17.11.1947
Efri deild: 20. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í B-deild Alþingistíðinda. (50)

21. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins o.fl.

Forseti (BSt):

Mér hefur borizt skrifleg brtt. við frv., sem hér liggur fyrir, frá hv. þm. Barð., við 3. gr., að í stað orðanna „í samráði við framleiðsluráð með reglugerð“ í niðurlagi gr. komi: með reglugerð í samráði við framleiðsluráð. Þessi brtt. þarf afbrigði vegna þess að hún er skrifleg og of seint fram komin.