18.03.1948
Efri deild: 81. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 488 í B-deild Alþingistíðinda. (747)
187. mál, síldarvinnslutæki o.fl.
Steingrímur Aðalsteinsson:
Herra forseti. Mig langar til að minnast örfáum orðum á eitt atriði, sem að vísu er ekki í beinn sambandi við sjálfa lántökuna, heldur þá framkvæmd, sem á að verja fénu í, það er byggingu síldarverksmiðju við Faxaflóa. Hæstv. fjmrh. upplýsti við 1. umr. þessa máls, að myndað hefði verið hlutafélag til að koma upp þessari verksmiðju, síldarverksmiðjur ríkisins legðu fram einn fjórða af hlutafénu, Reykjavíkurbær einn fjórða, Óskar Halldórsson einn fjórða, og félag, sem útgerðarmenn hefðu stofnað, einn fjórða hluta. Mér er tjáð, að þátttaka þessara útgerðarmanna í félagsstofnuninni (að vísu er þetta ekki nema lítill hluti allra útgerðarmanna) sé bundin því skilyrði, að veiðiskip þeirra hafi forgang um löndun hjá þessari verksmiðju. Nú er það kunnugt, að vegna þess, hve síldveiðarnar brugðust s.l. sumar, er talsverður hluti síldarútvegsmanna svo aðþrengdur fjárhagslega, að þessir menn eiga þess ekki kost að leggja fram fé í þessa verksmiðju og missa þá jafnframt forgangsrétt um löndun. Hins vegar er það gefið, að einmitt vegna fjárhagsörðugleikanna, sem gerðar hafa verið sérstakar ráðstafanir út af hér á Alþ., að þá er þessum mönnum alveg sérstök þörf á að nota síldarverksmiðjuna hér við Faxaflóa við ekki lakari skilyrði en aðrir útgerðarmenn. Ef hins vegar töluverður hluti útgerðarmanna nyti forréttinda og forgangs um notkun verksmiðjunnar, þá yrðu hinir, sem geta nú ekki lagt fram hlutaféð á móti forréttindunum, miklu lakar settir, og margir þeirra gætu ekki stundað þessar veiðar vegna lakari aðstöðu en hinir. Nú er það hins vegar venja hjá SR, sem eru hér aðili að einum fjórða hluta, að ráða til sín samningsbundin skin á síldarvertíðum, og þessi skip hafa hingað til verið öll jafnrétthá. Ég álít, að því prinsipi eigi að framfylgja eins við þessa verksmiðju, og það því fremur sem nú kemur í ljós, að til þess að verksmiðjan verði reist, þarf ekki aðeins þessa þátttöku síldarverksmiðjanna, heldur einnig aðstoð ríkisvaldsins sjálfs, þ.e.a.s. að ríkið þarf að taka það gjaldeyrislán, sem talað er um að taka þurfi til að kaupa þessar vélar, og það er fyrst og fremst fyrir forgöngu ríkisvaldsins, að þessi verksmiðja verður reist.
Ég vil því beina þeirri ósk til hæstv. sjútvmrh., sem er flytjandi þessa máls, að sú aðstoð, sem veitt er af hálfu ríkisvaldsins, og sú þátttaka síldarverksmiðja ríkisins, sem fyrirhuguð er til framgangs þessu máli, verði notuð til þess, að öllum útgerðarmönnum, sem síldveiði stunda, verði veittur jafn réttur, eins og gert er við síldarverksmiðjur ríkisins, til að koma þangað þeirri síld, sem þeir veiða á hverjum tíma, en enginn hafi þar forgangsrétt til löndunar og þar með sérstaka aðstöðu fram yfir aðra útgerðarmenn.