18.03.1948
Efri deild: 81. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 510 í B-deild Alþingistíðinda. (786)
178. mál, fiskmat o.fl.
Sigurjón Á. Ólafsson:
Herra forseti. Það eru aðeins nokkur orð til að undirstrika það, sem hv. frsm. hefur sagt, að ég, sem hreyfði ágreiningi við 2. umr., hef fallizt á þá miðlunartill., sem hann hefur lýst. En ég vil geta þess um leið, að ég taldi rétt að ganga inn á þetta samkomulag, því að ég reikna með því, að til þessarar heimildar þurfi að gripa, því að það lá fyrir n. áskorun frá stjórn hraðfrystihúsanna, að nauðsyn væri, að fiskmatsmennirnir yrðu fleiri en til stóð. Get ég að svo komnu máli sætt mig við það, þar sem ber að sama brunni og ég hef lýst.