13.05.1949
Neðri deild: 108. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 704 í B-deild Alþingistíðinda. (1070)
195. mál, Marshallaðstoðin
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Hv. 2. þm. Reykv. sagði, að Landsbankinn væri til þess að styrkja atvinnulífið fyrst og fremst. Segjum, að svo sé. En nú skuldar ríkið Landsbankanum tugi milljóna, og á meðan ríkið festir þannig fé bankans, hefur hann það ekki handbært til lána, og það verður þannig minna fé, sem hann getur veitt út í atvinnulífið. Nú flytur hv. þm. brtt. til að hindra, eins og hann segir, að fénu verði fleygt í hít Landsbankans, — till., sem hlýtur að skerða möguleika bankans til þess að veita fé út í atvinnulífið. Ég held nú, að hv. þm. ætti að taka þessa till. sína aftur og beita sér fyrir því, að þetta fé fari til Landsbankans, ef hann vill, að hann hafi einhverju fé að miðla. Mér virðist einsætt, að ekki sé heil brú í þessari röksemdafærslu hv. þm.