22.03.1948
Neðri deild: 80. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 835 í B-deild Alþingistíðinda. (978)
182. mál, verndun fiskimiða landgrunnsins
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég veit, að hæstv. forseti hefur, eins og eðlilegt er, ekki haft tækifæri til að fylgjast með undirbúningi málsins, þar sem hann á ekki sæti í utanrmn. En ég á afar erfitt með að skýra frá honum, því að ég mun ekki ótilneyddur ræða efni málsins, og á ég því erfitt með að lýsa því, hvers vegna ég vil fá málinu frestað. Hér er nú enginn hæstv. ráðh. viðstaddur, en fyrir liggur stórmál, sem útbýtt hefur verið um heilli bók sem trúnaðarmáli til þm., og býst ég við, að þm. hafi lesið hana, og sjá þeir þá kannske, hve óforsvaranleg þessi málsmeðferð er. Mér þykir leitt, ef hæstv. forseti getur ekki orðið við þeirri ósk að fresta málinu, en það býst ég við, að hann gerði, ef honum væru allar ástæður kunnar. Ef málinu yrði nú vísað til 2. umr., þá býst ég við, að það tæki á sig annan svip, en ég vona, að til þess komi ekki. Það mundi þá fara til sjútvn., og þar með er ekki tækifæri til þess fyrir mig að láta álit mitt í ljós. Ég óska því eindregið, að forseti fresti meðferð málsins, ef hann mögulega sér sér fært. Ef forseti getur ekki ráðfært sig við ráðherrana þar sem þeir eru allir farnir af fundi, þá mundi ég ekki vilja taka á mig ábyrgðina af því, að umr. yrðu um málið, því að það er svo þýðingarmikið, að til þeirra þurfi ekki að koma um þetta mál. En ef málinu verður nú vísað til 2. umr., þá áskil ég mér rétt til að ræða það þá almennara en gerist við þá umr.