15.03.1948
Efri deild: 78. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 508 í B-deild Alþingistíðinda. (780)
178. mál, fiskmat o.fl.
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti. Ég vil aðeins segja örfá orð. Ég vona, að það verði ekki til þess að tefja málið, að þessi brtt. verði tekin aftur til 3. umr. Hv. form. sjútvn. er það röskur til verka, og ég treysti hæstv. forseta til þess að taka málið snarlega aftur á dagskrá.
Út af því, sem hv. 3. landsk. sagði í ræðu sinni, þá er ég sammála honum um það, að óheppilegt er, að matsmenn séu verkstjórar, en þetta er auðvitað til komið vegna þess, hve atvinnugrein þessi er ný, og því fáir, sem hafa nasasjón af þessu nema verkstjórarnir, og frekast, að þeir viti þar jafnlangt nefi sínu. Því hefur verið horfið að þessu, sem ég álít óforsvaranlegt að viðhalda, því að það er á móti allri venju um saltfisksmat, og gilda um það strangar reglur varðandi fiskmatsmennina, að þeir séu ekki atvinnulega háðir framleiðendum fisksins.
Skal ég svo ekki tefja umræður með því að orðlengja þetta frekar.