22.10.1948
Neðri deild: 6. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 713 í B-deild Alþingistíðinda. (1087)

1. mál, togarakaup ríkisins

Einar Olgeirsson:

Það er rétt, sem hæstv. forsrh. sagði, að með kaupum þessara togara er stigið merkilegt spor, en það er verra, að það er of stutt og of seint stigið. Þetta er gott dæmi um það, hve hikandi hæstv. ríkisstj. hefur verið að stíga sporið áfram og hve dýrt það hefur orðið þjóðinni.

Það voru fleiri, sem voru hikandi, þegar fyrst var byrjað að ræða um það að kaupa inn togara í stórum stíl. Árið 1945, þegar nýbyggingarráð tók þessi mál til meðferðar, töldu togaraeigendur það fásinnu að kaupa togara strax. Þeir byggðu skoðun sína á því, að brezkir togaramenn ætluðu ekki að semja strax, heldur fyrst 11/2 ári eftir lok styrjaldarinnar, því að þá yrði komin verðlækkun. Íslenzku togaraeigendurnir voru líka þeirrar skoðunar. Við vorum á annarri skoðun og héldum því fram, að það væri. um að gera að semja strax, helzt áður en stríðinu lyki, svo að við yrðum fyrstir. Ég var sérstaklega á þeirri skoðun, að verðhækkun yrði bæði á okkar vörum og erlendum vörum, en fjöldi manna, sem þóttist vita betur, trúði á verðlækkun. Við, sem vildum, að Íslendingar. yrðu á undan Bretum, fengum fram samninga um 30 togara, og vegna þess tókst að fá hingað togara 1947 og 1948. Ég býst við, að allir lands-. menn séu sammála um, hve gott spor var stigið með þessu.

Þegar frv. um kaup 30 togara kom fyrir Alþingi, lögðu sósíalistar fram brtt. um, að keyptir yrðu 50 togarar í stað 30. Ef þetta hefði verið samþ. í nóvember–desember 1945, hefðu þeir 20 togarar komið til landsins á þessu ári og í byrjun næsta árs. En allir voru á móti þessu, nema sósíalistar. Ísland átti þá nóg fé fyrir 20 togurum í viðbót. Hver togari aflar nú gjaldeyris fyrir um 3 millj. kr. brúttó, og sést bezt á því, hvílíkur gjaldeyrisfengur þetta hefði orðið.

Þegar núverandi stj. tók við völdum og lagði fyrir þingið frv. um fjárhagsráð, minnti ég aftur á þessa till. og lagði hana fram sem brtt.. við l. um fjárhagsráð, þannig að fjárhagsráði yrði falið að undirbúa tafarlaust kaup 20 nýrra togara. Ég hafði þá talað við hv. þm. Barð., sem unnið hefur manna mest að þessum málum. Ég spurði hann að því, hvernig horfur væru á því að fá smíðaða togara, ef samið væri strax, og hann sagði, að það mundi vera hægt að fá þá smíðaða, svo að þeim yrði lokið 1949. En till. okkar sósíalista var felld. Ég hafði vakið eftirtekt hæstv. ríkisstj. á þessu og lagði áherzlu á, að ekki væri beðið, þar sem þarna væri um þýðingarmikinn gjaldeyrisfeng að ræða og auk þess yrði auðvelt fyrir eigendur togaranna að borga þá niður, en það gæti orðið erfiðara síðar hvað verðlag snertir. En allt kom fyrir ekki. Till. okkar sósíalista voru drepnar af flokkum hæstv. ríkisstj.

Nú sér hæstv. ríkisstj., að hún kemst ekki lengur hjá því að verða við mjög almennum kröfum fólksins um kaup á nýjum togurum. Nýsköpunartogararnir hafa vakið það mikla hrifningu og afkoma þeirra verið svo góð, að menn hafa óskað að eignast fleiri. Hæstv. ríkisstj. var bent á að verða við þessum óskum í tíma. Fyrsti nýsköpunartogarinn kom til landsins í febrúar 1947, og í maí sama ár kom Akureyrartogarinn Kaldbakur. Hæstv. ríkisstj. vissi, hve dýrmætt það var að vera snemmbúinn, og hún hafði tækifæri til þess, en sleppti því. Nú loks eru kröfur fólksins orðnar svo sterkar, að hún verður að láta undan þeim. Ef til vill á hugboðið um nýjar kosningar sinn þátt í því. En það tekur hana hvorki meira né minna en hálft annað ár frá því hún settist að völdum og þangað til hún gerir þennan samning. Þessi tími er orðinn Íslendingum mjög dýr, og er nauðsynlegt, að bæði þjóðin og flokkar ríkisstj. og svo ríkisstj. sjálf geri sér það ljóst. Ef samið hefði verið um smíði þó ekki hefði verið meira en á 10 togurum á fyrstu mánuðum þessarar ríkisstj., hefðu slíkir togarar verið komnir til landsins í byrjun eða um mitt næsta ár. Þeir hefðu þá getað framleitt hver um sig 3–31/2 millj. kr. á ári brúttó. Það þýðir m.ö.o., að nýsköpunartogararnir hefðu á hverju ári flutt þjóðinni jafnmikið í bú eins og þeir sjálfir hefðu kostað upprunalega. Það er þess vegna víst, að það hefur orðið þjóðinni ákaflega dýrt að hafa ekki getað fengíð þessi skip í notkun nú 1949 og 1950. Það eru glötuð þarna tvö ár, en á þeim hefðu þessir togarar getað framleitt 7–8 millj. kr. í erlendum gjaldeyri hver um sig. Alveg sérstaklega tilfinnanlegt er þetta fyrir þá, sem eru að eignast þessa togara af litlum efnum. Ég á sérstaklega við bæjarfélögin. Til þess að fátæk bæjarfélög geti eignazt slík tæki, þurfa þau að geta búið við eins góða afkomu fyrstu árin eins og togaraútgerð nú hefur búið við. Takist vel fyrstu tvö til þrjú árin og sé hægt að borga skipin fljótt niður, eins og t.d. Kaldbak á Akureyri, verður auðveldara að standa undir, þótt eitthvað kunni síðar að ganga verr og verð að lækka. Og nú upplýsir hæstv. forsrh., að þetta ráðslag ríkisstj. hans sé ekki aðeins orðið þjóðinni dýrt fyrir þennan seinagang að hefjast handa um að semja um þessa 10 togara, heldur verði þessir togarar mun dýrari en nýsköpunartogararnir, eða upp undir eina milljón kr. dýrari hver um sig. Að vísu mun nokkuð af því verði felast í betri útbúnaði, en hlutfallslega er það ekki mjög mikið. Það er þess vegna í alla staði mjög slæmt, að þessir hlutir skuli hafa dregizt svona. Það er leitt, að ríkisstj. skuli hafa, þegar hún byrjaði sína göngu, treyst um of á það að geta drepið niður nýsköpunaráhuga þjóðarinnar. Ef hún hefði gert sér grein fyrir því strax, þegar hún tók við völdum, að það er ekki auðvelt að kveða aftur í kútinn þann anda, sem skapaðist hjá Íslendingum á árunum 1944–46, þá hefði hún kannske látið undan kröfum fólksins strax og við því getað fengið þessa togara á næsta ári. Nú upplýsir hæstv. forsrh., að samkv. samningnum eigi þessir togarar að vera tilbúnir frá nóv. 1950 og til sept. 1951. Sé nú reiknað með álíka seinagangi hjá skipasmiðastöðvum í Bretlandi og við höfum orðið fyrir með nýsköpunartogarana, sem mun vera óhætt, er vart að búast við, að almennt megi reikna með togurunum fyrr en 1951–52. Það eru m.ö.o. tvö dýrmæt ár töpuð okkur þarna. Ég vildi aðeins láta þetta koma fram um leið og þetta frv. hæstv. ríkisstj. er hér til 1. umr. Það fer til þeirrar n:, sem ég á sæti i, þannig að mér gefst tækifæri til að fjalla þar um það og athuga betur, hvort fært þykir að gera brtt., t.d. að fá aukna tölu togara, sem um er að ræða. Ég er fyllilega þeirrar skoðunar, að þó að ríkisstj. hafi farizt þetta illa úr hendi og gert þjóðinni þessi togaramál miklu dýrari en þurfti, sé það síður en svo nokkur hætta að leggja í togarakaup, en sé sjálfsagt af Íslendingum að gera það; og ekki aðeins þessa tíu, heldur líka fleiri. Ég efast ekki um, að áhugi þjóðarinnar muni vera fyrir því að eignast slíka togara. En það er nauðsynlegt fyrir Alþ. að gera, um leið og ákveðið er um togarakaupin, ráðstafanir til þess að tryggja, að þessir togarar komi þjóðinni almennt að sem mestu gagni, — að sá auður, sem þeir vonandi koma til með að skapa, renni til þjóðarinnar sem heildar. Þegar samið var um nýsköpunartogarana, voru um leið gerðar stórfelldustu ráðstafanir, sem nokkurn tíma hafa verið gerðar á Íslandi til þess að gera fátækum bæjarfélögum mögulegt að eignast þessi stórvirkustu framleiðslutæki í íslenzkum sjávarútvegi. Það voru samþ. l. um stofnlánadeild og þál. um, að ríkisstj. skyldi veita 10% lán til viðbótar til bæjarfélaga, sem leggja í togarakaup. Og það vita allir, sem til þekkja, hvílík lyftistöng nýsköpunin hefur orðið sérstaklega þeim bæjarfélögum víðsvegar á Íslandi, sem gátu lagt í að kaupa þessa togara, vegna þess að þau þurftu ekki að leggja fram nema 15% af andvirði þeirra sjálf. Með þessu móti er hægt að fara að dreifa nokkru af auðmagni Íslands út um bæi og þorp landsins og veita þeim þá auðsköpunarmöguleika, sem Reykjavík og Hafnarfjörður hafa einir setið að milli styrjaldanna. Um leið og hugsað er um að kaupa þessa 10 togara, þarf að gera ráðstafanir til þess að tryggja ýmsum bæjarfélögum að eignast þá. Við höfum nógu volduga auðmannastétt hér í Reykjavík, þó að ríkið geri ekki þær ráðstafanir, sem geri henni einni kleift að eignast þessa togara. En það verður, ef borgunarskilmálar verða það erfiðir, að engum nema auðugustu mönnum er fært að ráðast í kaupin. Þess vegna álít ég, að Alþ. þurfi að gera ráðstafanir í þessu efni samtímis því, sem það afgr. þessi l. Ég á þó ekki við, að gera skuli aðeins brtt. við þessi l. Ég heyrði á hæstv. forsrh., að þetta er dálítið feimnismál enn þá fyrir ríkisstj. Hún vissi það í vor, að stofnlánadeildin var uppétin og sex nýsköpunartogara vantaði lán úr henni. Ég benti ríkisstj. á það áður, en hún réðst í þennan samning, hvort ekki þyrfti að gera ráðstafanir til að bæta úr þeim vandræðum. En það hefur verið sama stjórnleysið á þeim málum sem öðrum hjá ríkisstj. Hún hefur ekkert gert á því sviði. Og nú kemur hún fram fyrir þingið og segir: Þetta er nú allt í vitleysu og við höfum engin ráð á þessu. Hæstv. forsrh. komst mér liggur við að segja loðið að orði um það, að togaraeigendur yrðu að útvega þó nokkurn hluta af andvirðinu. Ég álít nauðsynlegt, að hæstv. stj. birti sinn vilja og hugmynd um þetta sem allra fyrst, hvort t.d. kaupendur eigi að greiða svo mikinn hluta af andvirðinu, að engum nema auðugustu mönnum sé kleift að leggja í þetta. Þetta er það, sem Alþ. þarf að fá að vita.

Það sýnir þó gæfusemi, að við skyldum ekki hafa átt stj. slíka sem þessa árið 1945. Það hefði þýtt, að enginn af þessum nýsköpunartogurum, sem nú eru komnir og munu flytja í ár um 100–150 millj. kr., mundi þá hafa verið hingað kominn. En ég er sem sagt fylgjandi þessu frv. og hefði verið fylgjandi því, að það hefði verið komið fram fyrir hálfu öðru ári. Það er þjóðinni dýrt að hafa ríkisstj., sem er svona lengi að átta sig á hlutunum. En betra er seint en aldrei. Svo lengi sem maður verður að dragnast með slíka ríkisstj., þá er betra að hún átti sig að lokum, þó að biðin hafi orðið dýr. Mér þætti vænt um, að stj. hefði djörfung til að segja Alþ. um sínar fyrirætlanir um, hvernig togarakaupendum verði gert mögulegt að greiða þessa togara. Það komu um 40 umsóknir, strax eftir að samgmrh. tilkynnti, að það ætti að kaupa þá. Það sýnir, að áhugann vantar ekki um allt land og ekki heldur í Reykjavík.

Um útbúnað þessara togara skal ég ekki fara að ræða nú, enda gefst tækifæri við 2. umr. En mér þykir leitt, að þeir, sem um málið hafa fjallað, skuli ekki hafa séð möguleika á að hafa fiskimjölstæki í skipunum. Ef forsrh. hefði verið viðstaddur, hefði mér þótt gaman að fá upplýst, hvort ekki væri rétt, að sá dieseltogari, sem Guðmundur Jörundsson togaraútgerðarmaður hefur keypt og smíðaður er í Bretlandi og kemur bráðlega, muni hafa fiskimjölstæki, og hvort þau hafi ekki fengizt í Englandi, enn fremur hvort slík tæki séu svo fyrirferðarmikil, að erfitt sé að koma þeim fyrir. Það er óþolandi barbarismi hjá Íslendingum að kasta upp undir helming af fiskinum út aftur, í staðinn fyrir að vinna úr sem mestu. Það tókst ekki að fá slík tæki í nýsköpunartogarana. Og mér þykir leitt, að með þeim langa tíma, sem hæstv. ríkisstj. hafði til að undirbúa þessi togarakaup, skuli ekki hafa tekizt að ganga þannig frá þessu, að öruggt væri, að í þá fengjust nægilega heppileg tæki. Það er strax lakara að láta hina einstöku væntanlegu togaraeigendur fást við þetta. Það er ekki eins mikið áhugamál fyrir einstaka togaraeigendur að nota vel miðin eins og það ætti að vera fyrir ríkisstj. Hún gat samþ. í upphafi að setja þessi tæki í skipin. Hefði þá verið trygging fyrir því, að fiskimiðin væru sómasamlega hagnýtt og ekki eins miklu af fiskverðmæti fleygt. Ég á bágt með að trúa, að þessi tæki hafi hvergi fengizt í þessa togara. En þetta er hægt að ræða nánar síðar við meðferð þessa máls.