27.02.1948
Neðri deild: 65. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 442 í B-deild Alþingistíðinda. (675)
61. mál, sementsverksmiðja
Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson):
Herra forseti. Ég ætla ekki að ræða þett3, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði um Landsbanka Íslands. Ég vil aðeins minnast ofurlítið á þær umr., sem orðið hafa út af brtt. á þskj. 393.
Það er kunnugt, að þessi brtt. hefur verið gerð með samkomulagi við hv. þm. V-Ísf. Ég er ekki nógu kunnugur þarna til þess að vita nákvæmlega, hvernig staðhættir eru. Hins og kunnugt er. þá er fyrirhugaður staður verksmiðjunnar norðan Önundarfjarðar. Það hagar þannig til, að svo að segja allt hráefnið verður tekið úr öðrum hrepp, en af hagkvæmum ástæðum verður að byggja verksmiðjuna í hinum hreppnum, og má því segja, að þessi starfræksla yrði að nokkru leyti í báðum hreppunum og því verði að skipta útsvarsmöguleikunum á milli þessara tveggja aðila. Ég sé ekki undir þessum kringumstæðum, að þetta sé ósanngjarnt, þegar þannig er ástatt. að báðir hrepparnir leggi það til, sem þarf til þess að starfræksla verksmiðjunnar geti hafizt. Og þar sem annar hreppurinn leggur til land undir verksmiðjuna, en hinn hráefnið, þá þykir ekki óeðlilegt, þó að ráðstafanir séu gerðar til þess, að útsvarið geti skipzt milli þessara tveggja hreppa. Þar sem hér stendur sérstaklega á og gert er ráð fyrir, að svo að segja allt hráefnið til verksmiðjunnar verði tekið á einum og sama stað, þá held ég, að það ætti ekki að geta skapað almennt fordæmi um yfirfærslu á útsvörum á hverja smáefnistöku, sem fram fer víðs vegar um landið. Ég held, að því sé vel fyrir komið að ganga inn á samkomulag, sem þarna er gert, til þess að það valdi ekki hættulegu fordæmi í útsvarsmálum landsins.