05.03.1948
Efri deild: 75. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 379 í B-deild Alþingistíðinda. (543)

134. mál, eignakönnun

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Herra forseti. Ég vildi fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann tæki málið af dagskrá til næsta fundar, og er það eftir samkomulagi við hæstv. fjmrh. Ég mun þá vera búinn að afla þeirra upplýsinga, sem með þarf.

Ég býst við, að fjhn. komi með brtt. við brtt. hv. þm. N-M., en sú breyt. hefur ekki verið rædd til hlítar. — Ég vildi því óska þess, að umr. yrði frestað og málið tekið af dagskrá.