15.03.1948
Efri deild: 78. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 505 í B-deild Alþingistíðinda. (777)
178. mál, fiskmat o.fl.
Lárus Jóhannesson:
Herra forseti. Það er aðeins út af einni brtt. hv. meiri hl. n., að ég kvaddi mér hljóðs. Hann leggur til, að 3. lið 6. gr. frv. verði breytt þannig: „Einn yfirfiskmatsmaður á Austurlandi með búsetu á Seyðisfirði eða Norðfirði.“ Ég sé ekki ástæðu til að vera að breyta um búsetu þessa manns, sem hefur verið heimilisfastur á Seyðisfirði, frá því fiskmat var stofnað þarna, og því siður er ástæða til þess, þar sem vitað er, að Seyðisfjörður liggur miklu betur við samgöngum austanlands heldur en Norðfjörður, bæði til sjávar og þó sérstaklega við landsamgöngum. Og þetta er því meir áberandi, þegar athuguð er stækkun svæðis yfirfiskmatsmanns Austurlands til norðurs, þar sem búast má við mikilli veiði við Þórshöfn, þegar hafnarframkvæmdum þar hefur verið komið í kring.
Ég vil líka leyfa mér að leggja áherzlu á það, sem frsm. n. tók fram, að þessi breyt. er gerð á móti vilja þess manns, sem mesta reynslu og þekkingu hefur á þessum málum, hr. Sveins Árnasonar yfirfiskimatsstjóra, og þarna hefur hann því meiri sérþekkingu, þar sem hann hefur sjálfur verið yfirfiskimatsmaður Austurlands um áratugi. Er því mjög viðurhlutamikið að ganga á móti eindregnu áliti hans. — Það eru hins vegar ekki nokkur rök fyrir þessari brtt., að það gæti komið fyrir, að maður frá Norðfirði settist í þetta starf, sem ætti þar hús og þyrfti að selja það, því að það er venjan að hafa ákveðna staði, þar sem hinir ýmsu embættismenn eiga að vera, sem eru valdir með tilliti til þess, hvar þeim bezt hentar að sitja samkvæmt embættunum, og þótt slíkt komi fyrir, að húsasala eða húsaskipti þurfa að fara fram, ef maður úr öðru héraði tekur við embættinu, getur það engin áhrif haft í þessum efnum, enda stendur þetta mál þannig nú, að engin ástæða er til að breyta um þann yfirmatsmann, sem nú gegnir því starfi á Austurlandi, og hefur fiskimatsstjóri sagt mér, að hann sé langhæfasti maðurinn á Austurlandi til þess að gegna starfinu, og hann hefur einmitt búsetu á Seyðisfirði. Mér finnst því engin ástæða til að fara að breyta þessu, og mætti þá t.d. alveg eins breyta öðrum liðum 6. gr. og segja, að yfirfiskmatsmaðurinn á Vestfjörðum skuli hafa búsetu á Ísafirði eða Patreksfirði og yfirfiskmatsmaðurinn á Norðurlandi hafa búsetu á Akureyri eða Siglufirði.
Ég vil því vona, að hv.d. sjái sér fært að fella þessa till. n., og vil biðja hæstv. forseta að bera þennan lið sérstaklega upp við atkvgr.