16.03.1948
Efri deild: 79. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 358 í B-deild Alþingistíðinda. (492)

13. mál, Landsbanki Íslands

Frsm. (Pétur Magnússon):

Herra forseti. Fjhn. hefur athugað mál þetta og orðið sammála um að leggja til, að hv. d. samþykki frv. óbreytt.

Í II. kafla landsbankalaganna frá 1928 eru ákvæði um seðlaútgáfu og hvernig tryggja skuli seðla. Þar er ákveðið, að bankaseðlar skuli sumpart tryggðir með gullforða og auðseljanlegum eignum. Enn fremur með gullforða, sem er í erlendum bönkum, og innistæðum. Frá þessu hefur verið veitt undanþága. Árin fyrir stríð var veitt undanþága frá þessu, en hin mikla innistæðusöfnun erlendis hefur gert þessa undanþágu óþarfa. En s.l. ár hafa innistæður erlendis minnkað að mun, svo að innistæður erlendis eru ekki lengur næg trygging fyrir gullforðanum samkvæmt ákvæðum bankalaganna.

Það er nú mál út af fyrir sig, sem ekki er ástæða til að gera að umræðuefni nú, að þessi seðlatryggingarákvæði l. eru án efa öll úrelt og þyrftu endurskoðunar við. En hér er ekki farið fram á annað í þessu frv. en að undanþága sé gerð þess efnis, að þær skuldir, sem bankinn kann að standa í erlendis og hingað til a.m.k. hafa ekki verið annað en bráðabirgðalántökur, þurfi ekki að dragast frá hinum erlendu innistæðum. Þess má nú geta, að eftir að seðlaútgáfa minnkaði aftur nú fyrir áramótin, breyttist þetta viðhorf þannig, að nægileg trygging var fyrir seðlunum, án þess að þessarar undanþágu nyti við. En hins vegar getur komið að því hvenær sem er, að nauðsynlegt verði, a.m.k. um stundarsakir, að taka bráðabirgðalán, og getur því aftur dregið að því, að tryggingarákvæðum bankalaganna verði ekki fullnægt, nema því aðeins að þessi áður nefnda undanþága verði gerð. — Fjhn. hefur sem sagt ekki séð, að neitt væri athugavert við að gera þetta, og leggur einróma til, að frv. verði samþ. óbreytt.