18.03.1948
Efri deild: 81. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 489 í B-deild Alþingistíðinda. (748)

187. mál, síldarvinnslutæki o.fl.

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Þessar aths., sem hv. 6. landsk. kom hér með, eru þess eðlis, að það er ekki nema eðlilegt, að slíkar raddir komi fram. Nú er það þannig, að ég á það enn undir þinginu að fá heimild til þessarar þátttöku ríkissjóðs, en ég hef gefið kost á því að leyfa síldarverksmiðjum ríkisins þátttöku að 14 hluta og að leggja fram 1250 þús. kr. sem hlutafé í Hæring til kaupverðs og rekstrar síldarbræðsluskips, að fengnu samþykki Alþingis. Hv. þm. minntist á þessi tengsl, sem hér eiga að verða milli útgerðarmanna, Reykjavíkurbæjar og ríkisins um sérstaka aðferð til að koma upp síldarverksmiðju á þann veg, að hægt verði að nota þá verksmiðju bæði á sumar- og vetrarvertíð. Satt að segja varð ég feginn, þegar það kom í ljós, að útgerðarmenn vildu leggja fram fé til að koma þessari verksmiðju upp, þar sem þeir lögðu fram fúsir og frjálsir þetta hlutafé. En það er alveg rétt, að innan takmarka þessa félagsskapar er það skilyrði sett, að þeir skuli ganga fyrir með löndun hér syðra. Ég setti aftur á móti það skilyrði fyrir, að síldarbræðslur ríkisins yrðu þátttakendur, að síldarverksmiðjurnar eigi þess kost að fá skipið á leigu til Norðausturlands á sumarvertíð og að allir hafi þar jafna aðstöðu til afgreiðslu, hvort sem þeir eru hluthafar eða ekki.

Það er ekki nema eðlilegt, að sumir líti svo á, að það sé óviðunandi lausn á málinu, að þeir, sem hlut eiga í þessari verksmiðju, skuli hafa þar forgangsrétt, en þó verður það ekki kallað óeðlilegt, að þeir, sem leggja fé fram frá bátum sínum í þetta fyrirtæki, njóti þess á einhvern hátt. Hinir bátarnir njóta þess einnig óbeint á þann hátt, að með því er greitt fyrir því, að þeir fái frekar aðgang að þeim verksmiðjum, sem í landi eru, og þar er fyrirhuguð geipimikil aukning, og þar þykist ég sjá hilla undir hagræði fyrir okkur hina, sem ekki treystum okkur til að verða hluthafar í þessari nýju verksmiðju. Ég skal eftir megni vinna að því, meðan mín nýtur við, að þessi félagsskapur verði öllum að sem mestu hagræði, en ég hef ekkert vald til að lofa að setja sérstök skilyrði fyrir veitingu gjaldeyrisleyfisins, því að það er ekki innan míns verkahrings. Ég skil hins vegar röksemdir hv. þm. og þykist vita, að hann muni líka meta þær röksemdir, sem eru hliðstæðar þeim, og að við séum báðir sammála um það, að hvað sem öðru líður, sé aukning síldarverksmiðjanna mikið framfaraatriði bæði fyrir væntanlega síldarvertíð hér sunnanlands og eins norðanlands. Þetta vil ég segja, hvað þetta mál snertir, og vona, að hv. 6. landsk. þm. fallist á skoðun mína.

Þá vil ég út frá því, sem hann sagði áður, víkja að þeirri skrifl. brtt., sem ég flutti, og þeim orðum, sem ég lét falla um, að fjárhagsráð hefði dálítið lausari hendur en nú er, eins og frv. horfir nú við. Ég vil taka það fram, að þetta fé átti ekki að verða eyðslueyrir fyrir nauðsynjavörur eða því um líkt, heldur eingöngu greiðast fyrir innflutning á „kapítalvörum“, en svo hafa verið nefndar vörur og tæki, sem farið hafa til að efla atvinnu, samgöngur og því um líkt. M.ö.o. þetta fé mætti að einhverju leyti nota í slíku skyni eftir mati fjárhagsráðs og annarra innflutningsyfirvalda. Þetta vildi ég segja til skýringar og glöggunnar á því, að hverju brtt. stefnir.