16.05.1949
Neðri deild: 110. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 659 í B-deild Alþingistíðinda. (1039)

184. mál, hlutatryggingarsjóður bátaútvegsins

Frsm. meiri hl. (Finnur Jónsson). Herra forseti. Þegar lögin um eignakönnun voru samþ. á Alþingi, var það fyrirheit gefið, að nokkur hluti þess fjár, sem inn kæmi vegna eignakönnunarinnar, skyldi lagður í hlutatryggingasjóð bátaútvegsins. Það má því segja, að loforð frá því opinbera sé fyrir hendi um að beita sér fyrir þessari sjóðstofnun. Ríkisstjórnin lagði svo fyrir nokkru fram frv. um hlutatryggingasjóð bátaútvegsins, og kemur það hingað frá hv. Ed., þar sem það hefur tekið talsverðum breytingum frá því, sem var, þegar nefndin, er undirbjó það, skilaði því frá sér. Það hefur komið í ljós undanfarið, að hagur bátaútvegsins er mjög misjafn frá ári til árs, og nú síðustu ár hefur hagur hans verið mjög slæmur, svo að rækilega hefur þar þurft að hlaupa undir bagga. Með l. um hlutatryggingasjóð er ætlunin að setja á stofn öflugan sjóð, sem tekið geti af slík skakkaföll, þegar illa árar. Ber því brýna nauðsyn til, að sjóðstofnun þessi megi bæði fljótt og vel takast. Ég skal ekki fara út í það, hvort frv. uppfylli allar vonir útvegsmanna, en að því er þó stefnt með frv., að sjóðurinn megi koma þeim að sem mestu gagni.

Við afgreiðslu málsins í sjútvn. kom í ljós, að einn nm., hv. 5. þm. Reykv., telur frv. svo úr lagi fært í Ed., að hann treystir sér ekki til að fylgja því. Hv. þm. Siglf. skilar séráliti, en við þrír, hv. 2. þm. N-M., hv. þm. Borgf. og ég, leggjum til eftir atvikum, að frv. verði samþ. í því formi, sem það kom frá hv. Ed., því að leggja verður megináherzlu á, að málið nái fram að ganga á þessu þingi. Einn okkar, hv. 2. þm. N–M., hefur þó skrifað undir nál. með fyrirvara og hefur flutt brtt. á þskj. 769, þar sem hann leggur til, að tekjur sjóðsins verði 1% af óskiptum vertíðarafla bátaflotans, sem stundar tryggingarskyldar veiðar, í stað þess, að nú er í frv. gert ráð fyrir 1/2% útflutningsgjaldi af öllum útfluttum sjávarafurðum öðrum en þeim, sem koma frá botnvörpuskipum, selveiðum og hvalveiðum, og svo framlag úr ríkissjóði á móti þessu. Ég tel till. hv. þm. að ýmsu leyti eiga rétt á sér, en tel þó af fenginni reynslu, að innheimta gjaldsins eftir brtt. hv. þm. yrði allt of erfið og tekjuöflun sjóðsins þannig stefnt í óefni. Um innheimtuna til sjóðsins hefur hv. þm. Siglf. einnig flutt brtt. við 9. gr., að 2. tölul. orðist svo, að fyrir framlag ríkissjóðs komi 1/2% innflutningsgjald af verðmæti allra innfluttra vara, hverju nafni sem nefnast. Skal gjald þetta reiknast af verði vörunnar á sama hátt og önnur innflutningsgjöld, og má ekki bæta því við söluverð varanna innanlands. Nú er það svo, að við höfum bæði á þessu þingi og áður ákveðið allmikil innflutningsgjöld, svo að sú skoðun hefur við full rök að styðjast, að þar sé nógu mikið ásett. Enn fremur er svo á liðið þingtíma, að stór hætta er á, að frv. nái ekki fram að ganga, ef brtt. við það eru nú samþ. Það eru því eindregin tilmæli mín, að frv. verði samþ. eins og það kom frá Ed., enda þótt ég telji, að betur hefði þurft að athuga það í n., en til þess vannst því miður ekki tími.