16.03.1948
Efri deild: 79. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 474 í B-deild Alþingistíðinda. (717)
135. mál, dýrtíðarráðstafanir
Brynjólfur Bjarnason:
Herra forseti. Ég var ekki við, þegar þetta mál var afgr. í fjhn. Hins vegar var ég við umr. um það í n., en það var þá ekki afgr. vegna þess, að ég bar fram eina brtt., og var ákveðið þá að ræða hana við hæstv. ríkisstjórn.
Ég hef ákveðið að bera fram þessa brtt. nú, og vænti ég þess, að henni verði útbýtt nú á þessum fundi, og vil ég lýsa henni nú þegar.
Frv. þetta sýnir bezt, hversu hroðvirknislega hefur verið gengið frá l. um dýrtíðarráðstafanir, þar sem bráðabirgðalög þessi voru sett skömmu eftir að l. gengu í gildi, og í athugasemdunum, sem með þessum lögum eru, segir: „Komið hefur í ljós, að ákvæði 7. kafla laga nr. 128 1947, um dýrtíðarráðstafanir, er varða söluskatt af umboðssölu, eru lítt framkvæmanleg og hafa allverulegan kostnað og óþægindi í för með sér“ o.s.frv. Þetta er sagt rétt þegar verið er að byrja að framkvæma lögin.
Ef þetta frv. nær fram að ganga, þá orkar það ekki tvímælis, að þar sem iðnaðarmenn hafa samtök um kaup á þessum vörum, þá verður útkoman sú, að þeir verða að borga tvöfaldan söluskatt, fyrst af efnivörunum og síðan af vörunni fullunninni. Nú þykir mér hafa verið gengið svo nærri hagsmunum íslenzks iðnaðar á ýmsa lund, að það væri ekki ósanngjarnt, þó að iðnaðarmenn fengju að sleppa með að borga einfaldan söluskatt. Það hefur vissulega verið nægilega gengið nærri hagsmunum þeirra með hinum auknu tollum á vörum þeirra og þá ekki sízt með þeim miklu hömlum, sem lagðar hafa verið á þessa atvinnugrein með þeim vöruskorti, sem nú á sér stað í landinu fyrir aðgerðir fjárhagsráðs, þannig að mikill hluti iðnaðarins í landinu má nú heita stöðvaður.
Ég hef þess vegna lagt fram brtt. við þetta frv., sem fer fram á, að efnivörur til iðnaðar séu undanþegnar söluskatti. Hæstv. forseti var að lýsa brtt. áðan, og ég geri ráð fyrir að hún sé á leiðinni.
Ég vænti, að hv. d. vilji sýna þá sanngirni að samþ. þessa brtt.