22.03.1948
Neðri deild: 80. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 834 í B-deild Alþingistíðinda. (975)

182. mál, verndun fiskimiða landgrunnsins

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Herra forseti. Þar sem sjútvmrh. er lasinn og getur ekki verið hér viðstaddur, þá hef ég tekið að mér framsögu fyrir þessu máli. Ég tel þó ekki, að verulegrar framsögu sé þörf, en vil geta þess, að málið hefur verið rætt í utanrmn. og undirbúið af þjóðréttarfræðingi n., og var n. samþykk flutningi frv. Það virðist ekki þurfa að gera langa grein fyrir efni málsins, og læt ég þetta því nægja, því að málið fer væntanlega til n. og verður þá rætt ítarlega, ef þurfa þykir.