
23. mál, bændaskólar
Sigfús Sigurhjartarson:
Herra forseti. Ég held, að ekki sé um mikinn ágreining að ræða á milli mín og hv. 1. þm. Skagf., en ég held því fram, að tímabært sé að endurskoða í heild l. um bændaskóla, en hann vill biða og hverfa til baka með verklega námið við þessa skóla. Nú er hið nýja fyrirkomulag samkv. nýju skólalöggjöfinni að komast í framkvæmd, en sú löggjöf á að fullu að vera komin í framkvæmd árið 1951. Ef l. um bændaskóla hefðu fyrr verið endurskoðuð, þá hefði átt að setja inn í fræðsluögin ákvæði varðandi nemendur, sem ekki hafa lakið miðskólaprófi. Þannig er þetta t.d. í Danmörku, að nemendur fá hina almennu fræðslu í hinum almennu miðskólum, en sérfræðslu í búnaðarskólum, iðnskólum og sjómannaskólum. Í ræðu minni drap ég að nokkru á undirbúning verklega námsins við búnaðarskóla — hinn bóklega undirbúning. Og það er rétt hjá frsm. n., að stærðfræði, náttúrufræði, líffærafræði og grasafræði er undirstöðulærdómur undir verklega námið. Um það er enginn ágreiningur okkar í milli.
Í lok ræðu hv. 1. þm. Skagf. virtist mér mergurinn málsins vera, að vegna þess, hve aðsókn að bændaskólunum er dræm, þá megi bæta úr þessu með einu ráði, en það er að skera niður verknámið. Það tel ég mjög vanhugsað og órétta ályktun. Nei, það á ekki að grípa til þessa ráðs, heldur endurskoða fyrirkomulag þessara mála í heild og reyna að finna leið til þess, að bændaskólarnir verði sóttir, Hver maður, sem ætlar sér að stunda búskap, ætti að ganga á Lundaskóla.
Ég sé svo ekki ástæðu til að fara út í neinar kappræður um þetta, en vænti þess, að mál þessi verði endurskoðuð af vandvirkni, en ekki séu gerðar kákbreytingar á l. þessum, sem koma að litlum notum. Hv. frsm. sagði, að þeir nemendur, sem lokið hafa miðskólaprófi, séu of ungir til að geta haft full not af búnaðarnámi. Mér hefur heldur aldrei dottið í hug, að ungmenni undir 18–20 ára aldri væru á heppilegasta aldursskeiði til að hefja slíkt sérnám. Hins vegar tel ég 20–30 ára aldurinn heppilegastan, og ekki sé ég, að það mundi skaða neitt, þótt nokkur bið yrði hjá nemanda, frá því að hann hefur lokið miðskólaprófi og þar til að hann hefur búnaðarnám, og mér finnst rétt að athuga, hvort lágmarksaldur skuli miðaður við 18 eða 20 ára aldur.