18.03.1948
Efri deild: 81. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 510 í B-deild Alþingistíðinda. (785)

178. mál, fiskmat o.fl.

Frsm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Sjútvn. tók aftur til 3. umr. brtt. við 6, gr. ásamt undirliðum. N. hefur haldið fund um málið og orðið sammála um að bera þær fram á ný þannig breyttar eins og þær eru á þskj. 547. A-liðurinn er óbreyttur, b-, e-, og d-liður eru aðeins afleiðing af því, sem á undan er komið, en e-liðurinn el. á þá leið, að eftir 5. tölulið komi ný málsgr. svo hljóðandi, með leyfi forseta:

„Auk þeirra yfirfiskmatsmanna, sem skipaðir eru samkv. þessari grein, er ráðh. heimilt, ef hann felur á því brýna nauðsyn til tryggingar fullkomnu mati fisks, að setja um stundarsakir einn yfirfiskmatsmann til viðbótar á Suðvesturlandi að fengnum tillögum fiskmatsstjóra“.

Að lokum er brtt. við 20. gr., að l. öðlist gildi 1. jan. 7949.

það varð ekki samkomulag um það í n. að taka aftur upp brtt. um að bæta við Norðfirði, og þess vegna er sú till. ekki borin fram aftur.