19.02.1948
Neðri deild: 60. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 400 í B-deild Alþingistíðinda. (642)

61. mál, sementsverksmiðja

Frsm. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Iðnn. hefur haft þetta mál til meðferðar um hríð og rætt það við ýmsa sérfræðinga, og hefur n. orðið einróma sammála um að leggja til, að frv. þetta verði samþ. með smávægilegri breyt., sem ég vil gera grein fyrir hér á eftir.

Þegar um það er að ræða, hvort skynsamlegt sé að hefja hér sementsgerð, þá þarf að skera úr því, hvort tæknilegir möguleikar eru á því, og í öðru lagi, hvort verksmiðja, sem framleiddi það hér, væri samkeppnisfær við aðflutning sements til landsins. N. hefur ekki haft skilyrði til þess að gera sér þess nákvæma grein, hvort teknísk skilyrði séu hér fyrir hendi til þessa. En hún hefur eftir getu athugað þær upplýsingar, sem fyrir liggja um þetta mál frá sérfræðingum, og rætt þetta mál rækilega við einn af þessum sérfræðingum, og hefur af því sannfærzt um, að eftir því, sem upplýsingar liggja fyrir, þá muni tæknileg skilyrði vera fyrir hendi hér til þess að framleiða gott Portlands sement. — Um hitt, hvort sementsgerðin mundi verða samkeppnisfær um verðlag á sementinu við aðflutning á sömu vöru, er erfitt að gera sér nákvæma grein. Í því efni skiptir það máli fyrst og fremst að reyna að gera sér grein fyrir, hve mikil eftirspurn muni vera eftir sementi á næstu árum og þá að hve miklu leyti verksmiðjan mundi geta notað afkastagetu sína. Og framleiðslukostnaðurinn færi mikið eftir því, að hve miklu leyti verksmiðjan gæti nýtt framleiðslugetu sína og svo hinu, hvaða verð verður á innfluttu sementi. Um þetta er það að segja, að í þeim áætlunum, sem fyrir liggja, er gert ráð fyrir 75 þús. tonnum, sem verksmiðjan geti framleitt af sementi á ári. Á síðasta ári mun sementsnotkun landsins hafa verið svipuð og þetta. En á því ári mun sementsinnflutningur hafa verið meiri hér en á nokkru öðru ári, og svo mikill, að ekki virðist rétt að gera ráð fyrir því, að sementsnotkun verði svo mikil á næstu árum. Fyrir stríð munu hafa verið notaðar 20 til 25 þús. smálestir af sementi á ári að meðaltali. En ekki er ástæða til að gera ráð fyrir, að sementsnotkun muni minnka niður í það hjá landsmönnum. Nú er sement notað til margra fleiri mannvirkja hér á landi en þá tíðkaðist. Auk þess mundi sennilega færast í vöxt notkun sements, ef völ væri á íslenzku sementi.

Í öðru lagi reyndi n. að gera sér grein fyrir, hver áhrif það mundi hafa á framleiðslukostnað þessarar verksmiðju, ef framleiðslan yrði miklu minni en sementsþörf landsmanna hefur verið tvö undanfarin ár. Gert er ráð fyrir, að framleiðslukostnaður verði, með óbreyttu verðlagi á vinnu og öðru, 120 kr. á smálest, og gerðu verkfræðingarnir ráð fyrir, að hann mundi kannske vaxa og verða allt að 136 kr. á smálest. Innflutningsverð á sementi er nú 189 kr. pr. smálest. Framleiðslukostnaður mætti því vaxa um allt að því 53 til 69 kr. á smálest, til þess að verksmiðjan yrði ekki samkeppnisfær við innflutning á sementi, eftir þessum útreikningum sérfræðinganna. Og aðalatriðið í þessu sambandi er, að verksmiðjan yrði samkeppnisfær á þeirri stærstu innflutningshöfn á landinu, sem er Rvík. Og það virðist mega gera ráð fyrir, að flutningskostnaður yrði ekki svo mikill frá Vestfjörðum á sementinu, að verksmiðjan yrði ekki samkeppnisfær hans vegna. Hitt er annað mál, að hæpið kann að vera, að sementsverðið verði eins hátt erlendis og það er nú, og hefði það áhrif á samkeppnishæfni verksmiðjunnar við erlent sement. Verð á sementi fyrir stríð var 70 til 80 kr. á smálest, og svo kom gengislækkunin 1939, og má bæta henni við verðið, svo að verðið hækkar raunverulega sem henni nemur. Ef gert er ráð fyrir, að sement fari aftur niður í það verð, sem var á því 1930–1940, má segja, að vafasamt megi telja, að verksmiðjan gæti verið samkeppnishæf. En fróðir menn telja, að ekki séu líkindi til þess, að verð á sementi muni lækka — a.m.k. á næstu árum — svo mikið. Og auk þess má verð á sementi lækka talsvert frá því. sem nú er og hefur verið á undanförnum árum. til þess að verksmiðjan yrði ekki samkeppnisfær miðað við innflutt sement, svo að henni stafaði hætta af. En aðalatriðið er, að verksmiðjan gæti verið samkeppnisfær við innflutning á sementi. Verðbreyt. á sementi á heimsmarkaðinum eru nokkuð miklar, því að verulegur hluti sementsverðsins er flutningsgjöld.

Einn af höfuðkostum þess að hafa innlenda framleiðslu á slíkum efnum, sem hér er um að ræða, er, að landið sem heild stendur mun betur að vígi með því að hafa innlenda framleiðslu á þeim, ef um verðhækkun á innfluttum vörum er að ræða, vegna þess að sú verðhækkun kemur þá landinu í heild til góða sem hagur fyrirtækisins og gerir því þar með kleift að selja við þeim mun lægra verði síðar.

Þá er þess að geta, að það getur haft verulega þýðingu að hafa það öryggi, að völ sé á jafnnauðsynlegu byggingarefni og sementi í landinu. Það ástand kann að skapast í alþjóðamálum. þó að við höfum að vísu ekki orðið fyrir því óláni enn að þurfa að skorta slíkt byggingarefni, þá geta orðið erfiðleikar á því fyrir okkur að afla sements frá öðrum löndum, og getur þá reynzt gott að eiga völ á slíku byggingarefni í landinu sjálfu.

þó að það kosti nokkurn gjaldeyri að koma upp fyrirtæki eins og þessu, mundi það, þegar það væri komið upp, spara gjaldeyri þjóðarinnar, þegar fram í sækti, og það til muna.

Ég skal svo að síðustu gera örlitla grein fyrir þeim brtt., sem n. gerir við 7., 8. og 9. gr. frv. Í þessum brtt. er engin veigamikil efnisbreyt. í 7. gr. frv. var ákveðið um skatt og útsvar verksmiðjunnar og gert ráð fyrir, að verksmiðjan greiði 1/2% af kostnaðarverði framleiðslunnar hvert ár til þess sveitarfélags, sem hún er rekin í, þó ekki yfir 25% af útsvörum hlutaðeigandi sveitarfélags, og að aldrei megi þó leggja hærra útsvar á verksmiðjuna en nemur 50% af nettótekjum hennar. Við töldum ekki ástæðu til að miða þetta gjald að neinu leyti við kostnaðarverð framleiðslunnar, heldur töldum nægilegt að telja hana útsvarsskylda til viðkomandi sveitarfélags, en ákveða, að aldrei mætti þó leggja hærra útsvar á hana en næmi helmingi af tekjuafgangi hennar eða fjórðungi af samanlögðum útsvörum sveitarfélagsins.

Síðari brtt. n. er við 8. og 9. gr. frv. Í 8. gr. frv. er gert ráð fyrir, að afskrifa skuli á ári hverju 3% af fasteignamati húsa. N. taldi ástæðulaust að leggja svo mikla afskriftakvöð á verksmiðjuna, og taldi eðlilegt, að henni yrði gert að skyldu að afskrifa a.m.k. 3% af byggingarkostnaði húseigna sinna. Lóðir hins vegar eru ekki afskrifaðar, og er það leiðrétt, sem í frv. stóð um það. Og enn fremur er gert ráð fyrir, að verksmiðjunni sé skylt að afskrifa a.m.k. 10% af kostnaðarverði véla og annarra áhalda, eftir frv. Það mun eðlilegt vera að skrifa ýmis tæki meira niður á ári en um 10%. N. taldi mestu skipta í þessu sambandi, að til yrði tekið, hvað verksmiðjan ætti að afskrifa þessa hluti minnst, en láta svo stjórn þessarar verksmiðju um það, hvort hún treysti sér til að afskrifa eitthvað meira í þessu efni á ári. Gerði n. brtt. um þetta atriði samkvæmt því. — Enn fremur leggjum við til í n., að tekjuafgangur allur renni í varasjóð, þannig að verksmiðjan geti ekki orðið tekjuöflunartæki fyrir ríkissjóð, heldur skuli sjálf eiga tekjuafgang sinn að öðru leyti en því, sem honum yrði varið til óhjákvæmilegra greiðslna.

Þetta eru þær breyt., sem n. leggur til, að gerðar verði á frv., og eru þær mjög smávægilegar.

Að síðustu vildi ég geta þess, að hér er einungis um heimildarlöggjöf að ræða. Ríkisstj. hefur lagt þetta frv. fram í því formi, að það yrði heimildarlög, og n. hefur talið eðlilegast, að málið verði afgreitt í því formi. Ég geri ráð fyrir, að ef ráðizt verður í þessar framkvæmdir, sé henni nauðsynlegt að láta rannsaka málið og endurskoða þær áætlanir, sem gerðar hafa verið, enda þótt sá, sem hefur haft þær með höndum, sé verkfræðingur og hafi lagt í þær mikla vinnu, því að gera má ráð fyrir, að það þurfi að yfirfara alla áætlunina. Og þess vegna höfum við talið eðlilegast að afgreiða þetta mál í heimildarlagaformi, og reyndar nægilegt, til þess að þessar framkvæmdir verði gerðar. Ef í ljós kemur, að skynsamlegt sé að ráðast í þær, mun ríkisstj. vafalaust nota heimildina og hefjast handa um að byggja verksmiðjuna.