09.03.1948
Efri deild: 77. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 379 í B-deild Alþingistíðinda. (546)
134. mál, eignakönnun
Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Herra forseti. Það er um þetta mál að segja, að um það voru gefin út brbl., og n., sem fjallaði um það hér í d., taldi rétt að mæla með þessum brbl. eins og þau lágu fyrir og frv. samkvæmt þeim yrði samþ. óbreytt, því þetta er sjálfsagt rétt og þægilegt mál fyrir þá, sem áttu inni hlut innstæðna, 200 kr. eða minna, í sjóði eða banka, að þeir þyrftu ekki að gefa sérstaka yfirlýsingu út af því atriði. En svo er annað, sem kom fram í umr. um þetta mál. Eignakönnunarn. þótti leika vafi á því, hvort ákvæði 6. gr. reglugerðar um eignakönnun hefðu nógu sterka stoð í gildandi l., og þótti því rétt að koma fram með viðaukatill. til þess að tryggja, að á þessu gæti enginn vafi orðið. Fyrst kom fram brtt. frá hv. 1. þm. N–M., en svo varð það samkomulag við hann, að ég kæmi fram með brtt. við brtt. hans. Þó sumt í þeirri brtt. mætti betur fara, t.d. að síðasti aðili, sem skjóta má kæru til, sé fjmrh., fyrir utan dómstólana, þá sáum við ekki á þessu stigi ástæðu til að breyta til frá því, sem er í reglugerðinni nú, því ef nauðsynlegt er að breyta þessu, má gera það á næsta þingi. En þar sem komin er reglugerð um þetta efni, þá töldum við okkar hlutskipti það að setja styrkari stoðir undir þessa reglug., svo að ekki léki á tveim tungum um það, að hún væri í fullum krafti, þegar til hennar kemur. Þess vegna er það mín ósk, og ég hygg n. allrar, að brtt. hv. 1. þm. N-M. verði samþ., þegar búið er að breyta henni samkvæmt till. minni á þskj. 455.