19.03.1948
Sameinað þing: 57. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 712 í B-deild Alþingistíðinda. (922)

129. mál, fjárlög 1948

Forseti (JPálm):

Ég vil biðja hv. frsm. að gera hlé á ræðu sinni meðan ég leita afbrigða um brtt. þær, sem áður er getið, sem sé brtt. 606 og 608, en þeim var útbýtt nú á fundinum. og skrifl. brtt. frá atvmrh., fjmrh. og 1. þm. N-M., sem allar verða prentaðar með þskjnr. 614. — Ég mun leita afbrigða um allar þessar brtt. í einu lagi.