13.03.1948
Sameinað þing: 54. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 674 í B-deild Alþingistíðinda. (888)

129. mál, fjárlög 1948

Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):

Þessi liður er fastur liður á útgjaldahlið fjárl. og var einn liðurinn í tilrauninni til þess að færa útgjöldin að verulegu leyti niður. Nú hefur, samkvæmt ósk ríkisstj., þessi liður verið tekinn aftur, og mun það hækka útgjöldin um 400 þús. kr. Ég hafði persónulega óskað eftir því, að þessi brtt. yrði tekin aftur til 3. umr., en meiri hl. fjvn. hefur ekki fallizt á það. Ég mun því sitja hjá við þessa atkvgr.