11.03.1948
Sameinað þing: 52. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 584 í B-deild Alþingistíðinda. (851)
129. mál, fjárlög 1948
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti. Ég vil þakka fjvn. og þá einkum þeim meiri hl., er mest hefur til málanna lagt, fyrir þau störf, sem n. hefur lagt í það að athuga það frv. til fjárl., sem lagt var hér fram eftir áramótin. Eins og frsm. réttilega minntist á, sá ég mig tilknúinn eftir þá breyttu aðstöðu, sem varð við það, að dýrtíðarlöggjöfin var samþ. hér á þ. rétt fyrir áramótin, að semja að mestu leyti upp fjárlagafrv. og leggja það fram í breyttri mynd, enda var það í fullu samræmi við vilja hv. fjvn.
Eins og getið er um í nál., hefur margvísleg samvinna átt sér stað með n. og fjmrn. og raunar öllum ráðuneytunum. En að því er snertir fjmrn., skal ég við það kannast, að ég hef ekki í öllum atriðum getað veitt n. svo fullar upplýsingar sem hún hefur beðið um, og á ég þar sérstaklega við atriði varðandi launatekjur ýmissa starfsmanna ríkisins. Þetta gat ráðuneytið ekki leyst eins vel af hendi og á varð kosið, þar eð sækja þurfti upplýsingar frá ýmsum stöðum, sem þar að auki var erfitt að fá. En þó ætla ég, að sú skrá, sem okkur tókst að afgreiða til n., veiti gleggri upplýsingar en hv. n. hefur áður átt kost á að fá. Ég vil svo taka það til greina, sem hv. frsm. n. drap á, að ég mun sjá til þess, á meðan mín nýtur við, að athugunum á þessu verði haldið áfram sem og öðrum athugunum til nokkurs sparnaðar á stjórnarkostnaði ríkisins og þá með það fyrir augum, að eitthvað verulegt verði í þessu efni lagt fyrir næsta þing.
Það er ýmislegt, eins og vænta mátti í svo ýtarlegri og langri ræðu eins og þeirri, sem hv. frsm. n. hélt hér nú, sem gera mætti að frekara umræðuefni, og þótt ég fari ekki þar víðs vegar, þá er það ekki vegna þess, að mér finnist ekki, að ýmsar athuganir hans hafi við rök að styðjast, heldur er nær sanni, að flest af því, sem hér hefur verið tekið fram, eigi við full rök að styðjast. Þó að ég sé í ýmsum efnum ekki fyllilega sammála frsm. og formanni fjvn. og meiri hl. fjvn., þarf það ekki að hagga því, að ég er í flestum atriðum sammála þeim niðurstöðum, sem hann lýsti í framsögu sinni fyrir meiri hl., sem hann hefur orð fyrir.
Frsm. minntist á ýmislegt: Kaup á ferðavögnum fyrir póststjórnina, kaup á trésmíðaverkstæði og byggingu fiskiðjuvers. Ég vil benda á það í þessu sambandi, að þótt ég embættis míns vegna hafi haft hönd í bagga um þessi efni eins og fleiri, er það svo með flest af því, sem hér er á drepið, að undirbúningur og framkvæmdir höfðu átt sér stað, áður en núverandi stj. tók við þessum málum. Ég skal t.d. sérstaklega benda á fiskiðjuver ríkisins, sem fiskimálan. svokölluð með samþykki síns ráðh. á þeim tíma fór út í að byggja. Það mun rétt, sem hér hefur verið farið með, hvað þetta iðjuver hefur kostað, og það er líka rétt, að frá því að þessi stj. tók við, hafði hún þau afskipti af því að útvega nokkru meira fé að láni í þetta fiskiðjuver heldur en í það var komið, en það var af því, að það var komið svo langt, að mér þótti óheppilegt að skilja það eftir afskiptalaust eins og sakir stóðu, þegar ég kom í ráðuneytið. Þá voru húsin byggð, sumt af vélunum komið og þær settar upp, en ekkert í því standi, að hægt væri að hefja starfið, þannig að afskipti mín voru þau, að fá hús og stöð fullgerða. Það var þannig, að fiskimálan. fyrrv. byggði þetta fyrir sitt fé og fékk að auki stórkostlega mikið lán úr stofnlánadeild og víðar. Svo var skipuð sérstök stjórn af fyrrverandi atvmrh. Eftir að hafa hugleitt þetta mál nokkuð, fannst mér rétt að gera þá bráðabirgðaráðstöfun, að fiskimálasjóður eða sú stjórn, sem yfir honum er og hefur leyst fiskimálanefnd af hólmi, tæki sjálf við fiskiðjuverinu til ráðstöfunar og stjórnar. Ég sá ekki, að það hefði neina sérstaka þýðingu að hafa neina aðra sérstaka stjórn yfir þessu. Þetta var bráðabirgðaráðstöfun. Og ég játa, að það þarf að búa þessari stofnun einhverja löggilda stöðu í ríkinu, ef hún á framvegis að vera eign þess opinbera. Að öðru leyti skal ég ekki gera þetta sérstaka mál að umtalsefni.
Að því er trésmíðaverksmiðjuna áhrærir, býst ég við, að annar hæstv. ráðh., sem hún heyrir undir, gefi skýringar.
Brtt. hv. meiri hl. fjvn. eru að mestu í samræmi við það samkomulag, sem átt hefur sér stað á milli ríkisstj. og hv. meiri hl. fjvn. Að vísu er þar farið, eins og oft vill verða, nokkru viðar heldur en í alla staði hefði þótt ákjósanlegt. En ég ætla þó, að ég megi vera hv. meiri hl. fjvn. þakklátur fyrir það, að ekki hefur þó verið farið harðara af stað í breyt. á frv. en raun ber vitni um. Það var um tíma þannig litið á, að miklu meiri breyt. til hækkunar á fjárlagafrv. yrðu hafðar í hávaða, og þótti mér þá mjög óvænlega horfa. En fyrir það samstarf og samkomulag og þann samkomulagsvilja, sem hv. meiri hl. fjvn. hefur sýnt ríkisstj. í þessu máli, þá er þó nokkuð í hóf stillt og í miklu meira hóf stillt heldur en um tíma var útlit fyrir, hvað hækkanir á útgjöldum frv. snertir. Og auk þess hefur hv. meiri hl. fjvn. tekið til greina ýmsar óskir og ábendingar, ýmist frá mér eða öðrum, um lækkanir á einstaka liðum, til þess nokkuð að standa straum af hækkunartill. sínum. — Þó að þetta sé nú svo, þá er sannast sagna, að það er því miður allt of hátt stefnt með útgjöldin í þessu frv. í raun og veru, eins og það liggur fyrir, og þá ekki síður, þegar hækkanir hafa verið samþ.
Ég skal þá, að ósk hæstv. forseta, gjarnan fresta framhaldi minnar tölu, þar til næst verður kvatt til fundar. — [Fundarhlé.]
Herra forseti. Ég hafði farið nokkrum orðum um þetta mál, þegar fundarhlé var tekið í dag, og þar á meðal látið þess getið, að flestallar þær breyt., sem meiri hl. fjvn. lagði til, hefðu verið gerðar í samráði við ríkisstj. Ég held ekki, að nauðsynlegt sé, að ég reki þær frekar, þær hafa verið fyrst og fremst útskýrðar í nál. á þskj. 465 og auk þess hefur hv. frsm. lýst þeim og ástæðunum fyrir þeim í sinni ræðu. Hann sagði réttilega, að það, sem valdið hefði að langmestu leyti útgjaldahækkuninni nú, við hinn síðari búning fjárlfrv., væri það, sem áætlað væri til útgjalda sem dýrtíðarráðstafanir. Við vitum allir, hvað þar er átt við, þ.e. niðurgreiðslan á innlendu afurðunum og meðgjöfin með innlendu afurðunum, sem seljast eiga á erlendum markaði. Það er sett inn í fjárl. meðal óvissra útgjalda að upphæð 55 millj. kr. Þó að sú upphæð sé næsta há, þá er því miður um hana það að segja, að ég ber fullan kvíðboga fyrir því, að hún reynist ekki nógu hátt áætluð. Til afsökunar mér í því efni við samning fjárlfrv. hef ég lítið annað fram að færa heldur en það, að vegna þess að mér þótti útgjaldaupphæðin í heild, þegar teknir eru allir útgjaldaliðirinir á rekstri, vera svo háir, að ég seildist ekki til að fara lengra í þessu efni að áætla þessa 2 liði, eða réttara sagt þennan eina lið í tvennum tilgangi, hærra en þar segir. Það má vel vera, að þetta hefni sín, og má fara sæmilega, ef það gerir það ekki. En eitt virðist ljós.t, að ef sigla ætti fullum seglum bæði í því efni og ýmsu öðru, sem snertir áætlaða liði í þessum fjárl., þá hefði veríð óhjákvæmilegt að gera ráðstafanir til öflunar nýrra tekna, en allir eru sammála um, að það þurfi að forðast það, svo sem hægt er, að hækka hvort heldur eru tollur eða skattar. Þegar litið er nú á þá niðurstöðu, sem á þessu frv. yrði, ef till. meiri hl. n. yrðu samþ., þ.e.a.s. þótt ekki yrði lengra farið en þær ná, þá er samt sem áður enn vandséð, hvort verjandi er að gera ekki einhverjar ráðstafanir til þess að afla nýrra tekna. Í fyrsta lagi til þess að mæta þeim rekstrarhalla, sem sú mynd fjárl. sýnir, ef svo færi sem ég þegar lýsti, og í öðru lagi til þess að hafa eitthvað upp í greiðsluhallann, sem er nú áætlaður með þessum brtt. nær 30 millj. kr., og í þriðja lagi til að vera á einhvern hátt við því búinn, að sumir liðir, og þá meðal annarra sá, sem stærstur er og ég hóf mál mitt á í þetta sinn, færu að ráði fram yfir það, sem áætlað er. Á þessu stigi get ég ekki fullyrt um það, hver háttur verður á hafður, og jafnvel ekki, hvað ég muni leggja til í því efni, enda réttast að bíða eftir afgreiðslu fjárl. við 2. umr. og taka síðan til athugunar þessa hlið málsins. En um einn lið fjárl., sem er áætlunarliður um viðhald veganna, er það að segja, að hann er í frv. áætlaður 9 millj. kr. og var það líka á s.l. ári, en hefur farið mjög mikið fram úr áætlun hjá þeirri stofnun, sem hefur með viðhald veganna að gera. Og þegar við heyrum um ýmsar skemmdir á vegum aukalega sökum vatnavaxta, þá er ef til vill hætt við því, að þessi liður verði ekki síður lágt áætlaður nú en áður hefur átt sér stað. Í annan stað væri það líka ekki alveg varlega farið, ef undir þær stofnanir ríkisins, sem fara með þessi útgjöld — og á ég þar sérstaklega við vegamálaskrifstofuna — væri ýtt með síhækkandi áætlun í þessum efnum, vegna þess að reynslan sýnir það, að hver sem áætlunin er, þá hrekkur ekki féð til, og gæti það þá ef til vill haft þá verkun, að enn þá meira væri notað í þessu skyni. Nú er mér sagt, að vegaviðhaldið verði miklu dýrara vegna þess, að ýmsar lagfæringar og jafnvel breyt. á vegum, sem vafasamt megi telja, hvort heyri beinlínis undir viðhald, séu kostaðar á þennan hátt af vegamálaskrifstofunni, og má að vísu um það deila, hvort rétt er þá með farið. Á hinn bóginn er það vitað, að till. til þessarar skrifstofu um aðgerðir, vegagerð og ýmsa fyrirgreiðslu eru margar, sem til falla á árinu. Ég vil þess vegna ekki áfellast að öllu leyti umframeyðslu á þessu sviði, en þó er þess að gæta, að eitthvert hóf verður nú samt að vera á útgjöldunum, jafnvel þeim, sem ætluð eru til viðhalds vega. Það, sem ef til vill er erfiðast viðureignar fyrir ráðun. í þessum efnum, er það - ég hef rekið mig á það þennan stutta tíma, sem ég hef þar staðið að málum — að vegamálaskrifstofan á það til að fullyrða við mann, að það verði ekki brúkað meira en þessi upphæð, en kemur svo aftur eftir dúk og disk og sýnir þá enn þá hærri upphæð og það jafnvel endurtekið.
Hv. frsm. minntist á eina höfuðorsök þess, að útgjöld ríkisins fara stórum skrefum vaxandi, sem sé kröfuna frá borgurum landsins um síaukin afskipti af ýmsum atriðum, jafnvel þeim, sem ekki hafa heyrt undir ríkisafskipti áður. Ég er þessu sammála og hef áður opinberlega bent á háskann við þessa þróun. Hv. frsm. bætti því við, sem augljóst er, að með síauknum ríkis- og bæjarrekstri er höggvið í þann meið, sem standa á undir höfuðþunga skattanna, sem er sá atvinnurekstur í landinu, sem skattskyldur er. Þessi þróun hefur verið allör á síðari tímum, og henni fylgja að sjálfsögðu þessir ágallar, þó að ýmsir sjái nokkra kosti hennar á öðrum hliðum. Hv. frsm. minntist í þessu sambandi á þá löggjöf, er sett var um stofnlánadeild sjávarútvegsins og ákvæðin um lán til fiskiskipa, og þar á meðal það, að þar hefði verið ýtt undir bæjarrekstur, t.d. á togurum, með því að unna bæjarfélögum betri kjara í lánum en einstökum félögum eða útgerðarmönnum. Mér er þetta mál nokkuð skylt og vil við það kannast, að þetta fór svo fram, að sem skattstofn til ríkisins á sama hátt og rekstur skattskyldra fyrirtækja þá er ekki hægt að segja, að hlaðið sé undir skatttekjur með þessu móti. En við samning þeirra lagaákvæða, sem hér voru dregin fram í dagsljósið og á bent, var annað sjónarmið, sem þá líka þurfti að hafa fyrir augum, sem sé það, að með því að gera bæjarfélögum, og þá sérstaklega bæjarfélögum utan Reykjavíkur, kleift að eignast hin nýju framleiðslutæki og létta undir með þeim á því sviði var það sjónarmið haft fyrir augum, sem var nokkuð mikið ríkjandi hjá nýbyggingarráði, að freista þess að stöðva eða vinna á móti flótta fólksins utan af landi til höfuðstaðarins með því að skapa eða hjálpa til að skapa skilyrði fyrir það fólk, sem utan höfuðstaðarins býr, sem mest í áttina til jafns við þau, er þeir búa við. sem hér eiga heima.
Það er oft mjög réttilega bent á það, að í löggjöf, sem sett er á Alþ., hafi verið farið mjög óvarlega í því efni að auka skuldbindingar ríkisins til fjárframlaga. Og skal ég nú eins og áður staðfesta, að ég er þeirrar skoðunar, að Alþ. hafi farið allt of langt í þessum efnum. Fyrir þetta liggjum við, sem á Alþ. sitjum og höfum setið undanfarin ár, mjög undir ámæli. En Alþ. á þó ekki hér nema hluta af sökinni. vitanlega þó þann þyngsta, af því að Alþ. ber að hafa nokkra forsjá fyrir þjóðinni. En ef athugaðar eru samþykktir hinna ýmsu stéttarfélaga, sem venjulega halda þing sín hér, þegar líður á árið, þær samþykktir og kröfur til löggjafarþingsins, sem svo að segja allar stéttir þjóðfélagsins samþ. og birta allt haustið og fram að veturnóttum og ef til vill lengur, þá verður ekki annað en við það kannazt, að það er greinilega mikils krafizt af því opinbera í fjárframlögum frá opinberri hálfu einmitt gegnum þessar samþykktir stéttarfélaga landsins á hverjum tíma, sem þær eru gerðar. Fer varla fram nokkurt slíkt þing, án þess að þar séu gerðar margvíslegar ályktanir, sem allar miða að því að auka á framlög af opinberri hálfu og afskipti hins opinbera af atvinnurekstri. Þegar við þess vegna hljótum að kannast við, að of mjög hafi verið gert í þessu efni, þá er rétt að lita á það, að það er ekki bara Alþ. eitt, sem hefur staðið í slíkum verkum, en hitt er vitaskuld rétt, að Alþ. þyrfti að hafa meiri gát á því, við hverju er orðið af þingsins hálfu af slíkum fjölda af kröfum, því að það þyrfti að vera meiri íhaldssemi af þingsins hálfu gagnvart hinum - mér liggur við að segja taumlausu kröfum, sem gerðar eru til Alþ. á ýmsum tímum og sendar eru til Alþ. um þessi efni.
Nú er það svo, að ég hef aðeins rætt um till. meiri hl. fjvn., en rétt er að geta þess, að minni hl. n. hefur líka lagt fram sínar brtt., og nú sé ég, að útbýtt er nál. frá þeim nm., sem að þeim standa. Ég sé það, að minni hl. hefur ekki getað sætt sig við þær hækkanir, sem meiri hl. hefur lagt til, og vill ganga lengra í þeim efnum, bæði auka framlög ríkisins og um leið hækka þá tekjuáætlun, sem hér er lögð til grundvallar. Ég hef nú ekki getað ýtarlega kynnt mér þetta nál., ég hef ekki séð það, fyrr en ég hafði hafið mál mitt í þetta sinn, en höfuðstefna þess er sú, sem ég hef nú lýst, þ.e. hækkun á útgjöldum og hækkun á áætluðum tekjum. Um áætlun teknanna er það annars að segja, að meiri hl. hefur ekki gert neinar breyt. við það, sem lagt var til í frv. eins og það kom frá stj. Og skil ég það þannig, að meiri hl. sé mér samdóma um það, að það muni ekki hyggilegt að hækka tekjuáætlun, svo að nokkru nemi. En minni hl. virðist vera á annarri skoðun. Ég get sagt út af þessu um samning þessa frv., að þá tel ég að áætlun teknanna sé að óbreyttu ástandi mjög bjartsýn. Mætti kannske segja of bjartsýn. Ef við tökum t.d. verðtollinn, sem gaf s.l. ár 72 millj. kr. að vísu á þann veg, þrátt fyrir það að verðtollshækkunin missti af 1/4 hluta ársins, en vel að merkja af innflutningi, sem nam 428 millj. Ef við berum saman þessa aðstöðu, sem þá var með þeim geipilega innflutningi, og það, sem nú er áætlað, þá er fyllilega í lagi að áætla hann, eins og gert er í frv., 60 millj. Ég er satt að segja hræddur um, að það sé of hátt. Ég er hræddari um það í dag en ég var, þegar þessi áætlun var samin að mestu, vegna þess að innflutningur gengur svo mjög saman, og það er ískyggilegt, þegar litið er á það frá sjónarmiði ríkiskassans, sem á svona mikið undir innflutningi komið. Þannig gengur hann svo mikið saman nú, að það er beinlínis mesta áhyggjuefni, hvað þennan tekjulið snertir. Tveir fyrstu mánuðir ársins gáfu svo lága tolla í þessum efnum, bæði vörumagnstoll og verðtoll, að ef leggja á það til grundvallar fyrir allt árið, þá er það sýnt, að áætlunin stenzt hvergi nærri. Þó er hér till. frá minni hl. fjvn. um að áætla verðtoll 70 millj. eða sem næst því, sem hann nam að öllu leyti s.l. ár, og álit ég það á engan hátt vera forsvaranlegt. Aðrir liðir tekjuáætlunarinnar eru meðfarnir á svipaðan hátt. Ég get í einu orði sagt, að við sigldum þar að okkar hyggju mjög nærri vindi og beittum eins hátt og við töldum á nokkurn hátt þorandi. Veit ég ekki, hversu fer um framkvæmdir á þeirri innflutningsáætlun, sem fjárhagsráð hefur gefið út. Hún er að vísu nokkuð há. Það er eins og vörukaup samkvæmt þeirri áætlun séu ákaflega seinvirk, og það hefnir sín. Vitanlega er það slæmt, að það þurfi að ganga svo seint, að innflutningur fáist leyfður, eins og raun ber vitni um. Sérstaklega finnst mér það æskilegt, hvað við kemur þeim löndum, sem við skiptum við með jafnvirði eða sem kallað er „clearing“. Það er dálítið annað gagnvart þeim löndum, sem borga í reiðum peningum, sérstaklega dollurum, því að dollaraskortur er mikill. Um hin löndin, t.d. Holland og Tékkóslóvakíu, sem við höfum skipt við og selja okkur í jafnvirði, er sá seinagangur óskiljanlegur, sem er á því, að menn fái þennan innflutning, sem gerir það hvort tveggja að bæta úr þörf fólksins og gefa ríkissjóði tekjur. Ég ætla að vona, að þetta fari nú samt ekki svo, að það verði til stórtjóns fyrir ríkissjóðs, en það, sem af er árinn, eru tekjur fyrir innflutning ískyggilega lágar. Ég vil líka við þetta tækifæri benda á eitt atriði, sem ég leyfi mér að benda fjárhagsráði á sérstaklega, og það er það, að þrátt fyrir allar áætlanir, sem gerðar eru í þessum efnum, þá er algerlega víst, að framkvæmd slíkra áætlana hlýtur að verða hið þróun atvinnulífsins í ár og að höfuðsjónarmið gagnvart innflutningi hljóta að stjórnast af hagsmunum útflytjenda í landinu eða hagnaði af útflutningi. Þetta atriði hef ég leyft mér að undirstrika skriflega gagnvart fjárhagsráði, vegna. þess að fjárhagsráð bað um álit stjórnarinnar um sína áætlun, og taldi ég rétt með hagsmuni ríkissjóðs fyrir augum, að það væri háð útflutningsverzluninni, ég einmitt undirstrika þetta atriði af því, að þótt ég beri mikla virðingu fyrir öllum áætlunum, þá álít ég, að það megi ekki rígbinda sig svo við slíkar áætlanir, að ekki megi neinn til víkja, ef útflutningur landsins krefst þess. Við skulum hugsa okkur, að slíkar áætlanir, sem gerðar eru svona snemma á árinu, séu þannig t.d., að frá einhverju landi sé lagt til eða fyrirhugað að kaupa tiltölulega lítið af vörum, en frá öðrum tiltölulega mikið. Ef svo þetta snýst þannig, að það land, sem við hugðumst geta lítið keypt af, vill kaupa meira en fyrir fram var búizt við, en hitt landið, sem við aftur á móti settum stærri vonir til, bregzt að einhverju leyti, þá gefur það auga leið, að við verðum að laga þessa hluti eftir kröfum á hverjum tíma. Við verðum líka, í hvaða stöðu sem við erum í þessu þjóðfélagi og hvaða starf, sem við höfum með höndum, að gera það alltaf meðvitandi eða fullri vitund, að það er ekki hægt og getur ekki farið saman að gera stórar og miklar og margvíslegar kröfur til framlags frá ríkissjóði í einu og öðru skyni, jafnvel sívaxandi kröfur frá ári til árs, en gera um leið ráð fyrir því, að tekjur okkar geti eða verði af einhverjum ástæðum að stórminnka.
Nú er það augljóst, að eins og nú er komið innflutningsmálunum, hljóta tekjur landsins á þessu ári að stórminnka, og það rökrétta af slíkum augljósum staðreyndum, sem ég hygg að verði, væri þá sú ályktun, að niður væru færðar kröfurnar til útgjalda úr ríkissjóði. Nú vitum við allir, hve örðugt það er að koma því í framkvæmd, bæði vegna starfsmannaliðs ríkisstofnana, skóla og spítala og vegna hins, að til verklegra framkvæmda ólögbundinna er alltaf krafizt mikils fjár, og þykir ekki við eiga, að það sé um of skorið við nögl. Þótt menn viðurkenni það, að þetta þyrfti að vera hóflegra, þá eru samt sem áður örðugleikar á að koma því í framkvæmd. M.ö.o., það þarf að breyta mörgum lögum til að lækka að verulegu leyti þá útgjaldaliði, sem eiga stoð í lögum. Mér þykir nú líklegt, þótt hér séu frammi till. um enn þá hærri útgjöld á þessu fjárlfrv. en þau, sem meiri hl. fjvn. hefur lagt fram, þá muni nú þjóðinni þykja nóg um fjárlfrv., sem yrði samþ. á þann veg, sem meiri hl. leggur til og ég hef áður lýst, hvað snertir það vafasama útlit, sem er hvað tekjur snertir í ýmsum atriðum. Þó er ég þess fullviss fyrir mitt leyti, að á þann veg væri útgjöldunum stillt svo langt til hækkunar, að ég tel ekki, að lengra væri æskilegt að ganga.
Nú er þess að geta, þegar minnzt er á ríkisrekstur og útgjöld í sambandi við það, þá eru í 22. gr. ákvæði um ýmislegt, sem ríkisstj. megi láta byggja, og mun oft verða erfitt að komast hjá því, þegar slíkt er lögfest, þótt það sé ekki nema heimild. Á hinn bóginn vil ég samt sem áður benda á, að eins og fjárráð ríkissjóðs eru nú, þá tei ég, að það hljóti að geta komið til mála og það ef til vil] fyrr en varir, að fjmrn. verði að neyðast til að hagnýta sér heimild þá, sem gert er ráð fyrir, til að fresta framlögum til ýmissa framkvæmda, jafnvel þeirra, sem fastákveðin eru í þessu frv., — ég segi neyðast til, vegna þess að við vitum, að hér er ekki við lambið að leika sér. Skuldbindingar ríkissjóðs eru háar og miklar þann dag í dag og því miður útgjöldin aðkallandi. Þess vegna er ekki annað en neyð, sem getur komið í veg fyrir, að þær séu uppfylltar, svo sem fyrirhugað er. En þetta ástand getur vel orðið á vegi okkar á þessu ári sökum þess, hvað þungar eru orðnar byrðarnar á ríkissjóði af fjárframlögum. Ég skal að þessu sinni ekki hafa um þetta fleiri orð. Ég er við því búinn að þurfa að tala síðar í þessu máli, kannske ekki fyrr en við 3. umr. En ég hef ekki enn þá haft tækifæri til þess að kynna mér röksemdir hv. minni hl. fjvn., þar sem þær voru lagðar hér á borðið um það bil, er ég hóf ræðu mína. Ég tel því rétt við framhaldsmeðferð þessa máls að víkja að þeim og þá, ef svo ber undir, að öðru því, sem ástæða er til að gera að umræðuefni. En að lokum vildi ég segja það, að ég vil leggja með því, að brtt. hv. meiri hl. séu teknar til greina við atkvgr., en treysti mér því miður ekki til þess að leggja öðruvísi en á móti brtt. hv. minni hl. og brtt. frá hv. alþm. öðrum, ekki vegna þess að ég telji, að engar af till. gætu átt rétt á sér undir öðrum kringumstæðum, heldur vegna þess, að ég tel getu ríkissjóðs ofvaxið að ganga feti framar en hv. meiri hl. leggur til.