12.03.1948
Sameinað þing: 53. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 666 í B-deild Alþingistíðinda. (874)
129. mál, fjárlög 1948
Steingrímur Aðalsteinsson:
Ég skal ekki eyða löngum tíma í að karpa við hv. frsm. meiri hl. um þær till., sem ég hef hér borið fram og áður talað fyrir. Ég vil þó geta þess, að hann viðurkenndi, að það væri rétt, sem ég hélt fram í sambandi við framlag til sjúkrahúss Akureyrar, að landlæknir óskaði eftir þessu framlagi, sem ég nefndi, 1 millj. Hins vegar segir hann, að landlæknir hafi einnig óskað eftir hærri fjárveitingu til annarra framkvæmda í heilbrigðismálunum, sem fjvn. ekki treysti sér til að verða við, og er það vafalaust rétt hjá hv. frsm. En út af því, sem hann segir um það, að viðkomandi héruð verði líka sjálf að leggja nokkuð á sig í sambandi við slíkar framkvæmdir, þá vil ég taka það fram, að Akureyri hefur gert meira en að uppfylla sína skyldu í fjárframlögum, því að eins og ég sagði í ræðu minni í dag, þá hefur bærinn lagt fram meira en sinn hlut, þannig að við s.l. áramót skuldaði ríkið 100000 kr. Þá lét hv. frsm. í ljós von um það, að það yrði haldið áfram, þótt ekki yrði veitt nema 300000 kr. á þessu ári, og verður það að vísu gert, en hins vegar getur það þýtt það, að ekki verði unnið eins mikið að þessum framkvæmdum og gert mundi verða, ef ríkið stæði við framlagið að sínum hluta. Ég nefndi það, að stjórn byggingarinnar væri búin að tryggja fjárfestingarleyfi upp á 1300000 kr. á þessu ári, og ef ekki væri unnið nema sem svarar þessu framlagi ríkisins, sem hér er gert ráð fyrir, 300000 kr., og dregið frá það, sem ríkið skuldar, þá mundi það þýða, að ekki yrði unnið fyrir nema 350000 kr., en það er ekki nema 1/4 þess fjár, sem búið er að fá fjárfestingarleyfi fyrir, og mundi þá seinka, að bætt yrði úr þeirri miklu nauðsyn, að þessu sjúkrahúsi yrði komið upp.
Varðandi Öxnadalsheiðarveg hef ég í rauninni engu við það að bæta, sem ég sagði áður; að þrátt fyrir það að nú séu fullgerðir nokkrir aðalvegir, sem hafa verið fjárfrekir undanfarin ár, þá er nú gripið til þess ráðs að lækka framlög til þessara höfuðvega um mjög verulega upphæð frá því, sem verið hefur, og þó að hv. frsm. segi, að ekki hafi verið hægt að veita meira til þarna vegna þess, að þörfin sé meira aðkallandi annars staðar til smærri vega, þá hefur þó verið veitt veruleg upphæð til þessara vega, og ættu því ekki að vera minni möguleikar til þess en áður að láta Öxnadalsheiðarveginn fá svipaða upphæð og undanfarin ár.
Varðandi þá breyt., að þjóðvegurinn að Kræklingahlíð næði að Akureyri, þá dró hv. frsm. í efa, að hægt væri að hefja þá framkvæmd nema breytt yrði vegal. Þetta held ég, að sé byggt á misskilningi. Ákvæði vegal. eru aðeins um það, að vegur skuli lagður um Kræklingahlíð að Akureyri, og því yrði ekki haggað með þessu, vegurinn lægi eftir sem áður um Kræklingahlíð og fullnægir eftir sem áður ákvæðum vegal. Hitt kynni að orka tvímælis, hvort hægt væri að byggja brú á Glerá án þess að setja það sérstaklega í brúalög. Það má vera, að þá upphæð, sem hér um ræðir, væri hægt að nota til þess að byrja á því að breyta veginum, en hún er aðeins 1/4 af því, sem áætlað er, að þetta kosti, og ég tel af þeim undirbúningi, sem þegar hefur farið fram á vegarstæði, að það sé ekkert í veginum með það, ef fjárveiting væri fyrir hendi til þessa.
Um þessar till. skal ég svo ekki karpa við hv. frsm. En það, sem sérstaklega varð til þess, að ég kvaddi mér hljóðs, voru þau ummæli, sem hann hafði í sambandi við hafnarmál Akureyrar. Hann gaf þær upplýsingar, að eftir þeim heimildum, sem hann hefði, væri ekkert samkomulag um þessar framkvæmdir heima fyrir, sem lá beinast við að skilja á þann veg, að litlar líkur væru til þess, að nokkuð yrði um þessar framkvæmdir á yfirstandandi ári. Í öðru lagi gaf hann þær upplýsingar, að það væri fyrirhugað af bæjarstjórn Akureyrar og hafnarstjórninni þar að fara í kringum gildandi h um þetta efni og líkur bentu til þess, að það væri ekki ástæða til, að Alþ. veitti fé í slíkar framkvæmdir. Hvort tveggja þetta hefur ekki við nein rök að styðjast, og tel ég mér skylt að mótmæla þessum ummælum hv. frsm. Það hefur þvert á móti verið fullt samkomulag milli yfirvalda t hafnarmálum Akureyrar um þá framkvæmd að byggja dráttarbraut, og varðandi þau ummæli, að fyrirhugað sé að fara í kringum hafnarl. í sambandi við þessa framkvæmd, þá held ég líka, að það sé ekki á rökum byggt. Hv. frsm. talaði um það, bæði í sambandi við þessa framkvæmd og aðrar, að viðkomandi staður yrði sjálfur að leggja fram fé til slíkra framkvæmda. Það hefur verið svo, að þó að höfnin á Akureyri sé skuldlaust fyrirtæki og hefði þess vegna átt að hafa nokkra möguleika til þess að fá lán til þessara framkvæmda, þá hefur hún ekki enn þá getað fengið lán til þessara framkvæmda hjá lánsstofnunum hér í Reykjavík þrátt fyrir tilraunir bæjarstjórnar Akureyrar. Það er fyrst og fremst þetta, sem hefur staðið í veginum fyrir því, að Akureyrarhöfn hafi getað nota'ð það fé, sem á seinustu árum hefur verið varið til hafnarframkvæmda á Akureyri. Vegna þess hefur verið farið inn á þá braut, sem ég er ekki sérstaklega að mæla með, að fá einstaklinga og fyrirtæki á Akureyri til þess að útvega fé til framkvæmda með þeim hætti að stofna hlutafélag, sem lánar Akureyrarhöfn fé til þessara framkvæmda gegn því, að höfnin leigi síðan þessu hlutafélagi dráttarbrautina um tiltekinn tíma. Ég býst við, að það sé þetta, sem hv. frsm. n. á við, þegar hann talar um, að fyrirhugað sé að fara í kringum hafnarl. við framkvæmd þessa verks. Ég held, að það sé alveg rangt að segja, að með þessu sé farið í kringum hafnarl. eða verið að reyna að ná út úr ríkissjóði fé með ólöglegum hætti. Bærinn eða Akureyrarhöfn verður skýlaust eigandi þessa fyrirtækis, sem þarna á að byggja, og á líka skýlausan rétt á því eins og aðrir staðir að fá til þess fé úr ríkissjóði samkvæmt ákvæðum hafnarl. um þetta efni. Hitt tel ég bænum frjálst að gera, að leigja fyrirtækið öðrum aðilum, en það er það eina, sem fyrirhugað er að gera í sambandi við þessa framkvæmd. Ég skal líka geta þess, í sambandi við þau ummæli, sem hér hafa fallið, að Akureyri hafi ekki notað það fé, sem veitt hefur verið til hafnargerðar þar undanfarið, að ég held, að hv. frsm. hafi látið orð falla um það, að enn væru til staðar óeydd framlög til hafnarinnar fyrir árin 1946 og 1947, en þetta er ekki rétt. Til hafnarinnar hefur verið veitt á fjárl. þessara tveggja ára kr. 280800, en það fé, sem talið er, að hafi verið óeytt s.l. áramót, var 230000 kr., eða m.ö.o. það hefði þá verið unnið fyrir 200000 kr., ef framlag ríkisins þessi 2 ár hefði fengizt. Það er því engan veginn rétt, að ekki hafi verið neitt aðhafzt í hafnarmálunum þessi tvö seinustu ár. Hitt, að ekki hefur verið gert meira, stafar af því, að ekki hefur tekizt enn þá að fá lánsfé, sem höfnin hefur þurft á að halda til þess að geta komið þessari framkvæmd eitthvað áfram. Hins vegar hefur þessi dráttur orðið til þess, að nú er nauðsynin enn þá meir aðkallandi, þannig að ekki er lengur hægt að komast undan því, og vegna þeirrar nauðsynjar er farið inn á þá braut, sem hv. form. fjvn. virtist vera að fordæma. Þetta er aðeins viðleitni Akureyringa til þess að ná nokkru fé til þess að geta haldið þessum framkvæmdum áfram, og ég geri ráð fyrir því, að það muni verða leitað ráða til þess að koma þessu mannvirki nú meira áleiðis á því á~ri, sem nú stendur yfir, en verið hefur, vegna þess að nú verður ekki lengur hægt að víkjast undan því. Dráttarbrautin er svo aðkallandi, að það eru vandræði fyrir alla skipaeigendur norðanlands að geta ekki fengið skipin tekin upp, og þess vegna er vaknaður hjá þeim áhugi fyrir því að greiða fyrir málinu á þann hátt, sem hér er lýst. Á hinn bóginn er hafnarbryggjan á Akureyri svo léleg, að hún getur svo að segja hrunið hvaða dag sem er. Ég held þess vegna, að það sé heldur ekki hægt að víkjast undan því lengur að gera á henni verulegar endurbætur, sem áætlað er af vitamálaskrifstofunni, að muni kosta um 2 millj. kr. Áætlanir um bæði mannvirkin hefur vitamálastjóri gert og tekið að sér að annast tæknilegan undirbúning, og hefur nú verið unnið eins mikið og hægt er og fé fæst til. Það er augljóst mál, að þessar 75 þús., sem nú á að veita, eru allsendis ófullnægjandi, og þegar litið er á hina brýnu þörf fyrir þetta mannvirki og þann undirbúning, sem Akureyrarbær hefur haft í þessu, og þessar 75 þús. bornar saman við 250 þús., sem veittar eru til annarra staða í þessu skyni, þá er þetta ósamræmi óverjandi og engan veginn sanngjarnt af fjvn. að taka svo lítið tillit til þessa.