23.03.1948
Neðri deild: 82. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 836 í B-deild Alþingistíðinda. (982)

182. mál, verndun fiskimiða landgrunnsins

Frsm. (Pétur Ottesen):

Sjútvn. ræddi þetta mál á fundi sínum í morgun. Og á fundinum mætti hjá n. sá maður í utanrrn., sem hefur rannsakað þessi mál og á nokkurn þátt í samningu þessa frv., þ.e. þjóðréttarfræðingurinn Hans Andersen. N. ræddi við hann um málið, og varð að samkomulagi milli allra nm. að mæla með samþykkt þessa frv., eins og nál. ber með sér, með tveimur breyt. Áður en ég vík að þessum brtt., vil ég aðeins fara örfáum orðum um þetta mál.

Með samþykkt þessa frv. er því yfir lýst af hálfu Alþ., að Íslendingar telja sig hafa rétt til að ákvarða takmörk verndarsvæða innan endimarka landgrunnsins við strendur landsins og setja reglur, eftir því sem nauðsyn krefur, til verndar fiskimiðunum á þessum svæðum. Alþjóðarétturinn viðurkennir rétt hvers lands til slíkra ráðstafana heima fyrir hjá sér. Milliríkjasamningar hafa hins vegar víða verið gerðir ríkja í milli um fiskveiðaréttindi. Taka slíkir samningar löngum að meira eða minna leyti til þess ákvörðunarréttar, sem hér um ræðir, að því er snertir þá þjóð eða þær þjóðir, sem að samningum þessum standa. Halda slíkir samningar að sjálfsögðu gildi sínu, þangað til þeim hefur verið breytt með nýjum samningi eða þeir hafa fallið úr gildi við uppsögn á þeim. Íslendingar eru aðili að einum slíkum samningi og raunar fleiri, ef með eru teknir samningar þeir um möskvastærð, sem Íslendingar eiga hlutdeild í. Að því er stefnt af hálfu Íslendinga að fá á komið verndun fiskstofnsins við strendur landsins með því að notfæra sér þennan rétt. Einn þáttur í þessu þýðingarmikla og merkilega hlutverki eru meðal annars vísindalegar rannsóknir á viðnámsþoli hinna ýmsu tegunda fiskstofnsins. Þess vegna er í þessu frv. ráð fyrir því gert, að kappsamlega verði unnið að slíkum rannsóknum af hálfu Íslendinga sjálfra, jafnframt því sem þeir kosti kapps um að taka þátt í alþjóðavísindarannsóknum, er miða að verndun fiskimiða og fiskstofnsins. Slík alþjóðasamvinna um vísindalegar alþjóðafiskirannsóknir er vísasta leiðin til þess að vekja almennan áhuga fiskveiðaþjóða fyrir verndun fiskstofnsins. Er alþjóðaáhugi á þessu sviði mikilsverður fyrir Íslendinga. — Það má þess vegna vænta þess, að þessi skipun þeirra mála, sem í frv. þessu felst, styrki aðstöðu ríkisstj. til þess að ná því marki, sem Íslendingar hafa stefnt að, að þeir geti á raunhæfan hátt gert ráðstafanir, sem miða að aukinni friðun fiskstofnsins.

Ég vil taka það fram, að þetta frv. felur ekki í sér neina heimild til neinnar skerðingar á núgildandi íslenzkum lagaákvæðum og heldur ekki neina heimild til skerðingar í sambandi við samninga, sem gerðir eru þjóða í milli um viðskipti, þó að fram kunni að koma óskir í þessa átt.

Meira tel ég ekki, að ég hafi fyrir n. hönd að segja um þetta mál. Það var gerð sú breyt. á þessu frv. í hv. Ed., að við 1. málsl. frv. var bætt orðunum: „enda verði friðun fiskstofnsins á engan hátt rýrð frá því, sem verið hefur.“ En sjútvn. þessarar hv. d. leggur til umorðun á 2. gr. frv. Þetta er aðeins orðabreyt., sem hér er um að ræða, og þótti n. það vera í betra samræmi við annað efni frv., en breytir ekki meiningunni í neinum atriðum. N. þótti fara betur á að hafa þetta orðalag heldur en hafa orðalagið á gr. eins og það er nú í frv. N. bar þessa brtt. undir þann þjóðréttarfræðing, sem að þessu starfaði, og hafði hann ekkert við þessa breyt. að athuga.

Með þessum ummælum, sem ég hef látið falla hér, væntir sjútvn. þess, að frv. verði samþ. með þeim breyt., sem nú hefur verið lýst, og væntir þess, að það þurfi ekki að verða til trafala fyrir afgreiðslu málsins. þó að það fari aftur til hv. Ed., sem væntanlega getur einnig fallizt á þessar breyt.