22.03.1948
Neðri deild: 78. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 492 í B-deild Alþingistíðinda. (757)

187. mál, síldarvinnslutæki o.fl.

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Svipuð eða sams konar fyrirspurn og hv. 2. þm. Reykv. bar hér fram nú var borin fram til mín af einum hv. flokksbróður hans í Ed. varðandi þetta mál. — Lánsáform þetta er komið til vegna þess, að dollaraskortur er nú svo mikill hér, að sýnt þótti, að ekki yrði hægt í tæka tíð að efna til þeirra kaupa á vélum og tækjum til síldarvinnslu, sem til stendur að kaupa, nema einhverjar sérstakar ráðstafanir væru gerðar til þess að afla gjaldeyris utan þess eðlilega ramma, þ.e.a.s. annars gjaldeyris en þess, sem til fellur við afurðasölu okkar, og þá með láni.

Varðandi eftirgrennslan þm. get ég sagt, að eftir þessu láni er ekki leitað á neinum nýjum eða áður ókunnum grundvelli, heldur aðeins fa~rið fram á lánveitingu eins og gerist og gengur, þegar beðið er um lán, og geri ég ekki ráð fyrir, að um neina skilmála verði að ræða — ef þetta lán fæst á annað borð — aðra en trygging,u og afborganir og vexti. Þetta yrði ekki nein óvenjuleg lántaka, heldur blátt áfram eins og áður hefur verið, þegar við höfum neyðzt til þess að leita út fyrir landið um lán.