23.03.1948
Neðri deild: 83. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 838 í B-deild Alþingistíðinda. (988)
182. mál, verndun fiskimiða landgrunnsins
Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Herra forseti. Út af orðum hv. 2. þm. Reykv. vildi ég taka það fram, að ég get ekki gefið um þetta fullkomið svar, því að það er á valdi hæstv. utanrrh., hvaða meðferð málið hlýtur, að því er lýtur að samningum við önnur ríki. En fyrir mitt leyti get ég látið það í ljós, að ég tel eðlilegt, að utanrmn. fjalli um aðallínur málsins og framkvæmdirnar yrðu til umr. í n. og leitað verði samráðs hennar. Þetta er mitt persónulega álit, en ég get ekki að öðru leyti svarað fyrir hæstv. utanrrh.