23.10.1947
Efri deild: 8. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í B-deild Alþingistíðinda. (61)

22. mál, jarðræktar- og húsgerðarsamþykktir í sveitum

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Það er um frv. þetta að segja, að landbn. tók það til athugunar og fékk á fund með sér formann verkfærakaupan. Frv. þetta liggur nú fyrir þannig breytt, vegna þess að n. taldi það ekki koma til mála að veita tvisvar sinnum styrk úr ríkissjóði til kaupa á sama verkfæri. Hins vegar er þörf mikil á því að ná í sem mest af ræktunaráhöldum í þágu landbúnaðarins, og mér er tjáð, að eitthvað sé til af notuðum verkfærum hjá hernum, og mundu þau fáanleg. Mér virðist, að ekki sé hægt að setja sig á móti því, að styrkur sé veittur út á þessar vélar, en að sjálfsögðu yrði fylgzt gaumgæfilega með ásigkomulagi þeirra, og ekki veittur styrkur út á neinar aðrar vélar en þær, sem reyndust í nothæfu standi. Þess vegna taldi n. sjálfsagt, að vélarnar yrðu virtar upp á nýtt og styrkurinn miðaður við verð, sem verkfæranefndin telur hæfilegt eftir aldri og ásigkomulagi vélarinnar, miðað við verð nýrra véla af sömu gerð.

Þetta er ekki margbrotið, og mun ég ekki orðlengja það frekar. Við nm. teljum rétt og sjálfsagt að samþ. frv. með áorðinni breytingu.