07.10.1947
Neðri deild: 3. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 466 í B-deild Alþingistíðinda. (612)
12. mál, útflutningur og innflutningur á íslenzkum og erlendum gjaldeyri
Samgmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Á s.l. sumri bárust viðskmrn. upplýsingar um það, að nokkur brögð væru að því, að Íslendingar færu út án þess að afla sér gjaldeyris hjá réttum aðilum og eins að útlendingar, sem hingað kæmu, mundu ekki skila þeim gjaldeyri, sem þeim bæri. Voru talin svo mikil brögð að þessu, að eitthvað þyrfti að gera. Var það ástæðan til þess, að gefin voru út brbl. um útflutning og innflutning á íslenzkum og erlendum gjaldeyri um mánaðamótin ágúst og september, sem hér er leitað staðfestingar á. Í þessum 1. er bannað að flytja peninga úr landi eða til landsins. Sömuleiðis er bannað, að þeir, sem héðan fara, taki með sér nema takmarkaðan gjaldeyri, samtals kr. 50.00 í erlendum gjaldmiðli. Það, sem þar er fram yfir, þurfa þeir að hafa í ávísunum eða öðrum þeim gjaldeyri, sem bankarnir hafa farið höndum um, og þannig tryggt, að allt sé rétt.
Þá er í l. heimiluð rannsókn á farangri og farþegum, sem milli landa fara, sömuleiðis ákvæði um nokkrar skuldbindingar, sem menn verða að undirskrifa, bæði útlendingar, sem koma, og Íslendingar, sem fara, sem eiga að tryggja það, að ekki verði farið bak við þessi lagaákvæði.
Fjárhagsráð hafði með samningu frv. að gera, en síðan var það sent Landsbankanum til athugunar, og breytti hann því nokkuð, en síðan voru l. sett nánast eins og þessir aðilar höfðu gengið frá málinu.
Ég hef ekki meira um þetta að segja, en vil leggja til, að málinu verði að þessari umr. lokinni vísað til fjhn.