19.02.1948
Neðri deild: 60. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 409 í B-deild Alþingistíðinda. (649)
61. mál, sementsverksmiðja
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Ég gerði ekki ráð fyrir, að ég mundi taka þátt í þessari umr.. en ástæðan til þess, að ég kvaddi mér hljóðs, er brtt. sú, sem fram hefur komið frá hv. þm. Siglf., en sams konar till. bar hann fram í iðnn. Mörgum okkar í iðnn. leizt svo á, að æskilegt væri, að þessi brtt. næði fram að ganga, en við nánari athugun komumst við á þá skoðun, að það væri ekki hyggilegt. Við erum, að ég held allir, sem sæti eigum á Alþ., sammála um það. að nauðsyn heri til, að byggð verði sementsverksmiðja, og við sjáum mikinn þjóðhagslegan hagnað af því fyrirtæki, ef áætlanir þær, sem nú liggja fyrir í málinu, standast. En reynslan hefur kennt okkur, að fáar áætlanir standast, þó að þær hafi litið fallega út á pappírnum og virðist hafa fengið vandlegar yfirveganir og verið reiknaðar út eftir beztu vitund, og ég efast ekki um, að þeir verkfræðingar, sem hér hafa verið að verki, hafi unnið verk sitt af samvizkusemi. En margar áætlanir — og má segja flestar — fyrri ára hafa ekki staðizt. Oft hefur það verið svo, að ráðizt hefur verið í framkvæmdir fyrir það, að áætlanir litu vel út. En er til kastanna kom. hafa framkvæmdirnar oft farið helming fram úr áætlun, og stundum hefur kostnaðurinn orðið þrisvar sinnum meiri en gert var ráð fyrir í upphafi. Ég gæti trúað, að áætlanir þær, sem hér liggja fyrir um þetta mál, muni standast betur en margar aðrar, en reynslan hefur kennt okkur alþm., að of margar áætlanir hafa ekki staðizt, og af því eigum við að hafa lært. Ég álít hyggilegt að draga framkvæmd þessa máls enn um stund og endurskoða þær áætlanir, sem fyrir eru. Hv. þm. Siglf. segir í brtt. sinni, að ríkisstjórnin skuli láta hefja byggingarframkvæmdir á árinu 1948. Það væri mjög æskilegt, að slíkt gæti orðið, en ég tel rétt að nota þann tíma til þess að athuga allar áætlanir nánar. Ég er því hlynntur, að hafizt sé handa um byggingu sementsverksmiðju, er nákvæm athugun hefur leitt í ljós, að þær áætlanir, sem fyrir liggja, séu réttar. Eftirminnilegt dæmi er það, er áburðarverksmiðjan var til umr. hér á Alþ., og þá lá við, að það frv. yrði samþ. án þess að það væri athugað frekar. Reynslan hefur sýnt, að það hefði verið rangt að byggja áburðarverksmiðju eftir því frv. Nákvæm rannsókn hefur leitt í ljós, að það hefði ekki verið heppilegt. Af þessu ættum við að hafa lært það, þegar á ferðinni er frv., sem kosta mun 15 millj. kr., að geta ríkisstj. tíma til þess að athuga og endurskoða þær áætlanir, sem fyrir liggja, áður en hún ræðst í framkvæmdir. Við nánari rannsókn gæti komið í ljós eitt og annað, sem betur færi með öðru fyrirkomulagi en nú er lagt til í frv. Það gæti einnig komið í ljós, að heppilegra væri að byggja þessa verksmiðju annars staðar en nú er lagt til. T.d. er nú gert ráð fyrir, að reist verði dieselorkuver til þess að knýja verksmiðjuna, en slíkt virðist nú vera fráleitt, ef hægt væri að komast hjá því í olíulausu landi. Er ómögulegt að staðsetja verksmiðjuna þar, sem hagnýta mætti vatnsorkuna?
Ég veit, að ríkisstj. ætlar ekki að leggjast á þetta mál, en það er ekki rétt að flana að neinu. Það er ekki rétt að fara aftur að eins og við Skeiðsfossvirkjunina og byggingu nýju síldarverksmiðjanna. Samkvæmt frv. er gert ráð fyrir. að verksmiðjan kosti 15 millj. kr. Og ef allar áætlanir standast nú á borð við áætlanirnar um síldarverksmiðjurnar eða Skeiðsfossvirkjunina, mundi verksmiðjan kosta 40–50 millj. kr. Vegna þeirrar dýrkeyptu reynslu virðist mér hyggilegast að flana ekki að neinu, en gefa hæstv. ríkisstj. tíma til þess að endurskoða málið. Ég er hv. þm. Siglf. sammála um að miða afköst verksmiðjunnar við 75 þúsund smálestir á ári. Það er engan veginn of mikið, og notkun sements í landinu mun aukast að miklum mun frá því, sem nú er. Búast má við því, að mun meira sement verði notað til vega og alveg verði hætt að byggja hús úr timbri, en í stað þeirra steinhús. Ef miðað er við það, hversu mikið sement er notað í landinu, er eðlilegast, að afköst verksmiðjunnar verði miðuð við 70–80 þús. smálestir árlega.
Ég skal nú ekki fjölyrða frekar um málið, en mér fannst vera ástæða til að minnast á fjárhagshlið málsins, því að hún er ekkert aukaatriði. Ríkisstj. verður einnig að gera sér grein fyrir, hvernig hún ætlar að afla fjár til verksins. Það er ekki nóg, þó að bankastjórar Landsbankans opni upp á gátt fjárhirzlur bankans, því að helmingur kostnaðarins við bygginguna verður að greiðast í gjaldeyri. Ríkisstj. þarf einnig að glíma við það, að útflutningurinn hrökkvi fyrir nauðsynlegum innflutningi á nauðsynjavörum. Það eru margar framkvæmdir, sem búið er að ákveða og þola enga bið. Og við hv. 2. þm. Reykv. erum áreiðanlega sammála um, að Sogsvirkjunin megi ekki bíða lengi. En hvað kostar það fyrirtæki? Fyrir tveimur árum var áætlað, að það fyrirtæki kostaði 50 millj. kr. En eftir nýjustu heildaráætlun um þessa virkjun er kostnaðurinn hvorki meiri né minni en upp á 60 millj. kr. Og þar af verður ríkissjóður að sjá fyrir helmingnum, og þar af verða að vera 2 millj. kr. fyrir hendi í erlendum gjaldeyri. Þetta þarf að vinna á tveimur næstu árum, ekki siður en að byggja sementsverksmiðju. Og það er hægt að telja upp fleira, eins og hv. þm. Ísaf. sagði. Hann nefndi 7–8 verksmiðjur, sem ríkisstj. hefur heimild til þess að byggja eða ráðast í að láta reisa. Hvað ætli þessar verksmiðjur kosti? Það er ekkert aukaatriði, að reynt sé að gera sér grein fyrir því, hvernig á að fara að því að finansera þessi fyrirtæki, ekki aðeins finansera þau þegar þau eru komin upp, heldur sjá fyrir byggingarkostnaði á þeim. (EOI: Eru þessi fyrirtæki á áætlun í ár?) Þessi fyrirtæki eru ekki á áætlun í ár, og því síður er til áætlun um byggingu þessarar verksmiðju í ár.
Ég ætla ekki að orðlengja um þetta meira, en vildi óska þess, að frv. þetta og áætlun sú, sem því fylgir, mætti standast, og að ríkisstj. treysti sér til að ráðast í að byggja sementsverksmiðju hér á landi sem fyrst. Og enda þótt við álitum þá áætlun, sem hér fylgir, ekki svo nákvæma, að það mætti 100% treysta henni, vitum við samt. að sá maður, sem gert hefur hana, hefur gert hana þannig, að við getum álitið, að það megi treysta honum a.m.k. ekki síður en mörgum öðrum í þessum efnum.