22.03.1948
Neðri deild: 79. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 477 í B-deild Alþingistíðinda. (730)
135. mál, dýrtíðarráðstafanir
Frsm. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Vegna fram kominnar brtt. vil ég segja það, að þetta var rætt við hæstv. fjmrh. um efnivörur til iðnaðar. Það kom greinilega fram hjá honum, að eins og l. eru orðuð og með þeim heimildum, sem þar eru, telur hæstv. ríkisstj., að við framkvæmdina á þeim muni hún sjá svo um, að þessar vörur yrðu ekki hafðar undir söluskattinum. Mér skilst, að þessi brtt. sé fram komin til þess að fyrirbyggja þetta. Eftir þessar viðræður við hæstv. fjmrh. teljum við nm. ekki þörf á þessari brtt., því í framkvæmdinni verður séð fyrir þessu.