22.03.1948
Sameinað þing: 59. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 717 í B-deild Alþingistíðinda. (942)

129. mál, fjárlög 1948

Einar Olgeirsson:

Heiðruðu hlustendur! Þegar við leggjum dóm á verk þessarar hv. ríkisstj., verðum við að minnast þess, að þessari ríkisstj. er meira vald gefið en nokkurri annarri, sem setið hefur að völdum á Íslandi. Hún hefur að heita má einræðisvald yfir öllu atvinnu- og verzlunarlífi Íslendinga. Hún ræður því, hvort hér er full atvinna eða atvinnuleysi. Hún ræður því, hvort við hagnýtum þá miklu markaðsmöguleika, sem þjóðin hefur. Hún hefur óskað eftir þessu valdi af Alþingi og fengið það. Hún hefur þurrkað út það lítið, sem eftir var af svo kölluðu „frjálsu framtaki“, sem til var í landinu, og gersamlega útrýmt þeim litlu leifum, sem eftir voru af svo kallaðri „frjálsri verzlun“ og tekið á sig þá ábyrgð að selja í staðinn framtak hins opinbera og skipulagningu ríkisins á framtaki þegnanna og skuldbundið sig jafnframt gagnvart þjóðinni í lögunum um fjárhagsráð til að tryggja öllum næga og örugga vinnu. Þessi ríkisstj. hefur haft betri tæknilega aðstöðu en nokkur stjórn, sem áður hefur setið að völdum á Íslandi, til þess að láta þetta mikla vald sitt verða þjóðinni til blessunar. Hin stórvirku nýsköpunartæki, sem aflað var handa sjávarútveginum í tíð fyrrv. stj., eru nú farin að mala þjóðinni gull, þau eru henni nú miklu verðmeiri en féð, er þjóðin galt fyrir þau, og sum þeirra, svo sem nýsköpunartogararnir, munu á einn ári framleiða andvirði sitt í erlendum gjaldeyri. 20 nýir togarar og 4 ný flutningaskip sigldu til landsins á síðasta ári. A.m.k. 10 nýir togarar og mörg ný stór flutningaskip bætast við flotann á þessu ári, samkvæmt ákvörðunum, er teknar voru áður en þessi stjórn kom til valda. Auk hins mikla nýja fiski- og flutningaskipaflota ræður þjóðin svo yfir stórvirkari vinnslutækjum til hagnýtingar sjávaraflans en nokkru sinni fyrr: ný hraðfrystihús, síldarverksmiðjun, fiskiðjuver, sem öll geta afkastað stórkostlega miklu, ef úrræðaleysi eða þröngsýni valdhafanna hindrar ekki rekstur þeirra. Þar að auki biður innlendur iðnaður, að miklu leyti endurnýjaður með auknum vélakosti fyrir nýbyggingarsjóðina, eftir stærri verkefnum en áður, reiðubúinn til þrotlausrar framleiðslu verðmæta handa landsbúum, ef hann fær að starfa. Og landbúnaðurinn er nú afkastameiri en nokkru sinni fyrr og bændur reiðubúnir til kaupa á meiri landbúnaðarvélum og áburði til að auka framleiðsluna, ef þeir aðeins fá þessar nauðsynjar.

Þessi ríkisstj. hefur í krafti valds síns yfir utanríkisverzluninni getað tryggt Íslendingum óþrjótandi markaði fyrir framleiðslu vora og skipulagt með stórfelldri vöruskiptaverzlun innflutning á flestöllum nauðsynjum vorum. Hún hefur haft tækifæri til þess að gera jafnvel samninga til margra ára um afurðasölu og innkaup, til þess að skapa þannig það öryggi í markaðsmálum vorum, sem allir framleiðendur þrá. Þessi ríkisstj. hefur enn fremur haft möguleika inn á við til þess að bæta kjör almennings, gera hann efnahagslega sjálfstæðari, gera fleirum fært að eignast þak yfir höfuðið eða einhver atvinnutæki, skapa meiri efnahagslegan jöfnuð á Íslandi, því að aldrei hefur eins mikill auður verið til á landi voru og nú.

Við skulum nú athuga, hvernig hæstv. ríkisstj. hefur notað sítt mikla vald á öllum þessum sviðum, en undir því er lífsafkoma þjóðar vorrar komin, að svo miklu leyti sem það er á manna valdi, hver hún verður.

Hvernig hefur ríkisstj. notað hið mikla vald sitt yfir atvinnu- og verzlunarlífinu? Hún lofaði að tryggja öllum næga og örugga atvinnu, hún lofaði endurbótum og umbótum á öllum sviðum þjóðfélagsins. Hvernig hefur hún efnt það? Ríkisstj. hefur ráðizt á lífskjör verkamanna og allra launþega. Hún hefur leitt vágest atvinnuleysisins inn á heimili alþýðufólksins að nýju, og hefði nú þegar sorfið sárt að fjölda alþýðuheimila í Rvík í vetur, ef síldin hefði ekki eyðilagt fyrirætlanir ríkisstj. um algert atvinnuleysi. — Ríkisstj. hefur með þrælalögunum frá í vetur svipt alla launþega allt að 10% af launum sínum, eða rænt af launþegastéttinni allt að 50 millj. króna á þessu ári, ef launaránið héldist allt árið. Þetta er gert undir yfirskini dýrtíðarinnar, en hver hefur merkt, að dýrtíðin hafi minnkað við þetta? Þvert á móti. Samtímis árásinni er einmitt dýrtíðin gerð miklu tilfinnanlegri fyrir alþýðu. Hver er afleiðingin af þessu lögboðna launaráni ríkisstj.? Í fyrsta lagi sú, að lífskjör allra launþega versna, og það hefur síðan áhrif á allt viðskiptalíf þjóðarinnar, á afkomu handverksmannsins, smákaupmannsins, — allra. En í öðru lagi þá þýðir þessi launalækkun það fyrir fjöldann af starfsmönnum og verkamönnum, sem undanfarið hafa lagt í að kaupa sér íbúð eða byggja sér hús, að þeir geta margir hverjir ekki staðið í skilum og missa íbúð sína. Gerir ríkisstj. eitthvað til þess að hjálpa slíkum mönnum? Nei, þvert á móti. Hún lofar Landsbankanum og þar með öllum bönkum og okrurum að hækka vextina, gera erfiðara að fá lán. Hún reynir m.ö.o. að gera þá menn, sem urðu bjargálna, aftur að öreigum, í stað þess að hjálpa þeim með því að tryggja þeim löng lán, lægri vexti og minni afborganir, því að þjóðfélaginu er hagur að því, að sem flestir þegnar þess verði efnahagslega sjálfstæðir. Við skulum síðar koma að því, hvers vegna ríkisstj. er að hrinda þeim alþýðumönnum, sem undanfarin ár hafa verið að klóra í bakkann og eignast eitthvað í sveita síns andlitis, fram af bakkanum, niður í hringiðu þeirrar kreppu, sem stj. er að reyna að búa til.

Hvernig hefur ríkisstj. svo farið með sjómenn og útvegsmenn, þá framleiðendur, sem þjóðin fyrst og fremst á afkomu sína undir? Ríkisstj. hefur með þrælalögunum í vetur lækkað þá lágmarkstryggingu, sem sjómaðurinn áður hafði, og rýrt þannig kjör hans. En hatrammast er þó það rán gagnvart fiskimönnum öllum, sem ríkisstj. framkvæmir með því að taka af þeim allan afla þeirra með valdboði og skammta þeim síðan verð fyrir hann samkv. leynisamningum, er hún gerir og þjóðin fær ekkert að fylgjast með í, og ræna þá öllum áhrifum á meðferð gjaldeyrisins, er þeir afla. Síðan tekur ríkisstj. gjaldeyrinn, sem hún hefur aflað sér með þessu þokkalega valdboði, og útbýtir honum eftir eigin geðþótta til þeirra, sem hún hefur velþóknun á.

Hvað heitir þetta skipulag gagnvart fiskimönnum hvað útflutninginn snertir og öllum landsmönnum hvað innflutninginn snertir? Á 17. öld var það kallað einokun, og svo heitir það enn. Og þessi einokun er framkvæmd án snefils af lýðræði eða eftirliti frá þjóðarheildinni. Aðeins hirðgæðingar einræðisherranna fá að fylgjast með framkvæmdunum. Alveg blygðunarlaust er þurrkað burt allt, sem heitir jafnrétti Íslendinga fyrir lögunum. Ríkisstj. litur á valdið yfir atvinnu- og verzlunarlífi Íslendinga sem féþúfu fyrir sig og gæðinga sína og útilokar þess vegna eigi aðeins stjórnarandstæðinga og helztu samtök þjóðarinnar frá öllum nefndum, sem hafa með veigamestu hagsmunamál þjóðarinnar að gera, heldur dregur hún og slíkan leyndarhjúp yfir athafnir sínar á þessum sviðum, að öllum landsmönnum ofbýður, meira að segja verzlunarráðsþinginu.

Nú vill máske einhver segja, að þótt gjaldeyririnn sé tekinn af fiskimanninum, sem aflar hans með súrum sveita, þá gangi þetta þó jafnt yfir alla menn á Íslandi, svo að ekki verði ríkisstj. sökuð um hlutdrægni þar, því fer fjarri. Ríkisstj. leyfir þeim mönnum að brjóta þau lög, sem hún hefur velþóknun á. Ef Ameríkani kemur til Keflavíkur með sína dollara og dvelur þar og heyrir því undir íslenzk lög, þá þarf hann ekki að afhenda dollara sína. Hann selur þá hæstbjóðanda á 15 kr. fyrir dollarann. slík uppboð fara daglega fram á Keflavíkurflugvelli. Ríkisstjórnin og Landsbankinn, sem bæði kvarta um dollaraleysi, gera ekkert til þess að láta Ameríkana hlýða lögum. Íslenzkur sjómaður og útvegsmaður í Keflavík, er tækju síldarolíuna sína og seldu fyrir 140 sterlingspund tonnið út úr landinu og keyptu sér nauðsynjar fyrir gjaldeyrinn, mundu tafarlaust fara í tukthúsið, því að þá mundi stjórnin sýna röggsemi, ef Íslendingur dirfðist að haga sér eins og frjáls maður. En ef amerískt auðfélag kemur og byggir stórhýsi í Reflavík og selur dollara á svörtum markaði fyrir 15 kr., til þess að sleppa við að láta þá á 6.50 kr. í Landsbankann, þá hneigir dómsmrh. sig í auðmýkt. Þá eru engin dollaravandræði, engin einokun, — Ameríkanar skulu hafa frelsi til að brjóta íslenzk lög eins og þeim þóknast. Það skal ríkisstj. sjá um. Herraþjóðin skal fá að finna það, að hún ræður í landinu og að ríkisstj. er hennar trúr og öruggur þjónn gagnvart þeim innfæddu. En vel Íslendingum, ef þeir gleyma því, að þeir eru orðnir undirþjóð, sem hefur ekki meiri rétt móts við Ameríkana í eigin landi nú en móts við einokunarkaupmenn Dana forðum. En ég kem nánar að því síðar, hve ólikt lögunum er nú beitt á Íslandi, eftir því hver í hlut á: við Íslendingar eða menn ríkisstj., Ameríkanar.

Við skulum svo athuga aðfarir einokunarstjórnarinnar á öðrum sviðum. Byggingariðnaðinn hefur hún hneppt í fjötra. Í fyrsta skipti í sögu Íslands hefur mönnum nú verið bannað að byggja sér þak yfir höfuðið, og frekar hefur sement og timbur verið látið skemmast en slíkt hafi verið leyft. Innlenda iðnaðinum hefur verið neitað um hráefni og hann þannig stöðvaður að mestu. Er það einn liður í þeim fyrirætlunum ríkisstj. að koma á atvinnuleysi, til þess að reyna að brjóta verkalýðssamtökin á bak aftur, — eða er það bara óforsjálni og skeytingarleysi valdhafanna? Ekki þarf að kenna gjaldeyrisskortinum um það. Hverri skynsamri stjórn var innan handar að semja í tíma við önnur ríki um gagnkvæma afhendingu á vörum, svo að íslenzki iðnaðurinn fengi sín hráefni nógu snemma til að geta starfað. En af því að ekkert er hugsað um neitt fyrr en í óefni er komið, þá lætur stj. nú flytja inn útlent þvottaduft, sem selt er á 6.10 kr. pakkinn, þegar innlendi iðnaðurinn selur á 1,30–1,45 kr., svo að maður ekki tali um, hvernig Ameríkanarnir á Keflavíkurflugvelli smygla inn erlendri iðnaðarvöru og selja fyrir okurverð, meðan íslenzkum iðnaði er neitað nm hráefni til þess að framleiða sams konar vöru ódýrar.

Samtímis þessari herferð gegn heilbrigðu atvinnulífi landsmanna er svo hafin árás á alla þá umbótalöggjöf, sem sett hefur verið á undanförnum árum, meðan sósíalistar voru í stjórn. Réttur landsmanna samkvæmt alþýðutryggingunum er rýrður. laun almennra starfsmanna ríkisins eru skorin niður með þrælalögunum. en hinir hæstlaunuðu stjórnargæðingar, eins og fjárhagsráðið, hækka bara hjá sér grunnlaunin að sama skapi, svo að ekki gangi sparnaðurinn út yfir þá, sem tala hæst um hann.

Á dögum nýsköpunarstjórnarinnar var sett löggjöf, sem átti að tryggja þeim fátæku, er reisa vildu sér íbúðarhús, ódýr og góð lán. Þessa löggjöf hefur ríkisstj. eyðilagt í framkvæmd, og nú leggur hún frv. fyrir þingið, bandorminn svo kallaða, til þess raunverulega að fella hann úr gildi (um stundarsakir). Það er borið við lánsfjárskorti, látið í það skína, að ríkisstj. ráði ekki við Landsbankann, fái hann ekki til þess að leggja fram fé. Það eru bara fátækir menn, sem þarna eiga í hlut, menn, sem langar til að bjarga húsunum sínum, svo að þau lendi ekki í klóm braskaranna, eða langar til að byggja yfir sig. Þá kærir ríkisstj. sig ekki um að beita valdi sínu. En það er annað, ef ríkir menn eiga í hlut, svo sem nú skal greina.

Lánin úr Stofnlánadeild sjávarútvegsins voru í haust að ganga til þurrðar. Smáútvegsmenn og sjómenn viða um land biðu eftir lánum, sem þeir höfðu treyst á. Landsbankinn vildi samkvæmt sínum skilningi á reglugerð stofnlánadeildarinnar ekki láta ríkustu togaraeigendur í Rvík, sem áttu nóga nýbyggingarsjóði, fá lán samtals 8 millj. króna, sem þeir vildu fá. Þá greip ríkisstj. inn í og sýndi vald sitt og skipaði Landsbankanum að lána hinum auðugu 8 milljónirnar, — ríkisstj. túlkaði bara reglugerðina í þágu milljónamæringanna — og Landsbankinn varð að beygja sig. Þar með eru stofnlánin þrotin. Þeir fátæku gátu svo farið á hausinn, þá gátu milljónamæringarnir keypt tækin þeirra fyrir ódýr lán úr Landsbankanum. Þetta mun ríkisstj. kalla að hlynna að efnahagslegu sjálfstæði einstaklingsins.

Hvert stefnir ríkisstj. með öllu þessu? Hún þarf ekki að bera því við, að bankarnir tapi og skorti lánsfé. Landsbankinn græddi síðasta ár 16 millj. króna og seðlavelta hans er nú aðeins 122 milljónir móti 181 milljón hæst í fyrra. Lánsfjárkreppan, vaxtahækkunin og öll árás ríkisstj. á lífskjör almennings er ránsherferð á hendur fólkinu í þessu landi, til þess að ræna eignum þess og rýra kjör þess, en auka auð þeirra 200 einstaklinga og félaga í Reykjavík, sem áttu um fyrri áramót samkvæmt eigin framtali 500 milljónir kr. í skuldlausum eignum, ef metið er með mælikvarða eignaraukaskattsins. Það er þessi ránsherferð, sem verkalýður og millistéttir landsins þurfa að sameinast gegn.

Þá skulum við athuga framkomu þessarar ríkisstj. í hagsmunamálum þjóðarinnar út á við. Þessi ríkisstj. hefur haft möguleika til þess að tryggja Íslandi óþrjótandi markaði fyrir allar okkar afurðir, en hún hefur ekki hagnýtt það tækifæri, heldur valið stefnu í markaðsmálum okkar, sem fjandsamleg er hagsmunum Íslands og leiðir yfir þjóðina eyðileggingu markaðanna og hrun útflutningsins eftir nokkur ár og setur oss undir efnahagslega yfirstjórn auðdrottnanna í Wall Street. Skal ég nú sanna þetta mál mitt. Fyrst skulu athugaðir möguleikarnir, sem verið hafa til að tryggja Íslendingum örugga markaði í Mið- og Austur-Evrópu. Engum blandast hugur um, hve eðlileg verkaskipting það sé með þjóðum Evrópu, að vér eyjarskeggjar, mitt í beztu fiskimiðum heims, framleiðum sérstaklega fiskafurðir fyrir þjóðir þær, sem búa á meginlandi Evrópu og eiga ekki strönd að úthafi. Í haust og vetur hafa þessar þjóðir Austur-Evrópu verið að gera stórfellda viðskiptasamninga til tveggja, þriggja og allt upp í fimm ára. Þær voru með slíkum samningum að tryggja sér gagnkvæmt markaði fyrir útflutningsafurðir sínar og nauðsynjar til innflutnings. Ég fylgdist af athygli með þessum samningum, er um þá var ritað erlendis, og skrifaði greinaflokk í haust um nauðsyn þess, að vér Íslendingar reyndum að tryggja oss, t.d. með helminginn af útflutningsafurðum okkar. með samningum við þessar þjóðir. Ég vakti sérstaka athygli á því í út-varpsræðu héðan 16. okt. í haust, að nauðsynlegi: væri að gera tafarlaust gangskör að því að hef ja samninga við Tékkóslóvakíu, Sovétríkin, Pólland, Austur-Þýzkaland, Ungverjaland og önnur þessi lönd, ef dýrmæt tækifæri ættu ekki að ganga okkur úr greipum. Ekkert fékkst gert þá strax. Þvert á móti var sleppt tækifæri til þess að gera um miðjan nóvember samning við Tékkóslóvakíu um sölu á íslenzkum afurðum fyrir 37 millj. króna og kaup fyrir svipaða upphæð. Önnur ríki hagnýttu sér tækifærið betur. Þessi nefndu Austur-Evrópuríki gerðu eigi aðeins hina þýðingarmestu viðskiptasamninga sín á milli. Önnur ríki gerðu og stórsamninga við þau. Brezka stjórnin gerði á þessum tíma viðskiptasamninga við Pólland, Ungverjaland, Júgóslavíu og Sovétríkin, suma til margra ára. Norðmenn undirskrifuðu í lok fyrra árs samning við Sovétríkin um að tvöfalda viðskipti þjóðanna á árinu 1948. Um mánaðamótin jan.–febr. hófu norska og rússneska stjórnin svo undirbúning að viðskiptasamningum til fleiri ára. Danir hafa nú gert stórsamning við Austur-Þýzkaland, m.a. um sölu á síld. Og þannig mætti lengi rekja. Norður- og Vestur-Evrópulöndin sóttust eftir slíkum viðskiptasamningum, eigi aðeins vegna þess að þau fengu að austan korn, fóðurvörur og annað, sem þau sárlega vanhagaði um, heldur líka vegna hins, að þau vildu tryggja sér markaði í þessum sósíalistísku löndum. Stjórnir þessara vesturlanda vissu af sárri reynslu áranna. 1929–34, hve hörð kreppan er í auðvaldslöndunum, og skilja, að í sósíalistískum þjóðfélögum eru markaðirnir óþrjótandi. Þess vegna sé um að gera að komast inn á þá markaði í tíma og láta. ekki bola sér þaðan út. Íbúar allra auðvaldslanda hugsa með ógn til þess að eiga aftur að upplifa kreppu eins og 7930–32: aftur að dæma milljónir til atvinnuleysis, aftur að verða að hungra mitt í allsnægtunum. Vér Íslendingar munum, hvað það þýddi: Fiskurinn féll um tvo þriðju í verði eða varð óseljanlegur, en fólkið hungraði í löndunum, sem gátu ekki keypt hann. En ríkisstj. Íslands var ekki að hugsa um að reyna að afstýra slíkri kreppu. Hún neitaði að lofa sendimönnum Íslands að undirskrifa í nóvember samning við Tékka um viðskiptin 1948. Nú loks hefur hún leyft sendiherra Íslands að undirrita slíkan samning. Það kemur í ljós, að enn er að vísu hægt að gera stóran samning við Tékka: selja vörur fyrir um 27 millj. ísl. kr., eða allt að því þreföld viðskipti miðað við síðasta ár. Sýnir þetta, hve gífurlegir markaðsmöguleikarnir eru eða hafa verið hjá öllum þessum þjóðum, ef notaðir væru. En hins vegar kemur í ljós, að Tékkar, sem vildu kaupa mikið af íslenzkri síld í haust, vilja nú enga síld kaupa, og stálið, sem þeir vildu selja oss í haust, fæst nú ekki nema að nokkru leyti. Við þurfum ekki að fara í neinar grafgötur um, hvaða keppinautar okkar hafa grætt á biðinni. — Ríkisstj. hafði loks í des. spurt Sovétstjórnina um, hvort hún væri reiðubúin til samninga. Hvorki utanrmn. né Alþingi hefur enn fengið að sjá þau tilmæli eða skeyti, sem Bjarni Benediktsson, utanrrh., sendi við það tækifæri. Hafi hins vegar inntak þeirra tilmæla og eðli verið eitthvað svipað þeim skeytum, er hann beinir að þeirri stjórn í Morgunblaðinu, þá fer ef til vill að verða skiljanlegt, af hverju ekkert svar hefur borizt enn. Hins vegar hljóta allir Íslendingar, sem láta sér annt um framtíðarhagsmuni sjávarútvegsins, að vona, að ekki takist að eyðileggja þá dýrmætu markaði, er unnust þar eystra á undanförnum árum.

Hvað öll hin löndin þar eystra snertir, sem ekki hafði unnizt tími til að ná sem mörkuðum fyrir Ísland áður en niðurrifsstjórnin tók við völdum: Pólland, Austur-Þýzkaland, Ungverjaland o.s.frv., þá hefur stjórnin ekkert gert til þess að koma íslenzkum afurðum þar inn, frekar spillt þar fyrir. Með öðrum orðum: Meðan skæðustu keppinautar okkar, eins og Norðmenn og Englendingar, vaða um öll þessi Austur-Evrópulönd og margfalda viðskipti sín við þau jafnvel með margra ára viðskiptasamningum, þá sitja stjórnendur utanríkisverzlunar Íslands eins og litlir, penir dollaradrengir, skrifa nið um þessi ríki eftir fyrirsögnum frá Washington og láfa keppinauta okkar. sem taka fyrirskipanir dollaravaldsins ekki eins alvarlega, ná frá okkur öruggustu framtíðarmörkuðunum. Takist þessum herrum það skemmdarverk, sem þeir nú eru að reyna að vinna í markaðsmálunum, þá leiða þeir eftir tvö ár slíka kreppu yfir sjávarútveginn, að það getur riðið honum og þar með efnahag Íslands að fullu.

Og nú skulum við athuga þá markaði, sem ríkisstj. ætlar að byggja framtíð Íslands á í stað þeirra, sem hún er að reyna að eyðileggja. Í áliti sérfræðings Marshalláætlunarinnar um Ísland, sem birtist í íslenzkri þýðingu í Alþýðublaðinu í byrjun febrúar, segir svo í niðurlaginu (Alþbl. 5. febr.):

„En Íslandi ætti að geta auðnazt að vinna aftur eitthvað af hinum fyrri mörkuðum sínum í Þýzkalandi og Miðjarðarhafslöndunum, þegar efnahagur Evrópu hefur gert neytendur hennar færa um að greiða íslenzka fiskinn í gildum erlendum gjaldeyri eða í þeim vörum, sem það þarfnast. Jafnframt mundi viðreisn Evrópu gera Íslandi unnt að gera meira af innkaupum sínum þar og sigrast á þann hátt á dollaraskortinum. Þannig gæti viðreisn Evrópu orðið til þess, að Ísland kæmi efnahag sínum á réttan kjöl án þess að fórna öllum þeim fríðindum, efnahagslegum og félagslegum, sem það nú getur boðið íbúum sínum, enda þótt það geti ekki. meðan á viðreisninni stendur, náð efnahagslegu jafnvægi án þess að skerða lífskjör þeirra allverulega.“

Þetta eru orð Marshallsérfræðingsins í þýðingu alþýðublaðsins. Þarna eru markaðirnir, sem okkur er gefin von um: Þýzkaland og Miðjarðarhafslöndin. Sérfræðingurinn veit, að England verður ekki lengi aðalmarkaður fyrir okkur. Því veldur ekki aðeins, að Bretar munu efla togaraflota sinn aftur strax og þeir geta, heldur og hitt, að Færeyingar og Norðmenn munu fá þar forgang, er fram í sækir. — Ég mun síðar koma að þessari glæsilegu framtíð, er sérfræðingurinn spáir okkur í efnahagslegu tilliti. — Blað forsrh., Alþýðubl., gerir svo orð og álit Marshallsérfræðingsins að sínum í ritstjórnargrein 8. febr., er heitir „Marshalláætlunin og Ísland“. Þar segir: „Og raunar er niðurstaða álits þeirra sú, að fyrir okkur sé viðreisn Vestur-Evrópu og endurheimt hinna gömlu, góðu markaða í Miðjarðarhafslöndunum og Þýzkalandi brýn nauðsyn; þá fyrst sé efnahagur okkar tryggður.“ Það þarf því ekki að fara í neinar grafgötur um stefnu ríkisstj. í markaðsmálum. Hún er: með viðreisn Þýzkalands og endurheimt hinna „gömlu, góðu markaða í Miðjarðarhafslöndunum“ er efnahagur Íslands tryggður. Á grundvelli þessa loforðs ríkisstj. á hún nú að fara áfram með einræðisvald það, sem hún hefur tekið sér. Skal nú athugað í ljósi reynslunnar og yfirlýsinga Marshallmannanna, hve haldgott þetta loforð muni verða. Við skulum fyrst athuga Þýzkaland. Í vetur fyrir jól var tilkynnt með miklum fögnuði, að ríkisstj. hefði tekizt að tryggja samninga um ísfisksölu til Þýzkalands, er hafizt gæti bráðlega, og yrði að einhverju leyti greitt í dollurum. Síðan eru liðnir 3 mánuðir. Salan á ísfisknum er ekki byrjuð enn. Hún mun vafalaust hefjast bráðlega, en við fáum ekki einn einasta dollar fyrir þann fisk. Hvers vegna ekki? Bandaríkin neita að greiða dollara, þó að þetta fari á hernámssvæðið, sem þau nú raunverulega ráða. Við Íslendingar eigum ekki að fá að vinna okkur inn dollara á heiðarlegan hátt, með venjulegri afurðasölu. Það á að neyða okkur til að afla þeirra með öðru móti, og kem ég að því síðar. Þannig eru þessar efndir.

Hvernig er svo framtíðarútlitið um Vestur-Þýzkaland sem markað, þó að við getum selt þar nú, meðan Þjóðverjar hungra? Þegar engilsaxnesku hernámsvöldin komu upp þýzkri auðmannastjórn í Frankfurt fyrir skömmu, var aðeins ein tilkynning birt um efnahagslegar viðreisnarfyrirætlanir þeirra í íslenzka útvarpinu. Hún var þessi: Það á að koma upp stórum þýzkum fiskveiðiflota. — Hvað þýðir sköpun voldugs þýzks togaraflota fyrir okkur? Slíkur togarafloti verður ekki látinn veiða í Norðursjónum. Bretar vilja nú þegar friða hann sem mest. Slíkum þýzkum togaraflota verður sigað á Íslandsmið. Það er nú þegar byrjað. Viðreisn þýzka togaraflotans, sem ákveðin var í Frankfurt, er stríðsyfirlýsing gegn sjávarútvegi Íslendinga. Það, sem nú er undirbúið í Vestur-Þýzkalandi, er ránsferð á fiskimið Íslendinga. Og það eru engilsaxnesku veldin. sem stjórna henni. Við eigum að fá að selja fiskinn til Þýzkalands, meðan hungraðir Þjóðverjar eru að byggja upp fiskveiðiflotann gegn okkur. Síðan fáum við sparkið, — eftir 2–3 ár.

Og hvernig er svo um hina „gömlu góðu markaði í Miðjarðarhafslöndunum“? Það bregður fyrir viðkvæmni í Alþýðublaðinu, þegar það hugsar til indælla kynna af mörkuðunum undir járnhæl Mússolinis og Francos. Öðruvísi mér áður brá. 1934–38 sat hér að völdum svo kölluð „stjórn hinna vinnandi stétta“, Alþfl. og Framsóknar. Þessi stjórn átti við mikla efnahagslega örðugleika að glíma. Hver var höfuðástæðan að sögn . —Alþýðubl.? Hún var sú, að hinir „gömlu“ markaðir í Miðjarðarhafslöndunum reyndust síður en svo „góðir“. Þeir brugðust svo hrapallega, að efnahagslegt hrun vofði yfir Íslandi sökum þess og hnignun ferðist yfir flotann vegna markaðsvandræðanna. Og þessu sama öngþveiti eigum við von á aftur, ef sama þjóðfélagsástand helzt í þessum Suðurlöndum, og við erum fyrst og fremst upp á þau komin með sölu afurða vorra. því að það er þjóðfélagsástand þessara landa: auður einstakra aðals- og auðmannaætta annars vegar, en sár fátækt fjöldans hins vegar, sem skapaði kreppuna þar og skapar hana aftur. ef sama ástandið helzt. Við vitum hins vegar, að alþýða þessara landa hefur fullan hug á að láta ekki oftar skammta sér það hungurástand, og í því liggur okkar framtíðarvon. Við sjáum það bezt á Ítalíu nú, hvernig öll máttarvöld himins og jarðar eru sett í hreyfingu til þess að halda alþýðunni undir okinu. Páfinn hótar þeim helvíti, sem kjósa vinstri flokkana, — bannfæring kaþólsku kirkjunnar er vopnið, sem beitt er í kosningabaráttunni á Ítalíu í dag.Bandaríkjastjórn hótar þeim hungri, sem neyta sjálfsákvörðunarréttarins og lýðfrelsisins. Engan dollar, engan mat skal ítölsk alþýða fá, ef hún kýs eins og sannfæringin býður henni. Lausn af ótta, lausn frá skorti, — það voru loforðin um frelsið, sem Bandaríkin gáfu, meðan stríðið stóð. Hótun um hungur, hótun um atomsprengju, það eru efndirnar, sem Wall Street veitir þjáðum þjóðum Evrópu eftir stríð. — En sú alþýða, sem hefur hungrað í helviti fasismans í 20 ár undir járnhæl Mússolinis. mun ekki selja frelsi sitt fyrir amerískan baunadisk, þó að svöng sé enn. En fái alþýða Suðurlanda frelsi sitt, geti hún hrist aldagamalt ok fátæktarinnar af sér, þá er líka von okkar Íslendinga og vissa um viðskipti allt önnur en var. Sósíalisminn í Suðurlöndum, það þýðir, að alþýðan þar hafi efni á að eta sig sadda. Slík lönd eru alltaf örugg markaðslönd slíkra matarframleiðenda sem við Íslendingar erum, ef þau eru ekki sjálf stórir fiskframleiðendur. En sigri sósíalisminn í slíku landi, þá loka núverandi valdhafar lands vors því samstundis með járntjaldi forheimskunar og ofstækis, eins fast og þeir þora. Gyllingarnar um örugga markaði Íslendinga í Þýzkalandi og Suðurlöndum, ef þau verða Marshalllönd, eru blekkingar. Og það vita „sérfræðingarnir“ sjálfir, þótt þeir reyni að leyna þjóðina því. En þetta gloprast nú samt upp úr þeim.

16. jan. þ. á. birtist í Alþýðublaðinu frásögn um skýrslu utanrrn. í Washington, þar sem Marshallsérfræðingur þess segir, hvað Íslands biði á næstu árum. Þar stendur orðrétt: „Í kaflanum um Ísland í skýrslunni segir, að búizt sé við, að um 1950 verði framboð á fiski orðið meira en eftirspurnin, og gerir því skýrslan ekki ráð fyrir, að framlag íslands hafi mikla þýðingu eftir þann tíma.“ Þetta eru orð Alþýðublaðsins og Marshallskýrslunnar. M.ö.o., við ættum að fá að framleiða næstu 2–3 árin af fullum krafti fyrir Marshalllöndin, eyðileggja markaði okkar austur frá, og svo væri ekki þörf fyrir okkur lengur. Þá gat stöðvun, hrun og fátækt orðið hlutskipti okkar á ný. Marshallsérfræðingurinn, sem Alþýðublaðið vitnaði f, fer ekki dult með, hvað Íslendinga biði, ef orð hans eru vel athuguð:

1) Launaránið í vetur — þegar 50 millj. króna voru teknar af launþegum — kallar hann „vægilega ráðstöfun“.

2) Næstu tvö árin, segir hann, að verði að „skerða lífskjör Íslendinga allverulega.“

3) Þegar þessum niðurskurði svo er lokið, þá eru ekki meiri not fyrir okkur, og þá getum við engzt sundur og saman í klóm þeirrar kreppu, sem ameríska auðvaldið þá verður búið að leiða yfir heiminn.

Þetta eru framtíðarhorfurnar, — síversnandi lífskjör, er enda í hruni kreppunnar, — ef við látum þessa stjórn beygja okkur undir ok amerískrar viðskiptadrottnunar. Ef járnhæll dollaravaldsins á að fá að traðka sundur efnahag okkar, eins og sjálfir sérfræðingar Marshalls lýsa því í Alþýðublaðinu, þá þýðir það atvinnuleysi og skort á hverju íslenzku alþýðuheimili. Forboðarnir finnast nú þegar.

Hvernig fer svo sú stjórn, sem brýtur niður efnahagslegt sjálfstæði einstaklingsins, allt frá verkamanni til smáútvegsmanns eða iðnrekanda, og eyðileggur afkomuöryggi þjóðarinnar með skammsýnni verzlunarpólitík, — hvernig fer sú stjórn með stjórnarfarslegt og fjármálalegt sjálfstæði landsins? Það hefur reynt á þetta á einu sviði, um framkvæmd Keflavíkursamningsins, og kemur til með að reyna á það á öðru, um Marshallhjálpina svo nefndu. Í sambandi við framkvæmd Keflavíkursamningsins hafa öll íslenzk lög að heita má verið brotin. Gjaldeyrislögin, heilbrigðislögin, öll iðnlöggjöfin, tolllögin hafa verið þverbrotin, lögin um Tóbakseinkasölu ríkisins og Áfengisverzlun ríkisins eru tröðkuð undir fótum. Ameríkanarnir fá að haga sér eins og þeim þóknast, yfirvöldin láta lögbrotin viðgangast, því að æðsta stjórn landsins fyrirskipar það. Nýlega voru nokkrir leynivínsalar teknir í Reykjavík, og er nú verið að dæma þá. Er ekki nema gott um það að segja. Þessir menn hafa líklega haldið, að þeir voru orðnir Ameríkanar og mættu brjóta íslenzk lög. Ameríkanar hafa nú í heilt ár smyglað víni og bjór inn í landið. Þeir fluttu inn 16000 kassa af bjór í fyrra. Slíkt er algerlega bannað með íslenzkum lögum og engin heimild til handa Ameríkönum í Keflavíkursamningnum að gera slíkt. Þeir flytja inn mánaðarlega um 500 kassa, mestmegnis af sterku víni. Þeir svíkja toll af þessu öllu, hafa eftir lögum aðeins rétt til tollfrelsis af tíunda hluta — þeir brjóta lögin um, að allt áfengi, sem til Íslands flyzt, skuli flutt inn gegnum Áfengisverzlun ríkisins og með álagningu hennar, og þeir hafa í samningnum enga undanþágu gagnvart þessu. En ríkisstj. lætur smygl og lögbrot Ameríkana viðgangast. Við þeim má ekki hreyfa. Með lögbrotum Ameríkana er ríkið skaðað um milljónir dollara mitt í dollaraleysinn, og hér á Íslandi er það nú innleitt á ný, að allir séu ekki lengur jafnir fyrir lögunum. Ameríkanar eru af ríkisstj. með þessu athæfi gerðir að herraþjóð fyrir ofan lög og rétt.

Eftir alla sína hneykslanlegu framkomu stendur hæstv. ríkisstj. ekki lengur á grundvelli réttar og laga. Hún er orðin leppstjórn erlendra manna gegn íslenzku þjóðinni, sem lætur yfirboðurum sínum haldast uppi að brjóta lögin, en hneppir Íslendinga í fangelsi, ef þeir gera hið sama. Og þessi stjórn, sem svikizt hefur til valda að þjóðinni fornspurðri, — því að það var ekki Keflavíkursamningurinn og svona stjórn, sem þjóðin kaus í síðustu kosningum, — þessi stjórn býr sig nú undir að farga fjárhagslegu og stjórnarfarslegu sjálfstæði landsins og binda það á skuldaklafa amerísku auðdrottnanna með Marshallhjálpinni svo nefndu. Ríkisstjórnin hefur látið blöð sín reka mikinn áróður fyrir þessari Marshallhjálp, en hún hefur aldrei þorað að skýra þjóðinni frá því, með hvaða skilyrðum Marshalllánin eru veitt. Ég hef hér fyrir framan mig lagafrv. það um Marshalllánin, sem nú liggur fyrir Bandaríkjaþingi, ásamt fylgiskjölum þess. Í þessu frv. er ætlazt til þess, að Ísland taka 38 milljón dollara — eða 250 milljón kr. — lán á næstu 4 árum. Ég skal nú nefna nokkur skilyrði, sem hver þjóð verður að gangast undir samkv. þessum lögum, ef hún tekur lánið.

Eitt skilyrði er að gera ráðstafanir til að festa gengið og halda „réttu gengi“. Það er nú þegar opinbert, að amerísku bankarnir heimta almenna gengislækkun í Evrópulöndunum. eins og þeir þegar hafa knúð fram í Frakklandi. — Forsrh. hótaði í vetur, er þrælalögin voru samþ., að ef fólkið ekki sætti sig við þau, þá skyldi gengið lækkað. Í samningunum við Breta mun meiningin að selja allar okkar afurðir fyrir sterlingspund. Engar varúðarreglur munu settar, ef pundið fellur. Og amerísku auðmennirnir heimta nú þegar, að pundið sé fellt. Það er auðséð, hvert stefnt er.

Annað skilyrði Marshalllánanna er að leggja til hliðar í innlendri mynt jafnháa upphæð og láninu nemur, og þann sjóð má síðan aðeins nota í samráði við stjórn Bandaríkjanna. Þetta þýðir, að ef Ísland tekur t.d. 250 millj. króna lán samkvæmt Marshallhjálpinni, þá skal leggja til hliðar 250 milljónir kr. í íslenzkum gjaldeyri, sem aðeins má nota með leyfi hins ameríska fjárhaldsmanns, sem hér yrði samkv. Marshalllögunum. Ef Íslendingar eftir 5–10 ár vildu t.d. virkja Þjórsá fyrir þetta sítt eigið fé, yrði að fá leyfi fyrir fjárveitingunni hjá þessum ameríska fulltrúa. Hann gæti bannað oss það, eins og danski kóngurinn einu sinni bannaði okkur að brúa Ölfusá. Íslendingar væru þá búnir að afsala sér fjárveitingavaldinu aftur.

Ég skal ekki telja fleiri skilyrði Marshalllaganna að sinni. Þetta nægir til að sanna öllum heiðarlegum Íslendingum, hvers vegna stjórnarblöðin þegja um skilyrðin.

En það er máske rétt að nefna tvö skilyrði í viðbót, sem ekki eru í lögunum, en koma því greinilegar fram í ræðum amerísku ráðherranna. Fyrra skilyrðið er sett fram af Marshall utanrrh. Bandaríkjanna. Það er svo: Hvert ríki, sem fær Marshallhjálp, skal skuldbundið til þess að hafa ekki sósíalista í ríkisstjórn. — M.ö.o., hver Marshallþjóð skal afsala sér réttinum til þess að ráða því sjálf með frjálsum kosningum og frjálsu samkomulagi þjóðkjörinna þm., hvernig ríkisstj. er skipuð. — Síðara skilyrðið er sett fram af Forrestal, hermálaráðherra Bandaríkjanna, er utanríkismálanefnd öldungadeildarinnar yfirheyrði hann. Það er, að viðkomandi ríki ljái Bandaríkjunum herstöðvar. Þeim flökrar víst ekki við því skilyrði ráðherrum núv. ríkisstj. Ég læt þetta nægja til þess að sýna, hvers konar yfirgangsófreskja býr á bak við Marshalllögin, þegar mannúðargrímunni er svipt af þeim. En ef tilgáta mín um, að ríkisstj. ætli að taka Marshalllán, er röng, þá skora ég á hæstv. ríkisstj. að lýsa því yfir hér í áheyrn alþjóðar, að hún muni alls ekki taka lán samkv. Marshalllögunum, hvað sem á dynur, og hafa þá yfirlýsingu ótvíræðari en loforð sömu þm. við síðustu kosningar um að veita ekki herstöðvar — og halda það betur. En ég er hræddur um, að við fáum enga slíka ótvíræða yfirlýsingu. Ég veit ekki, hverju ríkisstj. svarar þessu um Marshalllánið. En ég veit, hverju hún svarar öllu öðru, sem ég hef sagt hér í kvöld. Það svar verður eitt þríraddað Moskva — Moskva — Moskva. Það verður eina svarið, sem þjóðin fær, ef hún heimtar Ísland fyrir Íslendinga. Eina svarið, sem verkalýðssamtökin fá, ef þau heimta atvinnu og brauð. Eina svarið, sem Ungmennafélag Íslands eða hvaða annað félag, sem heimtar Keflavíkursamningnum sagt upp, fær, — ef þeir fá svar. Séu það mjög velmetnir borgarar, sem kröfurnar gera, þá er þögnin svarið. Í vetur hélt félagið Þjóðvörn fjöldafund og krafðist m.a. uppsagnar Keflavíkursamningsins. Ekkert amerísku blaðanna, Morgunbl., Alþbl. né Vísir, fluttu eitt orð um þann fund. Í Tímann var smyglað inn 10 linum. — Þetta er aðstaða stjórnarblaðanna til þjóðfrelsisbaráttu Íslendinga um miðbik 20. aldar.

Eftir að Bandaríkjastjórn ákvað að herða áróðurinn „gegn kommúnismanum“ út um allan heim, þá hefur hins vegar Morgunblaðið hert upp hugann og ræðst nú á þorrann af þm. stjórnarliðsins og ásakar þá um þjónustu við Moskvu. Ef einhver hlustandi skyldi ekki trúa því, að Morgunblaðið bæri mönnum eins og Hermanni Jónassyni, Páli Zóphóníassyni, Hannibal Valdimarssyni á brýn liðsemd við hinn austræna málstað fyrir að þeir stóðu við kosningaloforð sín í Keflavíkurmálinu, þá skal ég lofa ykkur að heyra, hvað Mgbl. segir í ritstjórnargrein um Framsfl. nú 19. marz. Leiðarinn heitir „Gamla klukkan“, og þar stendur orðrétt:

„Ef athuguð er afstaðan til utanríkismálanna, kemur í ljós, að í einu stærsta utanríkismáli, sem komið hefur til kasta Alþingis Íslendinga, snerist hvorki meira né minna en hálfur Framsfl. á þingi til liðs við austræna málstaðinn. Ræðir hér um flugvallarsamninginn.“

Þið heyrið: það að vilja Ísland frjálst er að ganga til liðs við austræna málstaðinn. Svona er brjálsemi nýfasistanna á Íslandi komin langt. Svona eru rökin í stærsta blaði landsins og öllum áróðri stjórnarliðsins. Þannig er verið að innlima Íslendinga andlega í málalið amerísku auðdrottnanna með áróðurskerfi þjóðstjórnarliðsins, — innlima okkur efnahagslega í nýlenduríki amerísku bankadrottnanna með Marshalláætluninni, — innlima Ísland hernaðarlega í árásarkerfi ameríska hervaldsins með Keflavíkursamningnum og vítaverðri framkvæmd hans. Það er nú daglega verið að fórna þeirri velmegun og afkomuöryggi, sem Íslendingar voru byrjaðir að skapa sér, á altari þessarar brjálsemisbaráttu gegn kommúnismanum. Það er verið að reyna að forheimska og smekkspilla þjóðinni, svo að hún verði hæf til þess hlutverks, sem Wall Street ætlar henni. Það er verið að ofurselja efnahagslegt sjálfstæði okkar, svo að við höfum engan mótspyrnukraft gegn frekari landvinningakröfum ameríska auðvaldsins, eins og við höfðum 1945. Með þessum aðferðum á að tryggja ameríska hervaldinu Ísland sem stökkpall til árása á Evrópu, hvenær sem það vill. Og allt er þetta unnið af nokkrum ofstækisfullum áhangendum auðdrottnunarinnar, til þess eins að gera Ísland að einum reit á taflborði hinna stóru og oss Íslendinga að veslings fórnarpeðum voldugra auðhringa í hildarleiknum síðasta milli alþýðuvalds og auðmannavalds í heiminum. Það er engum vafa undirorpið, hvor sigrar í þeim leik. Stefna samhjálpar, samvinnu, sameignar — sósíalisminn — verður alveg tvímælalaust stefnu arðráns, stéttakúgunar og stéttabaráttu yfirsterkari hjá öllum þjóðum. Auðmannastéttir veraldarinnar geta reynt öll þau ráð, sem yfirstéttir heimsins hafa notað allt frá dögum spámannanna og hinna fyrstu kristnu til þess að bæla niður rödd lýðsins og kröfur fólksins. Þær geta ofsótt og bannað flokka sósíalismans og samtök verkalýðsins, þær geta fangelsað og myrt, en það getur ekkert hjálpað þeim. Fyrir rúmum 10 árum gerðu þrjú stórveldi heimsins bandalag „til þess að útrýma kommúnismanum“. Það átti að kveða sósíalismann niður fyrir fullt og allt. En sósíalisminn er í dag sterkari en nokkru sinni fyrr, í fyrsta sinni í veraldarsögunni sterkari en yfirstétt mannkynsins, en stórveldin þrjú eru hrunin í rústir. Það er vita vonlaust fyrir auðmannastéttir veraldarinnar að ætla að sigra alþýðu heimsins, eftir að hún er búin að finna. hve sterk hún er. Það er vonlaust vegna þess, að meðan alþýða er til á þessari jörð, mun héðan af hugsjón sósíalismans alltaf koma upp hjá henni, magna hana og styrkja, unz hún sigrar, — og við skulum muna: að alþýðan getur lifað án auðmannanna, en auðvaldið getur ekki lifað einn dag án alþýðunnar. Auðvald Ameríku hefur aðeins eitt ráð til þess að hindra þróun mannfélagsins til sósíalismans: að sprengja þennan hnött í frumeindir sínar og binda þar með endi á lífið á jörðinni í sinni núverandi mynd. Við skulum vona, að því mistakist sú tilraun, ef það reynir hana í örþrifaæði sínu. Og mistakist hún, þá er vel hugsanlegt, að áður en þessi öld gengur til viðar, verði sú þjóð, sem nú er andlega fastast reyrð í viðjar auðvaldsins, hin unga, fríska þjóð Bandaríkjanna, sú sem hefur forustu mannkynsins í þróun sósíalismans. Þjóð Washingtons, Lincolns og Roosvelts mun áreiðanlega ekki til eilífðar leggja sig undir járnhæl Morgans og Rockefellers. Við íslenzkir sósíalistar erum jafnöruggir um sigur alþýðunnar hér heima og við erum vissir um hann á heimsmælikvarða. Íslenzk alþýða hefur aldrei verið sterkari en nú. Samtök verkalýðsins hafa sýnt það á undanförnum árum, hve voldug verkamannastéttin er, þegar hún stendur sameinuð. Og verkalýðurinn stendur ekki einn. Íslenzkri alþýðu, jafnt millistétt sem verkalýð, er að verða ljóst, hvernig hið nýríka auðvald Reykjavíkur ræðst jafnt gegn öllum þeim smærri, sem bætt hafa hag sinn á undanförnum árum. Því fer fjarri, að íslenzk alþýða hafi nú engu að tapa. Hún hefur unnið mikla sigra undanfarið og mun gæta ávaxta þeirra sem sjáaldurs auga síns. Svo að segja hver einasta fjölskylda í verkamanna-, fiskimanna-, bænda- eða annarri millistétt á eitthvað það, sem áunnizt hefur í sókn alþýðunnar á síðustu árum, — allt frá hækkuðu kaupgjaldi til íbúðar eða atvinnutækis, — sem hún er reiðubúin til að verja gegn ránsherferð milljónamæringanna með öllum þeim mætti, sem hún á. Og um allt þetta mun verða mynduð sú samfylking vinnandi stéttanna, sem engin auðvaldsárás fær rofið. Vilji afturhald og auðvald Íslands baráttu við alþýðu þessa lands, eins og þessi afturhaldsstjórn nú hefur hafið, þá óttast alþýða Íslands ekki úrslitin. Hún er viss með sigur að lokum. Og selji auðvald Íslands framandi valdi land vort í hendur, eins og það nú er byrjað á, til þess að fá sér þannig vopnaðan bandamann gegn friðsamri vopnlausri alþýðu Íslands, þá mun siðferðisleg, andleg og pólitísk fordæming þessarar þjóðar á slíkri yfirstétt og atferli hennar verða því vægðarlausari og ósigur hennar því smánarlegri að lokum.

Frelsishreyfing íslenzkrar alþýðu er örugg um, að málstaður hennar sigrar, jafnvel þótt íslenzkt afturhald fremdi þann glæp að gera átök sín við alþýðu landsins að einum þætti í allsherjarárás amerísks auðvalds til að brjóta undir alræði sitt allar frjálsar þjóðir, — og sú árás er hafin. En með þessu ofstæki, sem einskis svífst, skapar íslenzkt afturhald vandamál, sem er miklu ægilegra en sigur eða ósigur annars hvors íslenzka aðilans í innbyrðis átökunum. Afturhaldið gerir með framferði sínu Ísland að styrjaldarvettvangi, ef stríð brýzt út milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Og hvers virði er það oss sem Íslendingum, þótt góður málstaður sigri, ef íslenzka þjóðin er ekki lengur til, þegar hildarleiknum lýkur? Það er þessi hætta, sem hver Íslendingur, sem nú nefnir heimsstríð eða jafnvel krefst stríðs til útrýmingar kommúnismans eins og Hitler forðum, verður að gera sér í hugarlund. Mér hrýs bugur við, þegar ég heyri suma Ameríkuagentana hér í Reykjavík tala um það með tilhlökkun, ef nýtt stríð brýzt út, — þá verði tækifæri til að græða. Við skulum horfast í augu við, hvað nýtt heimsstríð þýðir fyrir okkur nú. Þjóðir Bandaríkjanna eða Sovétríkjanna geta misst 10–20 milljónir manna í stríði og náð sér aftur á áratug. Jafnvel þrautpínt Írland gæti misst milljón manna og írska þjóðin haldið áfram að lifa í jafnstóru landi og voru. En vér Íslendingar erum nú fyrst að ná okkur eftir sjö alda þrældóm og kvöl, sem næstum hafði gengið af okkur dauðum. Við getum ekki einu sinni misst 100000 manns án þess að þjóð vor hætti að vera til. Og það er þetta, sem nýtt heimsstríð getur þýtt. Það er þessi skelfing, sem jafnt vofir yfir oss öllum, sem nú byggjum þetta land, sem einstaklingum og sem þjóð, sem við framar öllu verðum að reyna að forðast. Það verður að hagnýta hvern möguleika, hve smár sem hann kann að virðast, til þess að bjarga þjóð vorri út úr þessari hættu tortímingarinnar, hagnýta hann með öllu því hugviti, festu og þrautseigju, sem til er í þjóð vorri. Tilvera þjóðarinnar er í veði, ef nýtt heimsstríð verður, það veit enginn okkar, hvenær síðustu forvöð kunna að vera til að bjarga. Það er glæpur að sameina ekki alla krafta, sem þjóðin á, um að reyna allt, sem reynt verður í þessu skyni. Aldrei hefur neinn Íslendingur tekið á sig aðra eins ábyrgð gagnvart þjóð sinni og þeir valdamenn, sem vanrækja að reyna að forða lífi hennar, ef ægilegustu átök veraldarsögunnar skyldu nú dynja yfir. Ég ákæri fyrir dómstóli þjóðarinnar og sögunnar þá menn, sem svikizt hafa til valda að þjóðinni fornspurðri, og eru nú í blindu ofstæki að leiða þjóðina út í það, sem getur orðið gereyðing okkar þjóðar. Íslendingar ! Þið, sem trúið Morgunblaðinu. Rífið slæðu forheimskunarinnar frá augunum. Ef nýtt heimsstríð brýzt út, vofir tortímingin í eldi þess yfir okkur öllum.

En hvað gerir yfirstétt lands vors, meðan þjóð vor er í mestri. hættu, sem hún hefur verið í þau 1000 ár, sem hún hefur byggt þetta land? Auðmenn landsins bítast um arðinn, sem þeir sölsa undir sig af alþýðu manna. Pólitísk embættismannastétt valdhafanna vex sem hlass á þjóðinni,svo að þjóðarbúið bognar undan þunga hennar. Og ríkisstj. stritast við það eitt að sitja, rífst um allt, sem þjóðinni kynni að verða til góðs, og kemur sér aldrei saman um neitt slíkt, er óstjórnhæf og óstarfhæf, hangir saman á hatrinu einu, hatrinu gegn hugsjón alþýðunnar og kröfum hennar til batnandi lífs og aukinna áhrifa á örlög sín. Í þeim eldi hatursins, sem MgbI. nú kyndir, mun Ísland brenna, ef hann er ekki slökktur í tíma. Morgunblaðið hefur alltaf verið fljóti að reyna að kveikja í hér heima, ef villtustu auðmenn heimsins hafa byrjað á brennuverki sínu hjá stórþjóðunum. Þegar auðmenn Þýzkalands létu brennuvarga sína kveikja í ríkisþinghúsinu og hófu útrýmingarherferðina gegn verkalýðshreyfingu og lýðræði Þýzkalands, ætlaði Morgunblaðið að tryllast af sama fögnuðinum og grípur það nú, er villtustu auðdrottnar Ameríku hóta að sprengja upp hnöttinn með ]nísundum atómsprengna, ef þeir fái ekki að arðræna allt mannkynið. Ég hef séð þann eld brenna, sem þá var kveiktur, — ég hef séð Lundúnaborg loga, — og ég hef séð rústirnar, sem eftir hann urðu. Ég veit, að næsti eldsvoði veraldarinnar verður miklu ægilegri, ef út brýzt, og mun ef til vill brenna heitast á oss Íslendingum.

Það er skoðun hinna vitrustu hernaðarsérfræðinga, sem raunhæfast sáu fyrir gang síðasta stríðs. að ef auðvaldsríki Ameríku og alþýðuveldum Evrópu lendir saman í heimsstyrjöld, þá muni svo að segja strax alþýðuherir Evrópu standa við strendur Atlantshafs, og þá stendur okkar fámenna þjóð eins og lítið, nakið barn milli tveggja risa, grárra fyrir járnum, — barn, sem verður kramið til dauðs, ef annar hvor risinn nær að stíga fæti sínum á eyvirkið, er við erum í, til þess að höggva þaðan til hins. Sumir halda ef til vill, að hvorki sé til sá möguleiki að forða stríði né bjarga oss, ef stríð verður. Ég skal ekkert fullyrða um það. En ef til vill eru líka möguleikarnir til að bjarga þjóð vorri miklu meiri en við höldum, ef við aðeins sjálfir höfum þann siðferðislega kraft, sem þarf. Jafnvel í þessum kaldranalega heimi væri þó jafnvel meiri von um björgun með því að skírskota til mannkynsins eins og lítið barn, sem biður fyrir lífi sínu, heldur en með því að haga sér eins og siðspilltur negrahöfðingi, sem selur þjóð sína í þrældóm og landið sitt sem herstöð.

Það eru fleiri en við Íslendingar, sem langar til þess að lifa. Alþýða alls heimsins þráir frið. Það er auðvaldið eitt, sem grætt getur á stríði. Rödd þjóðar vorrar mundi bergmála víða um heim, ef hún hefði andlegt hugrekki til þess að koma fram sem mannasættir, tala máli friðarins, en undir honum er frelsi og tilvera vor sjálfra komin. En það getur hún ekki, nema hún standi sjálf sameinuð um slíkan málstað. Núv. ríkisstj. gerir allt, sem hún getur, gegn slíkri einingu um slíkan málstað. Þessi stjórn traðkar í sundur lögin, reynir af ýtrasta megni að slíta sundur innanlandsfriðinn, kyndir bál haturs og ofstækis, reynir að brjála svo dómgreind vor Íslendinga, að vér sættum oss við að vera undirþjóð í eigin landi, sem seljum herraþjóðinni landið á leigu sem herstöð. Þessi stjórn er orðin fulltrúi erlends valds gagnvart Íslendingum, erlendrar yfirgangsstefnu, sem vill ræna okkur landinu, ræna okkur vitinu og hirðir hvergi, þó að hún ræni okkur lífinu líka. Stjórnvizka þjóðar vorrar hefur á úrslitastundum sögunnar birzt jöfnum höndum í því að víkja hvergi frá yfirráðarétti vorum yfir þessu landi, eyjum þess og útnesjum, og hinu, að semja friðsamlega um þjóðfélagshættina, svo að andstæðum stefnum lysti eigi svo ægilega saman, að sjálft hið litla þjóðfélag vort sundraðist í átökunum. Ekkert er núverandi ríkisstj. eins fjarri og að beita slíkri íslenzkri stjórnvizku. — Ekkert er þjóð vorri önnur eins lífsnauðsyn og að slíkri stjórnvizku sé beitt.

„Ég veit mitt orð til einskis fer“ gagnvart ofstækisfyllstu höfðingjum þessa lands, sem þegar eru ákveðnir í að rígbinda land vort við ameríska auðvaldið, svo að það verði eigi aftur leyst. En ég skírskofa til þeirra mörgu smáu, er mál mitt heyra, — til þeirra, sem alltaf hafa borið uppi menningu, frelsi og líf þessa lands: að nú er komið að þeirri örlagastund okkar þjóðar. sem reynir á, hvort kynslóð vor er fær um að feta í fótspor beztu fyrirrennara sinna. Þess vegna reyni ég nú af veikum mætti, sem einn óbrotinn borgari míns lands, að skírskota til þín hlustandi góður, frá æðstu véum þjóðarinnar, Alþingi Íslendinga. Það er á þínu valdi, hver sem þú ert, karl eða kona, ríkur eða fátækur. hvort orð mitt fer til einskis. Ég veit, að í brjáluðum kommúnistaæsingum peningavaldsins verður hver slík rödd kæfð, ef einmitt þú lætur ekki skynsemina ráða. Ég get aðeins sagt, hvað ég óttast, að geti verið framundan, það er þitt að ráða því, hvað það verður, að svo miklu leyti sem það er á voru valdi. — Og það eru ekki skýjaborgir, sem ég sé í dag, skýjaborgir, sem mig langar til þess að sjá fluttar niður á jörðina. Það eru rústir, sem ég óttast nú, ekki aðeins rústir þeirra glæsilegu vona, sem við Íslendingar gerðum oss um sjálfstæði og vaxandi velferð þjóðarinnar, er við skópum lýðveldið og hófum nýsköpun atvinnulífsins 1944, heldur rústir Reykjavíkur, Keflavikur, Hafnarfjarðar, — rústir eins og þær, sem ég hef gengið um í Varsjá, Berlín og annars staðar þar, sem fólkið hefur látið samvizkulausa, fégráðuga auðmenn tæla sig undir yfirskini „baráttunnar gegn kommúnismanum“ til þess að fela þeim forráð sín, og þeir síðan skilið þá, sem af lifðu tortíminguna, eftir í rústum hruninna borga. Við skulum ekki hugga okkur við. að hér sé aðeins um hugaróra að ræða úr mér. Þegar brezk blöð, eða hið fræga enska tímarit New Statesman and Nation talar um virki Ameríkana í fremstu víglinu í Evrópu, þá nefna þau þessi fjögur lönd: Tyrkland, Gríkkland, England og Ísland. — Þegar hið alkunna ameríska blað atomvísindamannanna (Bulletin of the Atomie Scientists) talar nm hættuna, sem þessi lönd í fremstu víglínunni séu í. þá segir það: „Það er hægt að eyðileggja þau ríki, sem verða herstöðvar í fremstu víglínu fyrir okkur, með þeim sprengjufleygum („rakettum“) og flugvélum, sem nú þegar eru til taks. Ameríka getur því aðeins haldið þessum herstöðvum, með því að stofna þessum vinsamlegu þjóðum í þá hættu, að þeim verði gersamlega útrýmt og væntanlega gegn þeirra vilja.“

Og það eru ekki aðeins atomvísindamenn, sem þannig tala. Í Ameríku er þetta líka á alþýðu vitorði. Ung íslenzk stúlka, sem dvalið hefur í Ameríku, var nýlega að halda heim. Þegar hún sagði amerísku fólki, sem hún hafði kynnzt, frá því, að hún væri að fara til Íslands, þá sagði þetta fólk við hana: „Blessuð, vertu ekki að fara til Íslands. Bráðum verður stríð, og þá verða Íslendingar þurrkaðir út.“ Stúlkan svaraði: „Ef Íslandi verður gereytt, þá langar mig ekki heldur til að lifa.“ Og hún hélt heim. Íslendingum þykir enn fögur hlíðin. Líf og framtíð þess fólks, sem þannig elskar landið, er nú í höndum stjórnmálamannanna, sem ráða yfir þjóð vorri. Ég trúi núv. stjórn ekki fyrir lífi þess og framtíð. Nú er það aðeins þjóð vor sjálf og hún ein, sem getur bjargað, með því að sameina allt það bezta, sem í henni finnst, til þess að tryggja frelsi landsins og vald og tilveru Íslendinga á þessari ey. En það er bjargföst trú mín, að hún geti það, ef við Íslendingar aðeins leggjumst allir á eitt.