12.03.1948
Sameinað þing: 53. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 661 í B-deild Alþingistíðinda. (873)
129. mál, fjárlög 1948
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ég tók eftir því áðan, þegar hv. þm. N-Ísf. talaði, að hann lét í ljós, að hann hefði kunnað betur við að vera flm. með mér að þeim brtt. við fjárl., sem ég hef borið fram á þskj. 479. Ég skal taka fram, að ekki hefði ég haft neitt á móti því að hafa hans nafn með á þessum till. og njóta hans stuðnings, sem ég geri ráð fyrir, að hann muni veita till. mínum samt sem áður, og ástæðan til þess, að ég flyt þær einn, er sú, að ég tók mark á þeim boðskap hæstv. forseta, að brtt. yrði að vera skilað fyrir kl. 7 þann dag, sem það yrði tilkynnt. Ég reyndi því að ná fundi hv. þm. N-Ísf., en lánaðist það ekki í tæka tíð. Ég skal svo ekki hafa fleiri orð um þetta, ég veit, að hv. þm. leggur brtt. mínum sama stuðning í sínum flokki eins fyrir það.
Hv. frsm. fjvn. gerði mér þá sæmd að verja löngum kafla ræðu sinnar til að svara þeirri ræðu, sem ég hélt hér í gærkvöld. Hann gerði mér svo hátt undir höfði að verja eins löngum tíma í mig og hæstv. ráðh., sem hann hafði þó mjög mikið við að tala, og eyddi sýnu meiri tíma í mína ræðu en ræðu hv. frsm. minni hl. fjvn., sem hann þó auðvitað þurfti að fala talsvert við líka. Ég tel því skylt að sýna frsm. fjvn. þó ekki annað en þá virðingu að eiga við hann nokkur orðaskipti í staðinn.
Hv. þm. sagði, að ég hefði lýst yfir því í gær, að ég væri ekkert óánægður með það, þótt upphæðir til verklegra framkvæmda væru lægri í ár en áður, en sá væri munurinn, að hann sem form. n. væri ekki ánægður með þetta. Þetta er ekki alveg rétt eftir mér haft. Ég sagði, að ég teldi rétta stefnu, að hið opinbera drægi úr framkvæmdum, þegar svo væri ástatt um atvinnulíf þjóðarinnar, að gera þyrfti ríkar kröfur til þess vinnuafls, sem fáanlegt væri. Sömu kröfur hafa komið frá fleiri þm. Það er auðvitað eðlilegt, að ríkið leggi sig allt fram um aukningu opinberra framkvæmda, þegar kyrkingur er í atvinnulífinu og atvinnuleysi, og komi þá til styrktar við framkvæmdir í þjóðfélaginu og örvi þær og komi þannig í veg fyrir böl atvinnuleysisins. — Það var út af þessu, að ég sagðist geta sætt mig við það, að dregið væri nú nokkuð úr framlögum til verklegra framkvæmda, þegar svo stæði á og það þyrfti á þeim vinnukrafti að halda, sem fáanlegur væri hjá þjóðinni. Hitt er rétt, að ég lét í ljós óánægju með þá skiptingu, sem fjvn. hefur framkvæmt á þessu takmarkaða fé, og gerði að umtalsefni skiptingu n. á fjárveitingum til samgöngumála. Ég sagði, að ég teldi, að þegar byrjað væri að draga saman seglin á þessu sviði, mætti verja það að byrja að draga þar úr samgöngum, sem vegakerfið væri orðið fullkomnast, og sagði, að þannig væri viða hér á Suðurlandi og ólíku saman að jafna vegakerfinu sunnanlands og vegleysum Vestfjarða. Það gæti því tæplega talizt sanngirni að byrja samdráttinn á því að draga fyrst og fremst úr fjárveitingum til vegagerðar í hinum veglausu héruðum landsins. Þetta var mín skoðun. Það er varla hægt fyrir fólk, sem býr í veglausum héruðum, að una við það, að þar sé stöðvun á gerð, og það bíður meiri hnekki við slíka ráðabreytni en fólkið í þeim héruðum, sem betur eru stödd með vegi, þó að frestun yrði á því, að vegirnir yrðu breikkaðir. Aftur á móti mátti enginn taka orð mín svo, að ég teldi, að fólkið á Suðurlandsundirlendinu væri búið að fá fullgott eða of gott vegakerfi. Síður en svo. Ég tel, að það sé mark, sem að verði að keppa, að allir íbúar Íslands fái svipaða aðstöðu og ekki verri en íbúar Suðurlands og Borgarfjarðar hafa nú. Ég vildi því ekki troða skóinn af einum né neinum. Ég vildi halda fram málstað þess landshluta, sem mjög hefur orðið út undan um verklegar framkvæmdir í samgöngumálum. Torveldar það ástand mjög atvinnuhætti þessa landshluta.
Hv. þm. Barð. sagði, að þau rök lægju til hins mikla vegakerfis hér sunnanlands, að þörfin væri svo mikil vegna mjólkurflutninga þaðan að austan, ekki aðeins vegna héraðsbúa sjálfra, heldur vegna Reykvíkinga líka, og þess vegna væri svo mikið kapp lagt á vegakerfið þar. Sömu rökin og hann kom inn á, að því er Barðastrandarsýslu snertir, liggja til þeirrar þarfar, sem er á auknu akvegakerfi í Norður-Ísafjarðarsýslu, að tengja sveitirnar við mjólkurmarkaðinn í kaupstöðum og kauptúnum. Er þetta því hin mesta nauðsyn fyrir atvinnulíf fólksins í sveitunum og þörf kaupstaðabúa, hvort sem er í Austfirðingafjórðungi, Sunnlendingafjórðungi, Norðlendingafjórðungi eða Vestfirðingafjórðungi. Hin sömu rök liggja til þarfarinnar, þ.e. þörf atvinnulífsins, þörf fólksins, sem býr í kaupstöðum og sveitum. Aftur á móti gerði hv. form. fjvn. þá játningu, að mjög hefði verið borið fé í sumar vegagerðir hér sunnanlands. T.d. liggja þrjár leiðir frá Rvík um Suðurlandsundirlendið og búið að afgreiða lög á Alþ. um tugi milljóna framlag úr ríkissjóði til fjórða vegarins austur á Suðurlandsundirlendið. Þetta sannar mjög það, sem ég hélt fram í gær, að það ylti á milljónum til bættra samgangnamöguleika hér, þar sem aðstaðan væri þó orðin langbezt, en niðurskurðurinn látinn koma fyrr til framkvæmda í þeim héruðum, sem út undan hefðu orðið til þessa, og taldi þetta ekki rétt.
Þá gerði hv. frsm. samanburð á fjárveitingum til sambærilegra vegamála á Vestfjörðum, Barðastrandarsýslu og Norður-Ísafjarðarsýslu og taldi þessu misskipt, taldi, að n. hefðu orðið mislagðar hendur um það að fullnægja réttlætinu, svo að viðunandi væri. Þetta vildi nú hv. frsm., þm. Barð., afsaka með því að Barðastrandar sýsla væri nú raunverulega meira en ein sýsla, eiginlega tvær sýslur, og gat ég ekki skilið annað en hann væri með því að gefa í skyn, að þess vegna skyldi engan undra, þótt Barðastrandarsýsla fengi framlag ár eftir ár, sem svaraði til allt að því tveggja sýslufélaga. Ég fór inn á skrifstofu þingsins, þegar hann hafði þetta sagt, og athugaði, hvað liði íbúatölunni í þessari sýslu móts við Norður-Ísafjarðarsýslu. Eftir þeim tölum, sem þar lágu fyrir, voru 2997 íbúar í Barðastrandarsýslu og 2786 í Norður-Ísafjarðarsýslu. Það munar sem sé nokkrum tugum manna á þessum kjördæmum, og þetta tvöfalda kjördæmi hv. þm. Barð. var þá ekki svona miklu mannfleira en Norður-Ísafjarðarsýsla, sem hann ætlaði hálfan hlut vegna hins mikla mismunar á kjördæmunum. Þetta virðist því ekki nægileg afsökun fyrir þeim mikla mismun á fjárveitingum til þessara tveggja kjördæma. Ef farið væri eftir íbúatölu, ætti Norður-Ísafjarðarsýsla að fá nokkurn veginn sömu upphæð til sinna samgöngumála, en á því hefur orðið verulegur misbrestur.
Þá vildi hv. þm. Barð. fullyrða, að við hefðum undan engu að kvarta fyrir hönd Norður-Ísafjarðarsýslu, því að það hefði verið gert vel til Bolungavíkurvegar. Þetta er rétt, ég kvartaði ekki undan þessu, ég tel það viðunandi, en ég held, að það sé einasta upphæðin, sem um var beðið. Mér finnst því örla á því, að hv. þm. hafi haft skilning á því, að það þyrfti að koma akvegir frá Ísafjarðarkaupstað til stærstu þorpanna í námunda við kaupstaðinn, og þennan skilning hefur hann líklega öðlazt, þegar hann sigldi sem vélstjóri á Esju fyrir mörgum árum. En ég hafði ímyndað mér, að hv. þm. Barð. þekkti viðar til í Norður-Ísafjarðarsýslu, að þörfin er alveg jafnbrýn í nálega öllum hreppum Norður-Ísafjarðarsýslu. Ég hefði viljað reikna með því, að hv. þm. Barð. hefði skilning á þessu sem þm. fyrir Vestfjarðakjördæmi, sem er mjög svipað þessu. Þar að auki stóð einu sinni til, að hv. þm. Barð. væri í framboði til Alþ. þarna. Var meira að segja búið að skila umboðinu, þótt því væri ekki haldið til streitu, sem ég er alveg sammála um, að hafi verið rétt.
Þá minntist hv. þm. Barð. á Súðavikurveg, en þar var farið fram á um 100 þús. kr. Vegamálastjóri vildi, að hann fengi 110 þús. kr., en fjvn. skar upphæðina niður í 70 þús. kr. Í sambandi við það hneykslismál má geta þess, að 12 ár eru síðan byrjað var á þeim vegi, sem er aðeins 17 km að lengd.
Svona er búið að reyna á þolinmæði Norður-Ísfirðinga í þessum vegamálum, og þykist ég sannfærður um, að hv. þm. Barð. sé mér sammála um, að ekki sé við öðru að búast en að þolinmæði fólksins þrjóti, þegar svona er farið að ráði sínu og héraðsbúar fá engu um það ráðið, að tekin verði réttari stefna heldur en gert hefur verið. Ég skal játa það, að þótt nú sé lagt til að láta 70000 kr. í þennan veg, þá væri það nóg, ef á að eyða því í slíka vitleysu eins og til þess að bora í Súðavíkurhamar. Ég vona, að vitinu verði komið fyrir vegamálastjóra um hyggilegri vinnubrögð, og þó veitir ekki af 110000 kr. til þess að koma veginum til Súðavíkur á næsta sumri. Þá vildi hv. þm. meina, að vel væri gert við Norður-Ísfirðinga, af því að komin væri bryggja á Arngerðareyri og Melgraseyri, og taldi misráðið að byggja bryggju á hinum síðarnefnda stað, því að kunnugur maður hefði fullyrt, að aldrei væri hægt að gera bryggju á Melgraseyri nema með ærnum kostnaði, vegna þess að þar væri svo mikið útfiri. Þetta er misskilningur. Djúpbáturinn er búinn að athafna sig við þessa bryggju í marga mánuði, og í lægstu stórstraumsfjöru hefur aldrei þurft að setja niður bát, síðan bryggjan kom, og er hún því nothæf 27 metra löng, og þarf í lítinn aukakostnað að leggja til að gera fært miklu stærri skipum að leggjast að. Þessi bryggja er sem sé komin, en ríkið hefur enn ekki greitt eyri til hennar, en héraðsbúar hafa í samráði við vegamálastjórn og samgmrh. framkvæmt verkið á s.l. sumri. í trausti þess, að upphæðin, sem mannvirkið kostar, fengist tekin í fjárl. þessa árs. Við verðum að sjá til, hvort það tekst ekki, en ég legg til, að þessi upphæð, 60000 kr., verði tekin af þeirri upphæð, sem ætluð er til ferjuvega og ferjubryggna. Eitthvað var háttvirtur framsögumaður að tala um, að ég hefði verið á móti því, að Þjórsá væri brúuð. Það er misskilningur. Ég lét ekki neitt orð falla í þá átt, enda tel ég þörf á því, en ég benti á, að þegar tugum millj. kr. er varið til brúa- og vegamála á Suðurlandsundirlendinu, þá er synjað um nokkra tugi þúsunda til nauðsynlegra brúa á Vestfjörðum. Ég hef beðið um nokkra fjárhæð til að brúa vatnsmesta vatnsfall á Vestfjörðum, Selá í Nauteyrarhreppi. Þetta var fellt niður, en 3 millj. kr. veittar til Þjórsárbrúar og rökstutt með því, að á þessu sé mikil nauðsyn, en þetta var aðeins tekið af mér sem einn liður í sönnununum fyrir því, að Vestfirðir væru, að því er þetta snertir, einnig afskiptir móts við landshluta, sem bezt eru settir að því er brýr snertir og einnig vegi. Ég skal játa, að hv. frsm. gerði enga tilraun til að hrekja það, sem ég sýndi fram á, að það væri mjög misskipt fjárveitingum milli Norður-Ísafjarðarsýslu og Barðastrandarsýslu. Þar tilfærði ég tölur fjárl., að því er vegamálin snertir, fyrir árið 1947 og till., sem nú liggja fyrir. Nú skal ég gera þessu fyllri skil, og þá mun hv. fjvn. ekki verða lengur í vafa um það, að hér hafi fjvn. orðið mislagðar hendur um að sjá til þess, að réttlátlega væri bætt úr um vegamál þessara kjördæma, sem líkt eru sett að vegleysum. Ég hef ekki við höndina fjárl. .nema fyrir árin 1945, 1946 og 1947 og till. fjvn. fyrir 1948. Vil ég gefa hv. alþm. upplýsingar um, hvernig þetta er í þessum tveim kjördæmum þessi 4 ár. Árið 1945 var veitt á fjárl. til vegagerðar í Barðastrandarsýslu 175000 kr., til vegagerðar í Norður-Ísafjarðarsýslu 58000 kr., framlagið er meira en þrefalt hærra í Barðastrandarsýslu. Árið 1946 eru 440000 kr. veittar til 7 vega í Barðastrandarsýslu á móti 195000 kr. til 3 vega í Norður-Ísafjarðarsýslu. Úr því að leiðrétting kom ekki í réttlætisátt 1946, þá hefði hún átt að koma 1947. Þá er þetta þannig, að til 7 vega í Barðastrandarsýslu er veitt 565300 kr., en þetta sama ár er veitt til 4 vega í Norður-Ísafjarðarsýslu 378300 kr., að Þorskafjarðarheiðarveginum meðtöldum, sem verður að teljast allsherjar Vestfjarðavegur, en ekki aðeins vegur fyrir Norður-Ísafjarðarsýslu. Í till. fjvn. fyrir árið 1948 er veitt 525000 kr. til 10 vega í Barðastrandarsýslu á móti 385000 kr. til Norður-Ísafjarðarsýslu. Þetta sýnir, að það er meira en kominn tími til þess, að leiðrétting verði á þessu gerð, og það er ekki hægt að ætlast til þess, að íbúar Norður-Ísafjarðarsýslu, sem alltaf hafa verið afskiptir, sætti sig við þetta til lengdar. Þeir telja það ekki fullnægjandi skýringu, að form. fjvn., sem er þm. Barðastrandarsýslu, sé í þeirri sérstöku aðstöðu, að hann geti skammtað sér og sínu kjördæmi svona fjárframlög umfram aðra, sem eins illa eru settir með samgöngumál. Ég sagði í gær, að ég skildi ekki, að hv. þm. Barð. gæti villt svona um fyrir öllum samnm. sínum í fjvn., og ég trúi ekki, að hann hafi svo mikla andlega yfirburði yfir alla hina, að hann gæti látið þeim sýnast allt vera sannleikur, þó að svona illa sé fullnægt lágmarkskröfum í réttlætisátt. Ég held því, að það hafi einhvern veginn farið fram hjá þeim að gera slíkan samanburð, sem ég hef hér gert á 4 árum, og niðurstaðan verður æ hin sama. Ég ætlaðist til þess, að það væri hægt að höfða til réttlætiskenndar hv. þm. Barð. í þessu máli, en ég heyrði á ræðu hans, að það, sem ég hafði sagt, hefur hitt allt aðra strengi í hans sál heldur en strengi réttlætistilfinningarinnar, og eftir því væri ástæða til að ætla, að þeir væru engir til. En ég gef ekki upp vonina um það, að 8 meðnm. hans séu gæddir réttlætistilfinningu. svo að við hv. þm. N-Ísf. þurfum ekki svo mjög að kvarta eins og við gerum nú að sjálfsögðu.
Ég vil því ljúka máli mínu með því að segja, að ég treysti hv. fjvn. til að lagfæra þetta, annaðhvort með fylgi hv. form. n. eða gegn, et svo vill verkast. Annars skil ég ekki annað en að við mættum vænta þeirrar afstöðu af hv. form., þegar hann er búinn að knýja fram hálft sjötta hundrað þúsund krónur til 10 vega í Barðastrandarsýslu. Hv. þm. Barð. gat þess, að það væri gengið inn á að leysa brýna þörf Barðastrandarsýslu til úrbóta vegamálum í þessu veglausa kjördæmi, en ég vil benda honum á, að þessu er eins farið með Norður-Ísafjarðarsýslu, og henni þarf að gera svipuð skil, ef ekki á að vera hægt að benda á hróplegt ranglæti og ósamræmi þarna á milli. Þetta hefur hv. form. n. láðst að athuga, og þess vegna hefur þetta farið fram hjá n., þetta þarf að jafna miklu hefur. Það er þörf fyrir slíka fjárveitingu, sem ég hef hér gert grein fyrir, að veitt hafi verið undanfarin 4 ár til Barðastrandarsýslu, af því að sýslan er veglaus fyrir, en þá vil ég vænta þess, að augu hv. þm. Barð., form. fjvn., séu jafnopin fyrir þörf Norður-Ísafjarðarsýslu og hann fylgi því máli fram eins og fyrir hönd síns eigin kjördæmis. Ef hann hefði gert það, þá hefði hann orðið laus við að hlusta á þessar tvær ræður mínar og vafalaust haft betri samvizku sem Vestfjarðaþingmaður í þessu máli, því að þetta hefur ekki getað verið vegna ókunnugleika hans. Ég mun haga mér þannig um atfylgi og framgang þessara tillagna, að þær till., sem ég tel mestu máli skipta, mun ég taka aftur til 3. umr. og freista allra möguleika til þess að fá a.m.k. nokkrum af þeim framgengt. Fyrsta tel ég þar fjárveitinguna til Selárbrúar, sem má ekki falla niður, byrjunarframkvæmdir hófust í fyrra og áframhaldandi fjárveitingar þurfa að koma frá ári til árs. Ég tel einnig, að það verði ekki við það unað, að ekki fáist aukið framlag til Hnífsdalsbryggju og brimbrjótsins í Bolungavík, og ég trúi ekki öðru en að 60000 kr. verði veittar til ferjubryggju að Melgraseyri og eitthvað verði veitt til verklegra framkvæmda í Sléttuhrepppi og Grunnavíkurhreppi. Þess mun freistað af mér og hv. þm. N-Ísf., áður en fjárl. eru afgreidd, að treysta á, að réttlætistilfinning hv. fjvn. muni segja til sín, áður en of seint sé.