13.05.1949
Neðri deild: 108. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 723 í B-deild Alþingistíðinda. (1096)

1. mál, togarakaup ríkisins

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Herra forseti. Ég átti því miður ekki kost á að hlusta á allt, sem sagt hefur verið um þessi mál nú, en eftir að hafa heyrt hvað flm. brtt. hafa sagt, vil ég fara um þetta nokkrum orðum. — Ég vil fyrst taka nokkur atriði fram í sambandi við það, sem hv. þm. V-Húnv. sagði um gerð skipanna og það að hafa ekki enn gert ráðstafanir til þess, að fiskimjölsverksmiðja væri í þeim. Áður en kaupin á þessum 10 togurum voru ákveðin og samþ., var skipuð n., sem átti að gera till. um gerð, útbúnað og stærð þessara togara til ríkisstj. og þeirrar n., sem kaupin átti að annast fyrir hennar hönd. Þessi n. leitaði álits útgerðarmanna, sjómanna, skipaverkfræðinga o.fl., sem vit höfðu á eða hagsmuna að gæta. Það virðist vera, þótt þeir hafi gjarna viljað hafa fiskimjölsverksmiðjur í skipunum, þá hafi þeim ógnað svo það pláss, sem þær vélar mundu taka, svo og að þær mundu draga verulega úr því magni, sem skipin gætu flutt á markaðinn. Þar að auki lá fyrir, að þær vélar, sem hægt var að fá, mundu ekki vera sem heppilegastar. Af þessum sökum varð það álit þeirrar n., sem með kaupin hafði að gera, og ákvörðun, að ekki skyldi setja þessar verksmiðjur í togarana nú, en reikna með þeim möguleika, að seinna mætti setja þær í þá, ef vilji þeirra, sem gerðu skipin út, stæði til þess.

Þótt ég sé þeirrar skoðunar, að nauðsynlegt sé að auka togaraflotann sem mest, tel ég vera lítil líkindi til þess, að hægt sé að bæta enn við 10 togurum, m.a. vegna þess, að mikill vafi er á því, hvort hægt er að fá þá byggða í brezkum eða skandínavískum skipasmíðastöðvum á næstu tímum. En ég vildi vona, að hægt yrði smám saman að bæta við togaraflotann. Þó tel ég ekki heppilegt að fara lengra núna, fyrr en reynsla er komin á, hvernig þeir reynast dieseltogararnir tveir, sem ákveðið er að kaupa. Fróðir menn og glöggir telja, að þetta verði síðustu eimtogararnir, sem Íslendingar kaupa, og dieseltogararnir séu skip framtíðarinnar. En þegar kaupin voru ákveðin, var það vilji útgerðarmanna að fá frekar eimtogara. Bæði af þessum ástæðum og svo örðugleikum á útvegun gjaldeyris tel ég á þessari stundu ekki fært að ráðast í meiri kaup.

Þá kem ég að brtt. hv. þm. V-Húnv. og 2. þm. Reykv. um að greiða fyrir bæjar- og sveitarfélögum að ná í þessa togara. Eins og hv. 2. þm. Reykv. tók fram, þá er ekki hægt að búast við, að sömu möguleikar fáist nú til lána eins og þegar stofnlánadeildin var upp á sitt bezta og lánaði 85% af kaupverðinu. Hún er nú mjög niður dregin og ekki hægt að búast við lánum þaðan, vegna þess að Landsbankinn telur sig ekki geta lagt til hennar neitt fé. Ég hygg því, að eina ráðið sé að taka lán erlendis. Ríkisstj. hefur unnið að þessu, og vonir standa nú til, að það takist að fá 1 millj. pund að láni í Bretlandi. Þótt það sé nú um 75–80% af grunnverði skipanna, þá benda allar líkur til, að raunverulegt verð verði allmiklu hærra. Samningarnir eru nefnilega, eins og kunnugt er, þannig, að verðið breytist af sjálfu sér, ef verð á vinnulaunum eða efni breytist. Nú er t.d. búið að greiða 10% af grunnverði togaranna, en verð á stáli hefur hækkað nokkuð. svo og vinnulaun, svo að búast má við, eins og áður er sagt, að kaupverð togaranna verði allmiklu hærra, en gert var ráð fyrir í fyrstu. Ég hygg, að það séu lítil líkindi fyrir því, að ríkisstj. geti útvegað lán nema um það bil 2/3 af grunnverði togaranna, og eins og lánaþenslan hefur aukizt nú á síðustu árum, um um það bil 550 millj., þá held ég, að það séu gyllivonir, að ríkisstj. geti, þótt hún vildi, útvegað lán til kaupa á 10 togurum í viðbót eða lánað bæjar- og sveitarfélögum andvirði þessara togara eða hluta af því. Ég hygg því allt vera undir því komið, hvernig bæjar- og sveitarfélögum tekst að safna fé eða útvega sér lán til þess að leggja út í þennan mjög svo æskilega atvinnurekstur. Þess vegna held ég, að brtt. þeirra hv. þm: V-Húnv. og 2. þm. Reykv. komi ekki að nokkru gagni hér, þar sem aðeins er talað um heimild fyrir ríkisstj. og búast má við, að ekki verði hægt að nota hana. Ég hygg og, að eina leiðin til öflunar togara til handa bæjar- og sveitarfélögum sé, að þeir geti aflað sér og beinlínis lagt fram fé af eigin hendi. Af þessum ástæðum get ég ekki mælt með þeim brtt., sem fyrir liggja, og tel, að það verði að ráðast í framkvæmdinni, hvernig fer um þetta. Stjórnin mun reyna að afla fjár erlendis, og ef það tekst, þá verða bankarnir að ganga í lántökuna. Ég tel því óheppilegt að samþ. brtt. hv. þm., en mæli með samþ. brtt. frá fjhn., að taka megi lán innanlands eða jafngildi þess í erlendum gjaldeyri, og yrði þá þeim aðilum, sem togarana fengju, veitt hlutdeild í því, ef það á annað borð fæst.