19.03.1948
Sameinað þing: 57. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 713 í B-deild Alþingistíðinda. (925)
129. mál, fjárlög 1948
Helgi Jónasson:
Það var gaman, að það skyldi koma fram nú, að hv. form. finnst það ekki nóg, að það komi fram meiri hl., ef hann er á móti. Þetta er alveg ný skýring og sýnir, hvernig vinnubrögð hv. form. fjvn. vill hafa og hvernig hann vill hafa einræðisvald í n. Ef hann er á móti till., þá má ekki samþ. hana. Ef þetta margir eru með, en hann á móti, þá á það ekki að koma fram. Þetta sýnir, hvað varasamt er að hafa þennan þingflokk í þessu umboði og mann með hans hugarfari. — En hv. form. skýrir ekki alveg rétt frá því, að engar till., sem hann er á móti, hafi verið lagðar hér fram. Og hvað því viðvíkur, að við framsóknarmennirnir tveir eigum sök á till. n., þá veit ég ekki, hvernig hann fer að skýra það, þar sem við erum aðeins tveir. Ég býst við, að það sé erfitt fyrir hv. form. að skella öllum hækkunartill. á okkur tvo, og má þá gjarnan fara yfir þau plögg og sjá, hvort það er rétt. Ég sagði aðeins í minni fyrri ræðu, að þetta hefði verið samþ. í n. í morgun, en af einhverjum ástæðum hefði það fallið niður hjá form. Ég vissi hins vegar, hvaða ástæða það var. Það var af því, að hann er á móti till., en ég kæri mig ekki um að nefna það, en hann hefur fundið, að það var hans sök að bera ekki till. fram.